Gera ráð fyrir svipuðum hagvexti og í Covid Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar 19. nóvember 2025 20:02 Það var fjölmennt á fundi Peningastefnunefndar í Seðlabankanum í morgun. Ásgeir Jónsson kynnt ákvörðun nefndarinnar. Þau Guðmundur Ásgeirsson frá Hagsmunasamtökum heimilanna og Erna Björg Sverrisdóttir aðalhagfræðingur Arion banka segja nefndina hafa tekið nýja stefnu. Vísir Lánskjör heimilanna hafa versnað verulega vegna vaxtamálsins svokallaða að sögn Seðlabankastjóra. Peningastefnunefnd hafi því ákveðið að lækka stýrivexti þrátt fyrir þráláta verðbólgu. Áhrif áfalla sem dunið hafa á hagkerfinu undanfarið eigi hins vegar eftir að koma í ljós. Hagvaxtarspá fyrir næsta ár hafi versnað verulega og sé svipuð og í Covid. Peningastefnunefnd lækkaði stýrivexti bankans um núll komma tuttugu og fimm prósentur í morgun og eru meginvextir bankans nú 7,25 prósent. Flest fjármálafyrirtæki höfðu spáð óbreyttum stýrivöxtum því verðbólga mælist enn 4,3 prósent meðan fimm ára verðbólgumarkmið bankans er um 2,5 prósent. Miða ekki lengur við verðbólgu heldur verri lánsskilyrði Peningastefnunefnd hafði við síðustu vaxtaákvarðanir gefið út að verðbólga þyrfti að hjaðna meira svo hægt væri að lækka vexti. Við ákvörðunina í dag var hins vegar fyrst og fremst litið til verri lánskjara heimila og það vegna viðbragða fjármálafyrirtækja við dómi Hæstaréttar í vaxtamálinu svokallaða. „Við höfum séð töluverða herðingu á fjármálaskilyrðum eftir dóm Hæstaréttar um lánaskilmála. Við erum að sjá að húsnæðiskaupendur hér á landi fá hærri vexti og verri kjör. Þannig hefur það gerst að aðhald Peningastefnunnar hefur verið að herðast og við ákváðum að bregðast við því með þessari ákvörðun,“ segir Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri. Fullnaðasigur? Þessi viðbrögð bankanna við vaxtadómnum eru líklega ekki það sem Neytendasamtökin bjuggust við þegar hann féll í síðasta mánuði. En við það tækifæri sagði Breki Karlsson formaður samtakanna: „Ég sé ekki betur við fyrstu sýn að þetta sé fullnaðarsigur. Bankanum er óheimilt að nota huglæga þætti til viðmiðunar við vaxtaákvörðun.“ Hvort dómur Hæstaréttar í vaxtamálinu hafi haft þveröfug áhrif á neytendur svarar Ásgeir: „Það eru fleiri dómar eftir en áhrif þessa dóms hafa verið að lánskjör hafa að einhverju leyti þrengst.“ Hann segir ekki hlutverk Seðlabankans að dæma um viðbrögð bankanna við dómnum. „ Það er svo sem ekki okkar að vera sammála eða ósammála þessum viðbrögðum við dómnum, við höfum bara reynt að bregðast við stöðunni,“ segir Ásgeir. Svipað og í Covid Ásgeir segir áhrif áfalla sem dunið hafa á raunhagkerfinu eftir að koma í ljós en skýr merki séu um kólnun. Búist sé við minni hagvexti á næsta ári en áður hafði verið spáð. „Við gerum ráð fyrir að hagvöxtur verði töluvert minni en við spáðum og verði innan við eitt prósent á næsta ári. Við þurfum að leita aftur til Covid til að finna eins lítinn hagvöxt.“ segir Ásgeir. Blendin viðbrögð við ákvörðuninni Það hafa verið blendin viðbrögð við ákvörðun Peningastefnunefndar. Formaður Starfsgreinasambandsins sagði til dæmis að honum fyndist þetta aumingjaleg lækkun, hefði viljað sjá lækkun um 50 punkta. Framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins fagnaði hins vegar ákvörðuninni sem hafi verið óvænt og þvert á spár. Það sé hins vegar fullt tilefni til lækkunar því hagkerfið sé að kólna hratt. Víðtæk áhrif vaxtamálsins Peningastefnunefnd fékk margar spurningar úr sal þegar stýrivaxtaákvörðunin var kynnt í morgun. Salurinn var nánast fullur og greinilega mikill áhugi á skýringum nefndarinnar. Meðal þeirra sem sátu fundinn var Erna Björg Sverrisdóttir aðalhagfræðingur Arion banka. „Greiningardeildir bankanna voru búnar að gera ráð fyrir óbreyttum vöxtum því verðbólga er 4,3 prósent, sem er yfir markmiði. Nefndin horfði hins vegar frekar til umróts á lánamarkaði sem verður til þess að þau lækka vexti núna en ekki öll áföllin í raunhagkerfinu. Þetta er ekki gert til að draga úr aðhaldi á kerfinu heldur til að mæta þessu umróti á kerfinu,“ segir Erna. Aðspurð um hvort vaxtamálið hafi mögulega haft neikvæð áhrif á neytendur í ljósi þess að lánsskilyrði hafi versnað svarar Erna: „Jú það var lagt upp með það að þetta mál ætti að bæta hag neytenda en það sem við höfum séð núna er að það hafa verið miklar breytingar á lánsframboði. Það er ekki endanlegt hver niðurstaðan verður, það eru fleiri mál sem eiga eftir að koma. En það ríkir mikil óvissa sérstaklega þegar kemur að verðtryggðum lánum,“ segir Erna. Áhugaverður rökstuðningur Guðmundur Ásgeirsson formaður Hagsmunasamtaka heimilanna var á fundinum í morgun og hefði viljað sjá snarpari vaxtalækkun. „Við hefðum viljað sjá meiri lækkun, þetta er algjört lágmark. Þá hefðum við viljað sjá þetta gerast fyrr. Það sem er áhugavert við þessa ákvörðun er rökstuðningurinn sem virðist aðallega byggjast á umróti á lánamarkaði í kjölfar dóms í vaxtamálinu sem ég vil frekar kalla skerðingu á framboði verðtryggra lána til heimila. Það hefur verið baráttumál okkar að losna við verðtrygginguna. Það verður mjög áhugavert að sjá hvaða áhrif þessi breyting á lánaframboði bankanna, sérstaklega á verðtryggðum lánum, mun hafa á lánamarkaðinn. Þetta mál er líka beinlínis að hafa áhrif á heildarhagkerfið í gegnum þessa ákvörðun Peningastefnunefndar,“ segir Guðmundur. Seðlabankinn Verðlag Fjármál heimilisins Neytendur Dómsmál Vaxtamálið Mest lesið Fimm frumkvöðlar: Afarnir, pabbarnir og nú 10 ára sonurinn Atvinnulíf Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Viðskipti innlent Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Viðskipti innlent „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Sjá meira
Það eru fleiri dómar eftir en áhrif þessa dóms hafa verið að lánskjör hafa að einhverju leyti þrengst.“
Seðlabankinn Verðlag Fjármál heimilisins Neytendur Dómsmál Vaxtamálið Mest lesið Fimm frumkvöðlar: Afarnir, pabbarnir og nú 10 ára sonurinn Atvinnulíf Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Viðskipti innlent Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Viðskipti innlent „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Sjá meira