Ronaldo kenndi IShowSpeed að taka víkingaklappið Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 19. október 2025 10:01 IShowSpeed er mikill aðdáandi Cristianos Ronaldo. Cristiano Ronaldo skoraði glæsilegt mark í sigri Al Nassr í gær og eftir leikinn fagnaði hann með einum sínum mesta aðdáanda.
Portúgalinn skoraði eitt mark, lagði upp annað og klikkaði á vítaspyrnu þegar Al Nassr sigraði Al Fateh, 5-1, í sádiarabísku úrvalsdeildinni í gær. Landi hans, Joao Félix, skoraði þrennu fyrir Al Nassr og franski landsliðsmaðurinn Kingsley Coman var einnig á skotskónum. Samfélagsmiðlastjarnan IShowSpeed sér ekki sólina fyrir Ronaldo og hann var mættur á leikinn í gær. Eftir leikinn sýndi Ronaldo IShowSpeed hvernig ætti að slá taktinn í hinu fræga víkingaklappi. IShowSpeed gerði eins og honum var sagt að gera og Ronaldo klappaði í takt ásamt stuðningsmönnum Al Nassr. Cristiano Ronaldo personally walked up to IShowSpeed and taught him how to play the Al-Nassr Ultra Drums pic.twitter.com/ZNWZtlMKNu— FearBuck (@FearedBuck) October 18, 2025 Eftir leikinn rættist svo draumur IShowSpeed þegar Ronaldo fylgdi honum á Instagram og deildi meira að segja mynd af þeim á samfélagsmiðlinum. Al Nassr hefur unnið alla fimm leiki sína á tímabilinu með markatölunni 19-2 og er með fjögurra stiga forskot á toppi sádiarabísku deildarinnar. Ronaldo hefur skorað fimm af nítján mörkum Al Nassr í deildinni en Joao Félix er kominn með átta.
Sádiarabíski boltinn Mest lesið Þjóðhátíð er Gunnar Lárus kom heim á Reyðarfjörð Sport ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Íslenski boltinn Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Íslenski boltinn Como - Manchester United | Fámennt United-lið mætt til Ítalíu Fótbolti Hreinskilin hnefaleikakona: „Ég er hætt að vera næs“ Sport Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Enski boltinn „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Enski boltinn Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Körfubolti Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Enski boltinn Fleiri fréttir Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Lille - Galatasaray | Hákon og félagar fá Tyrki í heimsókn Como - Manchester United | Fámennt United-lið mætt til Ítalíu Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Liverpool með fjögurra marka endurkomu Mark Masons Greenwood í Meistaradeildinni dugði ekki „Átti erfitt með að bæta Barça“ Snýr Trent aftur til Liverpool? Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Framlengir í Vesturbænum Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Sjáðu mörkin sex og rauða spjaldið í Dalnum Danskir vallarstarfsmenn þurfa að vinna á næturna vegna Evrópuleikja Sjá meira