Klobbaði íslensku strákana og fór á flug á netmiðlum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 28. október 2025 16:30 Tornike Kvaratskhelia er að spila upp fyrir sig með sautján ára landsliði Georgíu. @tornikekvaratskhelia7 Íslenska sautján ára landsliðið vann 5-1 stórsigur á Georgíumönnum í undankeppni en það voru tilþrif eins leikmanns andstæðinganna sem vöktu mesta athygli á netmiðlum.
Hinn fimmtán ára gamli Tornike Kvaratskhelia sýndi mjög flott tilþrif með boltann þegar hann klobbaði leikmann íslenska liðsins. Tornike er yngri bróðir Kvicha Kvaratskhelia, leikmanns Paris Saint Germain og fyrrum leikmanns Napoli. Það hefur auðvitað haft sitt að segja að tilþrif Kvaratskhelia urðu svo vinsæl. Kvaratskhelia spilar nú með Víkingafótboltaakademíunni í heimalandinu. Það gæti breyst fljótt ef einhver erlend félög fara að bjóða í hann. Kvicha Kvaratskhelia yfirgaf Georgíu árið 2019 þegar hann var átján ára gamall. Hann fór fyrst til Rússlands þar sem hann spilaði með Rubin Kazan en var kominn til Napoli 21 árs. Paris Saint-Germain keypti hann fyrir áttatíu milljónir evra í janúar síðastliðnum og hann varð Evrópumeistari á fyrsta tímabili eftir að hafa unnið ítölsku deildina með Napoli tveimur árum fyrr. Tilþrifin með Tornike Kvaratskhelia má sjá hér fyrir neðan. View this post on Instagram A post shared by Rising Ballers (@risingballers)
Georgía Mest lesið Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Þjóðhátíð er Gunnar Lárus kom heim á Reyðarfjörð Sport Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Íslenski boltinn ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Íslenski boltinn „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti Hreinskilin hnefaleikakona: „Ég er hætt að vera næs“ Sport Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Enski boltinn Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Körfubolti Fleiri fréttir Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Liverpool með fjögurra marka endurkomu Mark Masons Greenwood í Meistaradeildinni dugði ekki „Átti erfitt með að bæta Barça“ Snýr Trent aftur til Liverpool? Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Framlengir í Vesturbænum Sjá meira