Í straffi fyrir skilaboð á vegg Kaffibarsins: „Þetta eru bara skemmdarverk“ Árni Sæberg skrifar 12. september 2025 15:19 Silja ritaði Frjáls Palestína á ensku á vegginn. Eigandi veggsins segir það skemmdarverk. Silja Glömmi Plötusnúðurinn Silja Glömmi hefur verið sett í straff á Kaffibarnum og mun ekki þeyta þar skífum framar fyrir að hafa skrifað „Free Palestine“ á veggfóðraðan vegg á staðnum. Framkvæmdastjórinn segir veggjakrot viðvarandi vandamál og að þeim sem gerist uppvísir að slíku sé ekki boðið aftur inn á staðinn, allavega tímabundið.
Silja greindi frá því á Facebook í gær að henni hefði verið tjáð að hún hefði verið tekin af þeim plötusnúðavöktum á Kaffibarnum sem hún var á og að hún væri ekki velkominn á barinn. Bar sem hún hefði sótt síðan hún var unglingur og síðar þeytt skífum á í fimmtán ár. Boðskapurinn sem skiptir máli Silja segir í samtali við Vísi að hún hafi sagt frá málinu á Facebook til þess að halda boðskapnum um frjálsa Palestínu á lofti, ekki til þess að bera persónulegan harm sinn vegna lykta málsins á torg. Hún rekur að í þarsíðustu viku hafi hún verið á Kaffibarnum til þess að minnast dánardags bróður vinar síns, sem sé frá Palestínu. „Góður vinur sem hefur misst fleiri ástvini í þessu þjóðarmorði en ég hef tölu á. Ég endaði kvöldið á Kaffibarnum á því að skrifa með varalitnum mínum inni á kvennaklósetti: Free Palestine [lyndistákn af rauðu hjarta] Á veggfóður.“ Hún hafi ritað skilaboðin með varalit þar sem hún hafi talið að leikur einn væri að þrífa hann af veggfóðrinu ef vilji til þess væri fyrir hendi, auk þess sem henni hefði verið tjáð að til stæði að skipta veggfóðrinu út hvort sem er. Hún hafi ekki haft nokkurn ásetning til þess að eyðileggja nokkuð. „Og mín skoðun er reyndar sú að klósett inni á börum megi endilega vera staður þar sem fólk getur tjáð sig með pennum eða varalitum. Það þekkist varla sá bar þar sem ekki eru setningar upp um alla veggi. Krot já. Alls staðar í heiminum er þetta þekkt. Partur af menningu. Ákveðið listform mætti segja. En það er bara skoðun og ekki allir sammála því.“ „Er ekki eðlilegra að setja morðingja í bann?“ Silja segir að eftir að henni bárust skilaboð frá meðeiganda að Kaffibarnum um að hún væri komin á bannlista hafi hún bent honum á að henni þætti galið að hann hleypti „alls konar vafasömu liði inn á barinn“. „Til dæmis IDF hermönnunum sem flykkjast hingað til Íslands í svokallað „frí“ frá viðbjóðnum sem þeir eru að fremja á Gaza. Þjóðarmorðingjar. Betra væri að setja bann á þá en að óskapast yfir límmiðum og kroti og reka starfsmenn sína og fastakúnna og setja okkur í bann. Er ekki eðlilegra að setja morðingja í bann??? Nei takk, mig langar ekki að ræða þetta yfir MORGUNkaffibolla, kæri meðeigandi. Höfum ekkert að ræða.“ Lítill minnihluti hafi gaman af veggjakroti Ægir Þormar Dagsson er framkvæmdastjóri Kaffibarsins og á fimmtung í honum. Hann segir í samtali við Vísi að mjög algengt sé að fólk kroti á salernisveggi Kaffibarsins líkt og annarra skemmtistaða, sem sé hvimleitt enda keppist eigendur staðarins við að halda salernunum snyrtilegum. Langtum fleiri viðskiptavinir vilji hafa salernin snyrtileg en útkrotuð. „Ef þú krotar út eða skemmir eitthvað, þá segir það sig bara sjálft. Þetta er ekki í fyrsta skiptið og það væri óskandi að þetta væri síðasta skiptið.“ Fólk sé ekki á bannlista að eilífu Ægir segir að á þeim átján árum sem hann hefur komið að rekstri kaffibarsins hafi mikill fjöldi fólks unnið sér inn sæti á bannlista, hvort sem það er fyrir veggjakrot eða aðra miður heppilega hegðun. „Ef þú ert með veislu heima hjá þér og vinur þinn fer inn á klósett og gerir svona, þú ert ekkert að bjóða honum aftur næstu helgi. Fólk verður að taka sér pásu ef það getur ekki hagað sér, verið með mannasiði og tekið tillit til annarra. Ég held að allflestir finni sér leið inn með tíð og tíma. Þetta er ekkert ævilangt bann.“ Hefur ekki áhyggjur af sniðgöngu Færsla Silju hefur vekið mikil viðbrögð og nokkuð margir hafa lýst því yfir að þeir ætli að sniðganga Kaffibarinn vegna málsins. „Megi Kaffibarinn og eigendur hans verða gjaldþroti að bráð“, „ömurleg hegðun hjá eigendum, skil ekkert hvað þeim gengur eiginlega til. Meira ruglið, stend með þér og fer ekki á kaffibarinn“ og „Er Georg Bjarnfreðarsson tekinn við Kaffibarnum?“ eru meðal athugasemda sem ritaðar hafa verið undir færsluna. Ægir segir mögulegt að einhverjir muni sniðganga Kaffibarinn vegna málsins en hann hafi ekki teljandi áhyggjur af því. „Ef þetta fólk ætlaði að koma hingað að krota og skemma þá er kannski ágætt að það komi ekki.“ Loks segir hann að efni skilaboðanna skipti engu máli. „Við erum ekkert pólitískir, það er langt því frá. Það eru einhverjir aðrir að snúa þessu upp í að þetta hafi eitthvað með það að gera. Það hefur staðið þarna Guns N' Roses, Sigur rós, í gamla daga, mamma er best, skilur þú? Fyrir mér er þetta bara krot sem þarf að þrífa.“
Átök í Ísrael og Palestínu Palestína Næturlíf Reykjavík Veitingastaðir Mest lesið Svona stór er nýja moskítóflugan í samanburði Innlent Fengu nóg og tóku málin í sínar eigin hendur Innlent Lýsa víðtæku ofbeldi gagnvart eldra fólki og kalla eftir vakningu Innlent Tapaði aftur gegn borginni eftir afdrifaríka rennibrautarferð Innlent Vill byrja á næstu göngum árið 2027 en segir ekki hvar Innlent Bregðast ekki við bílastæðavanda við skíðasvæði í Reykjavík Innlent Umdeildur skólastjóri í leyfi á meðan úttekt er gerð Innlent Þorleifur Kamban er látinn Innlent Sakborningur enn að störfum og atvikið ekki tilkynnt Innlent „Ég er sá sem getur fellt hann“ Erlent Fleiri fréttir Lýsa víðtæku ofbeldi gagnvart eldra fólki og kalla eftir vakningu Vill byrja á næstu göngum árið 2027 en segir ekki hvar Fengu nóg og tóku málin í sínar eigin hendur Bregðast ekki við bílastæðavanda við skíðasvæði í Reykjavík Héldu styrktartónleika fyrir kristna flóttamenn Svona stór er nýja moskítóflugan í samanburði Tapaði aftur gegn borginni eftir afdrifaríka rennibrautarferð Sakborningur enn að störfum og atvikið ekki tilkynnt Brotið á Stuðlum ekki tilkynnt og foreldrar taka mál í eigin hendur Sakfelldur fyrir morð og refsing þyngd verulega Kolröng skilaboð að brosa á mynd með ESB í miðjum storminum Prófkjör hjá Sjálfstæðismönnum í Mosfellsbæ Kennarar fara með kjaradeilu fyrir Félagsdóm Fólk komi vonandi sjaldnar með dýr í neyð Umdeildur skólastjóri í leyfi á meðan úttekt er gerð Starfsmaður Múlaborgar játar sök að hluta Bera ábyrgð á þjófnaði gámsins en sleppa með skrekkinn Kjósa um sex efstu í prófkjöri hjá Sjálfstæðisflokki í Hafnarfirði Hafi kallað drenginn „grenjuskjóðu“ Umboðsmaður barna segir að staðan í meðferðakerfinu sé grafalvarleg Þreyttir íbúar Grjótaþorpsins fá einstefnu ÍSÍ ætli að skoða kostnað við æfingagjöld barna Moskító mætt á Suðurland Tillaga Sjálfstæðismanna um gjaldfrjáls stæði á messutíma felld Hellti bjór yfir slasaðan hjólreiðamann sem lá í götunni Veðmálafyrirtækin geti eflt íþróttafélög til muna Framlag Íslands til Parísarsamningsins óháð ESB-markmiði Loftgæði verði áfram slæm Árelía kveður borgarpólitíkina Tilfinningar í þingsal og Inga brosir hringinn Sjá meira