KR með yfirburði í nýliðaslag og Haukar rétt sluppu á Króknum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. desember 2025 21:04 Haukar og KR unnu leiki sína í kvöld. Tinna Guðrún Alexandersdóttir skoraði 16 stig fyrir Haukaliðið. vísir/Anton KR og Haukar unnu góða sigra í Bónusdeild kvenna í körfubolta í kvöld en þá hófst tíunda umferð deildarinnar.
Haukar virtust ætla að landa öruggum sigri á Króknum en heimakonur gáfust ekki upp og voru næstum því búnar að stela sigrinum í lokin. KR hefur komið mörgum á óvart með góðri frammistöðu en Íslandsmeistarar Hauka hafa valdið talsverðum vonbrigðum. Þær unnu sinn annan leik í röð í kvöld en rétt sluppu með sigurinn. KR-konur unnu ellefu stiga sigur á Ármanni í uppgjöri nýliðanna, 79-68. KR hefur unnið sjö af tíu leikjum sínum en Ármannsliðið hefur aðeins unnið einn leik. KR vann átján stigum yfir fyrir lokaleikhlutann, 62-44, en Ármenningar lögðu stöðuna í lokaleikhlutanum. Molly Kaiser skoraði 25 stig fyrir KR, Eve Braslis bætti við 17 stigum og 9 fráköstum en Rebekka Rut Steingrímsdóttir var með 13 stig. Nabaweeyah Mcgill skoraði 19 stig fyrir Ármann og Jónína Þórdís Karlsdóttir var með 16 stig. Haukakonur unnu fjögurra stiga sigur á Tindastól á Sauðárkróki, 93-89, eftir að hafa verið 52-46 yfir í hálfleik. Tindastóll stóð í Haukaliðinu framan af leik ekki síst fyrir stórleik Spánverjans Mörtu Hermida. Haukaliðið var hins vegar komið með góða forystu fyrir lokakaflann. Heimakonur gáfust ekki upp og voru nálægt því að vinna upp muninn í blálokin eftir átta stig í röð á skömmum tíma. Marta Hermida endaði leikinn með 42 stig, 8 fráköst og 10 stoðsendingar. Inga Sólveig Sigurðardóttir skoraði 16 stig fyrir Stólana og Oceane Kounkou var með 20 stig. Amandine Justine Toi skoraði 22 stig fyrir Hauka og Krystal-Jade Freeman var með 20 stig og 14 fráköst. Tinna Guðrún Alexandersdóttir skoraði 16 stig og Sólrún Inga Gísladóttir kom með 12 stig og fjóra þrista inn af bekknum.
Bónus-deild kvenna Haukar KR Ármann Tindastóll Mest lesið Gunnlaugur æfir með þeim besta í heimi fyrir U.S. Open Golf Grafarþögn í útsendingu Suður-Afríku eftir leik Fótbolti Afhjúpa minningarstein Steina Gísla Íslenski boltinn Phil Mickelson rekinn úr klúbbi fyrir að snerta konu óviðeigandi Golf Lélegasti framherji mótsins strax fundinn Sport Bestu-deildarpar á von á barni saman Íslenski boltinn Almar ekki í kassanum Fótbolti Hoppuðu og skríktu af gleði þegar símtalið loksins barst Fótbolti Hver er flottasta treyjan á HM? Fótbolti Sjáðu Elísabetu vinna titilinn með fjögurra sentímetra mun Sport Fleiri fréttir Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Sjá meira