„Mjög stoltur af liðinu“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 9. október 2025 21:48 Steinar Kaldal er þjálfari nýliða Ármanns. vísir/anton Steinar Kaldal, þjálfari Ármanns, hrósaði sínum mönnum eftir tapið fyrir KR, 89-115, í Laugardalshöllinni í dag. Þetta var fyrsti heimaleikur Ármenninga í efstu deild í 44 ár.
Líkt og gegn Álftanesi lék Bandaríkjamaðurinn Dibaji Walker ekki með Ármanni í kvöld og þá meiddist Cedrick Bowen snemma leiks. „Ég er bara mjög stoltur af liðinu. Við erum þunnskipaðir í kvöld og það vantar mjög marga í liðið. Ég er ánægður með þá sem spiluðu,“ sagði Steinar við Vísi eftir leik. „Við fengum það sem mér fannst vanta frá síðasta leik; að menn væru að sýna smá hjarta í því sem þeir voru að gera. Ég var fyrst og fremst að horfa á það í þessum leik,“ sagði Steinar. „Síðan gerist það að þeir eru fleiri, með breiðari hóp og meiri hæð og halda áfram að keyra á okkur. Það verður bara erfitt. Þeir hittu frábærlega í fyrri hálfleiknum og voru með sextíu prósent þriggja stiga nýtingu. Á meðan vorum við með tuttugu prósent skotnýtingu sem er ekki heldur gott. Það gerir það einnig að verkum að það er töluverður munur á liðunum.“ Steinar segist ekki alveg viss hvað kom fyrir Cedrick í upphafi leiks. „Hann fór bara út af á börum. Það var eitthvað vesen á bakinu á honum. Ég veit ekki nákvæmlega hvað það er,“ sagði Steinar sem gengur mun sáttari frá þessum leik en leiknum gegn Álftanesi. „Miklu sáttari en það er auðvitað leiðinlegt að byrja deildina bara án Bandaríkjamannsins sem á að vera okkar sterkasti maður og svo er Arnaldur [Grímsson] á öðrum fætinum. En ég er bara mjög sáttur við menn í dag.“ Steinar vonast til að Walker verði kominn með atvinnuleyfi fyrir næsta leik. „Ég veit það ekki en auðvitað vona ég að það gerist. En ég stilli bara næsta leik í rauninni upp án hans og vona svo að hann verði kominn með leyfi,“ sagði Steinar að lokum.
Bónus-deild karla Ármann KR Mest lesið Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Fótbolti Lögreglumenn dulbjuggu sig sem lukkudýr HM fyrir fíkniefnaaðgerð Fótbolti Beckham fékk sína stjörnu á götuna frægu í Hollywood Fótbolti Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Körfubolti Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Siggi Raggi með NSÍ á toppnum Fótbolti Katarmenn stálu stiginu með marki í uppbótartíma Fótbolti „Ennþá er boltinn ekki að fara inn í markið“ Íslenski boltinn Uppgjör: FH komið á toppinn Fótbolti Uppgjörið: Valur – Þór/KA 0-0 | Markalaust í bragðdaufum leik á Hlíðarenda Fótbolti Fleiri fréttir Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Sjá meira