Golf

Jack Nicklaus fær sex milljarða í meiðyrðamáli

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jack Nicklaus var kallaður Gullbjörninn enda í sérflokki í golfheiminum á meðan hann var upp á sitt besta.
Jack Nicklaus var kallaður Gullbjörninn enda í sérflokki í golfheiminum á meðan hann var upp á sitt besta. Getty/Andy Lyon

Sigursælasti kylfingur sögunnar vinnur ekki aðeins á golfvöllunum heldur einnig í dómsölunum. Jack Nicklaus fagnaði sigri í meiðyrðamáli í Flórídafylki.

Kviðdómur í Flórída-fylki dæmdi Jack Nicklaus fimmtíu milljónir Bandaríkjadala í skaðabætur á mánudaginn í meiðyrðamálsókn sinni gegn Nicklaus Companies, sem er fyrirtæki í eigu milljarðamæringsins Howard Milstein.

Hinn 85 ára gamli Nicklaus höfðaði málið vegna yfirlýsinga sem Milstein og aðrir starfsmenn Nicklaus Companies gáfu í fyrri málaferlum fyrir dómstóli í New York. Niðurstaðan eru sex milljarðar íslenskra króna í miskabætur.

Í meiðyrðamálsókninni hélt Nicklaus því fram að stefndu hefðu gefið í skyn að hann hefði íhugað 750 milljóna dollara samning um að verða andlit LIV Golf League, sem er fjármögnuð af aðilum í Sádi-Arabíu. Þeir áttu síðan að hafa dreift þessum fölsku fullyrðingum til fjölmiðla.

Jack Nicklaus vann 117 golfmót á ferlinum og þar af vann hann átján sinnum risamót eða fleiri en nokkur annar kylfingur í sögunni.

„Það er alltaf erfitt í meiðyrðamálum að sanna tjón á mannorði, því sérstaklega fyrir mann eins og Jack,“ sagði lögmaður Nicklaus, Eugene Stearns, við ESPN á mánudag.

„Ég held að það sem skipti mestu máli hafi verið að deilan sem kom upp fyrir þremur og hálfu ári síðan, þegar fyrirtækið sagði heiminum að Jack væri að selja PGA mótaröðina fyrir sádiarabíska golfið, þegar það var ekki satt. Þannig að við erum ánægð með að réttlæti hafi sigrað,“ sagði Stearns.

Í dómsskjölum skrifuðu lögmenn kylfingsins að embættismaður Nicklaus Companies hefði beðið hann um að hitta fulltrúa Golf Saudi árið 2021 um hönnun golfvallar í Sádi-Arabíu. Á þeim fundi komst Nicklaus að því að Sádarnir vildu að hann tæki að sér forystuhlutverk í LIV Golf.

„Samkvæmt Nicklaus hafði hann engan áhuga á tilboðinu og hafnaði því að hann teldi PGA-mótaröðina vera mikilvægan hluta af arfleifð sinni og ef PGA væri ekki hlynnt nýrri deild vildi hann ekki taka þátt,“ segir í dómsskjölunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×