Skór United týndust og kátur búðareigandi í Björgvin græddi vel Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 12. september 2025 12:32 Manchester United gerði enga frægðarför til Björgvinjar. getty/Poppy Townson Manchester United lenti í vandræðum fyrir leik liðsins gegn Brann í forkeppni Meistaradeildar Evrópu kvenna í gær.
Þegar United-liðið kom til Björgvinjar kom í ljós að takkaskór nokkurra leikmanna höfðu týnst. Forráðamenn United þurftu því að hafa hraðar hendur til að redda skóm fyrir leikinn mikilvæga. Þremur tímum fyrir leikinn fóru forráðamenn United í Torshov Sport í Björgvin og keyptu fimmtán skópör og tuttugu leggjahlífapör. Eigandi Torshov Sport, Andre Gullord, sagði heppilegt að til hefðu verið nógu margir skór og í réttri stærð. „Við höfum lent í því að fá einstaka leikmenn til okkar því þeir gleymdu skónum sínum en aldrei heilt lið,“ sagði Gullord. „Kannski hefðum við átt að segja að við ættum bara skó með engum tökkum til að hjálpa liðinu okkar!“ bætti eigandinn við í léttum dúr. Hann segir að líklega hafi United keypt vörur fyrir um fjögur þúsund pund, eða um 660 þúsund íslenskar krónur. United rannsakar nú hvernig stóð á því að skórnir týndust. Brann vann leikinn með einu marki gegn engu. Diljá Ýr Zomers var í byrjunarliði Brann sem mætir United í Manchester í seinni leik liðanna á fimmtudaginn.
Meistaradeild Evrópu í fótbolta kvenna Mest lesið Segja einn mann hafa séð um að aflétta banni Balogun Fótbolti Kærastan birti viðbjóðinn: Sörloth sagt að fremja sjálfsvíg eftir tapið á HM Fótbolti Goðsögn tekur við eftir vonbrigðin á HM Fótbolti „Er að fara vinna þennan gullskó og ég er að fara slá markametið“ Íslenski boltinn „Ég er svo lélegur í golfi“ Golf Liðin fjögur eftir sem FIFA vildi að gætu mæst í undanúrslitum Fótbolti Þjálfarinn rekinn eftir hótun leikmanns Fótbolti Lárus Orri: „Erum í bullandi fallbaráttu“ Íslenski boltinn McGregor entist aðeins í 69 sekúndur Sport „Þessi sigur sýnir hvað hópurinn er þéttur“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Enska landsliðið þurft að ferðast mest allra liða Ánægður með frammistöðu heimsmeistaramótsins Kærastan birti viðbjóðinn: Sörloth sagt að fremja sjálfsvíg eftir tapið á HM Dagskráin í dag: Umferðin klárast og allt gert upp í Stúkunni „Leikurinn sýnir að við erum að þróast í rétta átt“ „Þessi sigur sýnir hvað hópurinn er þéttur“ Liðin fjögur eftir sem FIFA vildi að gætu mæst í undanúrslitum Goðsögn tekur við eftir vonbrigðin á HM Lárus Orri: „Erum í bullandi fallbaráttu“ Uppgjörið: FH - Valur 2-0 | Gils gerði gæfumuninn í langþráðum sigri FH-liðsins Segja einn mann hafa séð um að aflétta banni Balogun Magnaður Sveinn Margeir: „Við eigum fullt inni“ Uppgjörið: KA - ÍA 3-2 | Víti í blálokin og loksins vann KA leik „Er að fara vinna þennan gullskó og ég er að fara slá markametið“ Uppgjörið: KR - ÍBV 5-2 | Eyjamenn sáu ekki til sólar í rokinu vestur í bæ Þjálfarinn rekinn eftir hótun leikmanns Segir FIFA skoða að fjölga liðum á HM í 64 Uppgjörið: Fram - Þór 6-1 | Framarar settu upp sýningu Draumabyrjun Freys hjá norska stórveldinu Sjáðu Róbert Frosta tryggja GAIS dísætan sigur „Mikil saga og mikill sársauki“ Sýður á Svisslendingum Haaland eldri hraunar yfir dómarana Argentínsk goðsögn fallin frá FIFA: Örflagan sýnir enga snertingu við vírinn Maður dagsins á HM: Öldungar á rassinum og nærbuxur Kim Kardashian Sveindís og stöllur unnu toppliðið Hökta áfram og mæta Englandi í undanúrslitum Bellingham sendi sára Norðmenn heim Boltinn í vír og Norðmenn segja algjört hneyksli að markið skyldi standa Sjá meira