Þessi smurðu mest á reikning Jommunnar Magnús Jochum Pálsson skrifar 23. desember 2025 13:54 Smurbrauðið á Jómfrúnni er gott en ríkisstofnanir eru misduglegar að versla þar. Árið 2024 voru auk Háskóla Íslands ýmiss ráðuneyti mjög dugleg. Aðsend/Vísir/Vilhelm/Ívar Fannar Áhugakona um smurbrauð og tölfræði rýndi í opna reikninga ríkisins til að sjá hve mikið ríkisstofnanir hafa eytt á Jómfrúnni síðastliðin tvö ár. Háskóli Íslands er smurbrauðsóðasta stofnunin bæði árin en svo voru nokkur ráðuneyti ansi öflug í fyrra.
Sara Þöll Finnbogadóttir fer árlega með vinahópnum sínum á Jómfrúnna í aðdraganda jólanna, eins og svo margir. Í ár kom hún færandi hendi með „Samanburðarskýrslu um útgjöld hins opinbera til Jómfrúarinnar“ á hittinginn. Háskólinn trónir á toppnum „Það er hefð fyrir því að nokkrir meðlimir vinahópsins séu með skemmtiatriði. Mér datt í hug að mitt skemmtiatriði væri að rýna í Opna reikninga ríkisins til Jómfrúarinnar og setja fram skýrslu. Þetta sló í gegn og vann besta atriði ársins,“ segir Sara Þöll. Sara Þöll með fyrirlestur fyrir vinina. Hvað ertu þá að skoða þarna? „Ég ákvað að bera saman opna reikninga árið 2024 og 2025 og kanna heildarútgjöld á milli ára, hvaða mánuðir eru smurbrauðsmánuðir ársins, hvað er verið að versla og hverjir eru topp tíu kaupendur,“ segir hún. „Það er Háskóli Íslands sem vinnur bæði árin en svo eru ýmis ráðuneyti sem raðast þar á eftir,“ segir Sara um það hverjir tróna á toppnum yfir smurbrauðskaupendur. Hvaða ráðuneyti voru efst? „Árið 2024 er það Háskóla-, nýsköpunar- og iðnaðarráðuneytið, ráðuneyti Áslaugar Örnu, og svo 2025 er það forsætisráðuneyti Kristrúnar Frostadóttur. En forsætisráðuneytið er mjög ofarlega bæði árin. Þau eru alveg óð í smurbrauð,“ segir Sara. Og stutt að labba yfir? Reyndar stutt fyrir flest ráðuneytin. „Ætli það sé ástæðan fyrir því að ráðuneytin eru staðsett niðri í bæ?“ spyr Sara í gríni og hlær. „En mér finnst áhugavert að sjá að Háskóli Íslands sé efst á lista.“ Athygli vekur að útgjöld ráðuneytanna eru nokkuð hærri árið 2024 og 2025 en þá var líka kosningaár. Erfitt er að túlka hlutina frekar og svo flækir líka málin að í forsætisráðuneytinu voru hrókeringar á vormánuðum. Hverjir aðrir en háskólinn og ráðuneytin eru þarna? „Hæstiréttur, ríkislögreglustjóri (sem er ofarlega bæði árin), héraðssaksóknari, landsréttur og Vinnueftirlit ríkisins eru ofarlega á blaði,“ segir Sara. Hversu miklar upplýsingar geturðu séð út úr reikningunum? „Ég get ekki séð að maður A keypti smurbrauð B. En það er hægt að sjá sundurliðun, þetta eru keyptar máltíðir og kaffiveitingar, fundagjöld, risna til starfsmanna, risna (önnur) og önnur matvæli,“ segir Sara en viðurkennir að hún sé ekki nógu vel að sér til að skýra hvern hlut fyrir sig. Fæst smurbrauð í ágúst Hvað er athyglisverðast við þetta? „Þetta er náttúrulega bara grín en mér fannst áhugavert að smurbrauðsmánuðir ársins eru mánuðirnir seinna á árinu, september og október. Heildarsmurbrauðskaup ná alveg yfir þrjár milljónir sem er frekar mörg smurbrauð. Svo er Háskóli Íslands smurbrauðsóðasta stofnun ársins bæði árin,“ segir hún. Sjá má útgjöld milli mánaða árin 2024 og 2025. Sara lét ekki duga að deila skýrslunni með vinum sínum á borðinu heldur færði líka manni á næsta borði hana. „Stefán Einar var þarna að snæða með nokkrum kunningjum mínum, Sigurði Sævari og Baldri Blöndal, þannig ég færði honum eitt eintak af skýrslunni,“ segir hún.
Matur Jól Ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar (2024) Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur (2017-2024) Háskólar Veitingastaðir Rekstur hins opinbera Mest lesið Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Lífið Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapphelduna Lífið Lady Gaga orðin mamma Lífið Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Lífið Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lífið Presturinn sem hataði kristinfræði Lífið Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Lífið „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Lífið „Verstur af öllu er helvítis doðinn, vera heima og vorkenna sér“ Tónlist Pétur og Birgitta nýtt par Lífið Fleiri fréttir „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapphelduna Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Krakkatía vikunnar: Tollering, Sims og Einar Áskell Lady Gaga orðin mamma Herbert kveikti í myndverinu í fyrsta þætti Presturinn sem hataði kristinfræði Fréttatía vikunnar: Þagnargreiðsla, tannbursti og hálfvitar Sökuð um að siga fylgjendum á móður fyrrverandi Iceguys í erlendum raunveruleikaþætti TikTok-stjörnur fjölga mannkyninu Pétur og Birgitta nýtt par Sigrún Ósk mætt á RÚV Saga um par með Downs og dverga reyndist tröllasaga Hvað veistu um... gönguleiðir? „Ég þurfti að segja heiminum að þú værir með krabbamein“ Persónuleg Vala Matt opnar sig um einkalífið Fallegar kveðjur og ósagðar sögur af meistara grínsins Faldi diktafóna, tók myndir og át til að fanga stemminguna Uppeldisfræðingurinn reyndist vel sósuð fótboltabulla Öldrunarlæknir og verkfræðingur selja miðbæjarperlu Ungfrú Austurríki látin aðeins 22 ára Leiðir skilja hjá leikhúspari Stærðarinnar hola gleypti innkeyrslu Cage Nornir komu saman á miðilsfundi Átti óheillavænlegt samtal við Kennedy fyrir flugslysið: „Ég þarf ekki aðstoðarflugmann“ Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks South Park verður South America Kappsmál sett á ís Sjá meira