Rekin eftir að hafa orðið valdur að ógildingu Maradona-réttarhaldanna Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 19. nóvember 2025 07:02 Julieta Makintach tók þátt í að gera heimildamynd um réttarhöld sem hún tók sjálf þátt í. epa/Juan Ignacio Roncoroni Argentínskur dómari hefur verið leystur frá störfum eftir að þátttaka hennar í heimildamynd varð til þess að réttarhöldin yfir heilbrigðisstarfsfólkinu sem annaðist Diego Maradona síðustu ævidaga hans voru ógild.
Sjö læknar og hjúkrunarfræðingar voru ákærðir fyrir að bera ábyrgð á dauða Maradona vegna vanrækslu í starfi. Hann lést af völdum hjartaáfalls í nóvember 2020, skömmu eftir að hafa gengist undir aðgerð vegna blóðtappa í heila. Einn þriggja dómara í málinu, hin 48 ára Julieta Makintach, sagði sig frá því vegna þátttöku hennar í heimildamynd um málið. Hinir tveir dómararnir ákváðu í kjölfarið að ógilda málið. Makintach hefur nú verið rekin af sérstakri nefnd dómara, lögmanna og fleiri aðila og má ekki gegna neinu embætti í dómskerfinu framar. Tekin voru viðtöl við Makintach fyrir heimildamyndina þótt hún reyndi að halda öðru fram. Hún er einnig sökuð um að hafa veitt kvikmyndagerðarfólkinu aðgengi að réttarsalnum tveimur dögum fyrir réttarhöldin sem hún hafði ekki heimild til að gera. Hvorki aðrir dómarar, fjölskylda Maradonas eða sakborningar voru meðvitaðir um að Makintach hefði leyft kvikmyndagerðarfólkinu að taka upp í réttarsalnum. Maradona fannst látinn á heimili sínu 25. nóvember 2020. Hann var sextugur þegar hann lést. Saksóknarar telja að ummönnun argentínska fótboltagoðsins hafi verið verulega ábótavant og átt þátt í andláti hans.
Andlát Diegos Maradona Argentína Mest lesið Mark ársins í Bestu deildinni komið? Íslenski boltinn ÍBV - KR 2-6 | Hrafnar fljúga Íslenski boltinn Víkingur - Stjarnan | Stórleikur í Víkinni Íslenski boltinn Þór Ak. - Fram 1-0 | Aron Birkir hélt markinu hreinu í vígsluleiknum Íslenski boltinn Andrea vann á Íslandsmeti og Stefán meistari eftir æsilegt hlaup Sport Valtar yfir eigendur Chelsea og segir stuðningsmenn fyllast viðbjóði Enski boltinn Valur - FH | Harðhausaslagur á Hlíðarenda Íslenski boltinn „Við litum út eins og þriðji flokkur“ Íslenski boltinn Litlu munaði að illa færi er Bill Clinton birtist óvænt Sport Yamal felldi tár en ætti að ná HM Fótbolti Fleiri fréttir „Geðveikt að fá fulla Þórsstúku á nýjum velli“ Daníel gaf Elíasi ástæðu til að fagna Logi sá um sitt en liðsfélagarnir brugðust Víkingur - Stjarnan | Stórleikur í Víkinni Valur - FH | Harðhausaslagur á Hlíðarenda „Lykilmaðurinn“ Kolbeinn úr leik næstu vikurnar Þór Ak. - Fram 1-0 | Aron Birkir hélt markinu hreinu í vígsluleiknum Aron pirraður: „Algjör óþarfi“ „Tölum saman eftir sex mánuði“ „Við litum út eins og þriðji flokkur“ ÍBV - KR 2-6 | Hrafnar fljúga Mark ársins í Bestu deildinni komið? Yamal felldi tár en ætti að ná HM Kallar eftir þjónustu: „Hver er annars tilgangurinn?“ Besta-spá kvenna 2026: Sjónarmunur á sterkum liðum Trump vill fá Ítalíu á HM í stað Írans Búið spil hjá Tómasi sem þarf að treysta á félaga sína til að ná titlinum Valtar yfir eigendur Chelsea og segir stuðningsmenn fyllast viðbjóði Sjáðu Haaland skjóta Manchester City á toppinn Furðaði sig á spurningu í viðtali eftir leik: „Fullkomlega ósammála“ Sex vítaspyrnur fóru forgörðum í taugatrekkjandi undanúrslitaleik Börsungar færast nær titlinum Í fyrsta sinn í úrslitaleikinn síðan 2020 ÍA - KA 1-1 | Færanýting fjandans Haaland skaut Manchester City á toppinn „Ég er ekkert órólegur“ „Það er eiginlega óskiljanlegt“ Bikarþynnka herjaði á Orra og Real Sociedad Keflavík 0-0 Breiðablik | Litlaust í fyrsta grasleiknum Lærisveinar Freys komnir í úrslitaleik norska bikarsins Sjá meira