Alexander vann úrvalsdeildina: „Ég stefni á Ally Pally! Ég er ekki búinn hérna“ Egill Birgisson skrifar 7. desember 2025 10:17 Alexander Veigar vann oddasett fyrir titlinum eftir spennandi viðureign í troðfullri höll. Sýn Sport Úrslitakvöldið í úrvalsdeildinni í pílukasti fór fram á Bullseye í gær þar sem Alexander Veigar Þorvaldsson og Hallgrímur Egilsson mættust í hreinum úrslitaleik um sigurinn árið 2025. Sá fyrrnefndi fagnaði sigri eftir hörkuviðureign.
Gríðarleg stemning var á Snorrabrautinni þar sem mikill fjöldi fólks mætti til að styðja sína menn. Alexander byrjaði betur og vann fyrsta settið 3-1 og þar með kominn 1-0 yfir í settum á meðan Hallgrímur virtist ekki finna sig eftir fyrstu leggina. Alexander vann einnig annað settið nokkuð þægilega og virtist hreinlega ætla að sópa leið sína að titlinum. Halli svaraði þó fyrir sig í þriðja settinu, reynslan sýndi sig, og 3-1 sigur í því setti þýddi að staðan var orðin 2-1. Báðir voru þá farnir að hitna og fór fjórða settið alla leið í oddalegg þar sem báðir voru komnir í útskot. Þá kom smá stress í menn og náði Halli á endanum að loka tvöföldum 16 og tryggja sér oddasett um titilinn. Orkan var gríðarleg í húsinu og spennan sérlega mikil þegar að fimmta og síðasta setti kvöldsins var komið. Í oddasetti í úrslitaleik þarf að vinna settið með tveimur leggjum og framan af stefndi allt í bráðabana. Halli Egils náði ekki að taka út 32 til að koma sér í 1-0 og Alexander refsaði fyrir þau mistök. Hann vann fyrsta legg gegn kasti. Halli svaraði í legg 2 með að vinna hann gegn kasti og jafnaði oddasettið. Í þriðja legg náði Alexander enn og aftur að vinna gegn kasti og koma sér í 2-1 og þurfti þá aðeins einn legg í viðbót til að verða meistari. Töffaraskapur í síðasta leggnum Alexander byrjaði fjórða legginn ekki vel og gerði aðeins 29 á meðan Halli gerði 125 á móti og stefndi í bráðabana. Þá steig Alexander upp og setti í 180. Hann fékk 96, 100 og 78 næstu þrjár heimsóknir og skildi Halla eftir í reyk, staðan 178-18. Fólk á svæðinu var visst um að Alexander myndi fara þægilegu leiðina til að tryggja sér titilinn með því að splitta 18 og eiga þannig þægilegri leið að útskoti. Hann var ekki á þeim buxunum og tók út 18 með því að kasta í tvöfaldan níu og tryggja sér þannig Úrvalsdeildartitilinn 2025. Óhætt er að segja að allt hafi farið á hvolf í húsinu. Klippa: Alexander Veigar vann úrvalsdeildina á troðfullum Bullseye Stefnir hærra Alexander var tekinn tali af Andra Má Eggertssyni eftir að sigurinn var í höfn á Bullseye í gær og tilfinninganar eðlilega miklar. „Ég held ég hafi logið í gær þegar ég sagði að þetta væri ekki neitt, meinti ekki neitt. Það er aðeins öðruvísi tilfinning þegar bikarinn er kominn í hendurnar,“ segir Alexander. Hvað fannst þér standa upp úr her í kvöld? „Bara crowdið, djöfull var þetta flott báðu megin, sérstaklega mín megin, liðið að mæta styðja mig, fjölskyldan, vinir, bara allir,“ segir Alexander sem spilar einnig með körfuboltaliði Grindavíkur sem var mætt að styðja við bakið á honum. „Það er aðeins skemmtilegra að hafa DeAndre Kane hvetja sig í pílu en körfubolta,“ segir hann léttur. Segðu okkur frá þessu lokaútskoti. „Ég var að hugsa um að splitta 18 að fara í sex eða 10 en hugsaði bara og afsakið orðbragðið bara fokk it ég klára þetta.“ segir Alexander sem hefur átt gott ár og ætlar að loka því á heimsókn á HM í pílukasti. „Búið að vera mjög gott ár hjá mér þetta er 5 eða 6 stóri titilinn sem ég tek á þessu ári og svo toppum við bara þetta með að fara í Ally Pally yfir jólin,“ segir Alexander sem stefnir á að vera uppi á sviði í Alexandra Palace frekar en í stúkunni áður en langt er um liðið. „Ég stefni á Ally Pally! Ég er ekki búinn hérna.“
Pílukast Mest lesið Boltinn í vír og Norðmenn segja algjört hneyksli að markið skyldi standa Fótbolti Hökta áfram og mæta Englandi í undanúrslitum Fótbolti Metið kolféll í Laugavegshlaupinu Sport Hissa á útspili Haalands Fótbolti Bellingham sendi sára Norðmenn heim Fótbolti Súrrealískt að spila golf með Trump Fótbolti Tindastóll mætti ekki til leiks Íslenski boltinn Ken Bates látinn Enski boltinn Kinu Rochford sagður myrtur Körfubolti Héldu flugi eftir sigurinn á Íslandi og drottna yfir EM U19 Fótbolti Fleiri fréttir Hökta áfram og mæta Englandi í undanúrslitum Bellingham sendi sára Norðmenn heim Boltinn í vír og Norðmenn segja algjört hneyksli að markið skyldi standa „Ástæðan fyrir því að það er talað um að hún sýni ekki nóg“ Héldu flugi eftir sigurinn á Íslandi og drottna yfir EM U19 Metið kolféll í Laugavegshlaupinu Hissa á útspili Haalands Hélt haus eftir hrun og vann vinkonu sína í úrslitum Wimbledon FH leiðir í bikarnum og ungir ÍR-ingar fögnuðu titli Tap fyrir Þjóðverjum í skrautlegum leik „Frakkar eiga að óttast okkur“ Óðinn óstöðvandi í stórsigri Messi ræður sjálfur hvort hann taki vítin Klopp samþykkir að taka við Þýskalandi Ken Bates látinn Suður-Afríka syrgir landsliðsmann skömmu eftir HM Kinu Rochford sagður myrtur Tindastóll mætti ekki til leiks Súrrealískt að spila golf með Trump Með Haaland á toppi vinsældalistans Annar stórsigur strákanna á EM Strákarnir áfram í milliriðil á EM Maður dagsins á HM: Tveimur árum of seinn á veitingastaðinn Eiga Englendingar kryptónítið hans Haaland uppi í erminni? Segir að það þurfi að skipta oftar um gervigras á Íslandi Nefndi nýja dýrategund eftir markverðinum Sér ekki eftir því að hafa valið Marokkó fram yfir Frakkland Segir að enska liðið verði að „losa um handbremsuna“ gegn Noregi Klopp um flugferðina þegar hann ætlaði að fá Mbappé til Liverpool Svíar setja ríginn til hliðar og segjast halda með Noregi Sjá meira