Sleppir ekki pítsunum þrátt fyrir eitt óhappatilvik Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar 29. desember 2025 20:15 Pepperónípítsan reyndist við nánari athugun vopnuð hnífi. Kristján Óli Níels Sigmundsson Dyggur viðskiptavinur Krónunnar rak upp stór augu þegar hann uppgötvaði að hnífsblað leyndist í innpakkaðri frosinni pítsu í gær. Sá lét hinn óvænta fund ekki á sig fá, skilaði pítsunni aftur í Krónuna í skiptum fyrir aðra af sömu tegund, sem þó var laus við öll hnífsblöð.
Kristján Óli Níels Sigmundsson rekur söguna í samtali við fréttastofu, en fundurinn vakti mikla athygli á Facbeook-hópnum Matartips í gær. Pítsan var keypt í Krónunni Reykjanesbæ og er af tegund sem Kristján kaupir iðulega. „Við erum að taka pítsuna úr pakkningunni þegar svo heppilega vill til að hún snýr öfugt. Þá blasir hnífur við inni í pakkningunni, alveg ágætlega stór hnífur,“ segir Kristján. Sjálfur vinnur hann hjá framleiðslufyrirtæki og grunar að hnífurinn hafi orðið eftir í deiginu þegar það var skorið við framleiðslu. Pítsan var pepperónípítsa af tegundinni Italpizza.Kristján Óli Níels Sigmundsson „Krónan er búin að hafa samband við mig og er komin með pítsuna til sín. Þau ætla að senda hana til framleiðandans sem ætlar að reyna að komast að því hvernig þetta náði að atvikast,“ segir Kristján. Hann kann Krónunni miklar þakkir fyrir skjót viðbrögð og segir ljóst að gæði og öryggi viðskiptavina sé í fyrirrúmi hjá viðskiptavinum. Kristján segist þó ekki hættur að kaupa pítsurnar, sem eru af tegundinni Italpizza. Í raun hafi hann keypt aðra pítsu af sömu tegund þegar hann fór í Krónuna til að skila hinni vopnuðu pítsu. „Það var reyndar ekki til pepperónípítsa þannig að ég keypti með skinku í staðinn. Þetta er svo sem ekki í fyrsta skipti sem ég kaupi svona og finnst þær mjög góðar. Ég hætti ekkert að kaupa svona þrátt fyrir eitt óhappatilvik.“ Guðrún Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar, segir í skriflegu svari til Mbl.is vegna málsins að pítsur með sama lotunúmer hafi verið teknar úr sölu. Málið sé tekið alvarlega.
Pítsur Neytendur Matur Mest lesið Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Viðskipti innlent Dóttirin föst á amerískum tíma og minningar um ást og andarteppu Atvinnulíf Bensínverð hefur lækkað Viðskipti innlent Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Viðskipti erlent Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Viðskipti erlent Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Viðskipti innlent Arion banki hækkar vexti Viðskipti innlent Lúxusbílaframleiðandi bauð íslenskum bræðrum í draumaferð til Kína Samstarf Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Viðskipti erlent Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Löggan bankaði upp á á skírdag „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Grunur um salmonellu í nautahakki Bónus Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Gjaldskylda sett á við Egilshöll Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Skattalækkanir vinni beinlínis gegn Seðlabankanum Sjá meira