Sauð upp úr við athugasemd um að vændiskonan væri karl Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 9. desember 2025 12:00 Karlmaðurinn kom á fund vændiskonunnar á hóteli í Reykjavík í maí 2023. Þau ætluðu að hittast með „kynferðislegan leik“ í hug að sögn vændiskonunnar. Vísir/Vilhelm Erlendur karlmaður hefur verið dæmdur í þrjátíu daga skilorðsbundið fangelsi fyrir kaup á vændi og að hafa ráðist á vændiskonuna sem hann taldi vera karlmann. Árásarmaðurinn bar fyrir sig neyðarvörn sem dómurinn tók til skoðunar en taldi hann þó hafa gengið of langt. Athygli vekur að héraðsdómur nafngreinir karlmanninn sem er nýbreytni í vændiskaupamálum.
Það var í maí 2023 sem kona á svölum í Reykjavík varð vör við hálfnakta konu við hótel í Reykjavík sem leitaði hjálpar. Þegar lögreglu bar að garði sagði fáklædda konan að karlmaður hefði ráðist á sig og stolið síma hennar og reiðufé. Hann hefði svo hlaupið á brott. Í ljós kom að konan var vændiskona og þau höfðu mælt sér mót á hótelherbergi í höfuðborginni. Þangað hefði hann mætt, hún verið fáklædd og hann sett umsamdar þrjátíu þúsund krónur í reiðufé á mublu í herberginu. Vændiskonan sagði að allt hefði farið í háaloft þegar karlmaðurinn hefði verið ósáttur við að þurfa að nota smokk. Karlmaðurinn sagði hins vegar að runnið hefðu á hann tvær grímur þegar hann fór að gruna að vændiskonan væri í raun karlmaður. Konan lýsti því hjá lögreglu að maðurinn hefði tekið smokkinn af sér og orðið árásargjarn. Hún hefði tekið upp símann og hótað að hringja á lögreglu. Við það hefði maðurinn tekið af henni símann og kýlt hana með krepptum hnefa. Hún hefði dottið á gólfið og maðurinn ráðist á hana svo mjög að hún missti meðvitund. Þegar hún hefði vaknað hefði allt verið blóðugt í kringum hana og maðurinn farinn á brott. Karlmaðurinn kom fyrir dóminn og sagði átökin hafa byrjað þegar hann hefði spurt konuna hvort hún „væri ekki kvenkyns“. Vændiskonan hefði brugðist ókvæða við, farið og sótt málmhlut sem hann taldi vera hníf og ráðist að honum. Vændiskonan hefði kýlt hann og hann brugðist við með því að kýla hana þrjú til fjögur högg þar til hún missti meðvitund. Vændiskonan kom ekki fyrir dóminn en um er að ræða farandverkakonu sem var farin úr landi þegar málið var tekið fyrir. Ekki tókst að hafa upp á henni til að taka skýrslu með fjarfundarbúnaði. Í dómnum er lögregla gagnrýnd fyrir að hafa ekki tekið skýrslu af konunni fyrir dómi þar sem verjandi mannsins gæti spurt lykilspurninga. Vegna þessa var framburður konunnar í skýrslu hjá lögreglu ekki lagður til grundvallar. Karlmaðurinn játaði að hafa kýlt konuna þrisvar til fjórum sinnum í samræmi við áverka á konunni. Karlmaðurinn sagðist þó hafa verið í neyðarvörn og krafðist sýknu vegna þess. Samkvæmt almennum hegningarlögum er það verk refsilaust sem menn vinna af neyðarvörn að því leyti sem nauðsynlegt er til að verjast eða afstýra ólögmætri árás. Þó ber að gæta þess við neyðarvörn að beita ekki vörnum sem séu augsýnilega hættulegri en árásin sjálf. Þótt karlmaðurinn hefði talið að konan hefði verið með hníf þá fannst enginn hnífur á vettvangi. Konan fór þó í tvígang út af herberginu og hefði getað losað sig við hnífinn í þau skipti. Lögregla rannsakaði ekki vettvanginn með tilliti til þess hvort þar hefði verið hnífur. Var lagt til grundvallar að konan hefði verið með hlut úr málmi þótt ekki væri hægt að fullyrða að um hníf væri að ræða. Þá kom til skoðunar að karlmaðurinn sagðist hafa óttast um líf sitt enda hefði vændiskonan verið talin um tveir metrar á hæð og hundrað kíló. Þá bar einn lögreglumaðurinn að hún hefði verið með getnaðarlim, það hefði hann séð vegna gegnsæs klæðnaðar, og karlmannleg að vexti. Dómari taldi bæði tvö því hafa verið áþekk á hæð og þyngd. Því væri ekki hægt að fullyrða að annað hefði haft líkamlega yfirburði yfir hitt. Þá hefði verið komist að þeirri niðurstöðu að vændiskonan hefði átt upptökin að átökunum með því að veitast að manninum og slá hann. Féllst dómurinn á það með manninum að honum hefði verið nauðsynlegt að ákveðnu marki að grípa til líkamlegrar valdbeitingar til að verjast árásinni enda þau jöfn að burðum og hún mögulega með hníf. Á hinn bóginn hefði ekki verið sýnt fram á að karlmaðurinn hefði þurft að kýla vændiskonuna ítrekað í höfuðið svo hún rotaðist. Þær varnarathafnir hefðu verið óþarflega hættulegar fyrir líf hennar enda hefði hann getað opnað dyrnar og farið í burtu. Þótti þrjátíu daga skilorðsbundið fangelsi hæfileg refsing fyrir karlmanninn. Athygli vekur að ákærði er nafngreindur í dómnum sem er nýbreytni hér á landi þegar kemur að dómum yfir vændiskaupendum. Rætt hefur verið um það um árabil af hverju dómstólar birta ekki nöfn vændiskaupenda. Þeir sem helst hafa talað fyrir því hafa nefnt þann fælingarmátt sem felist í því.
Dómsmál Vændi Reykjavík Mest lesið Hellisheiði lokuð í báðar áttir vegna umferðarslyss Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Erlent Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Innlent Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Innlent Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Innlent Fleiri fréttir Hellisheiði lokuð í báðar áttir vegna umferðarslyss Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Vantar sex milljónir til að halda Edduna Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fæti Sjá meira