Er áramótaheitið árið 2026 betri skjávenjur? Anna Laufey Stefánsdóttir skrifar 1. janúar 2026 09:01 Ertu komin með nóg af stafræna áreitinu og langar að finna aðeins meira jafnvægi í skjánotkun á nýju ári? Velkomin í hópinn. Nú er nýtt ár gengið í garð og margir komnir í gírinn að setja sér stór og smá markmið fyrir árið fram undan. Tiltektin er byrjuð heima, búið að kaupa kort í ræktina, fullur ísskápur af grænkáli. En hvað með skjánotkunina? Sífellt fleiri eru farin að finna að skjánotkunin er farin að hafa áhrif á ýmsa þætti í lífinu – svefninn, athyglina og tengslin við fólkið sem okkur þykir vænst um. Verður 2026 árið þar sem við öll förum í stafrænt átak? Kannski. En hvar er skynsamlegt að byrja? Við ætlum nú varla að henda snjallsímanum út um gluggann og slökkva á routernum 1. janúar… eða hvað? Sem betur fer þarf þess ekki. Hér eru einföld og raunhæf skref sem geta hjálpað þér að taka aðeins til í stafræna lífinu og skapa meira jafnvægi og vellíðan. 1. Gerðu svefnherbergið skjálaust Taktu alla síma og hleðslutæki út úr svefnherberginu. Það er löngu vitað að snjallsímar hafa slæm áhrif á svefninn okkar – bæði á gæði hans og lengd. Fáðu fjölskylduna með í lið og gerið þetta að sameiginlegu verkefni. Notið þið símann sem vekjaraklukku? Þá er bara að skella sér í næstu heimilistækjaverslun og kaupa klassíska vekjaraklukku. Þær kosta minna en Subway. Ef þið viljið ganga skrefinu lengra má líka íhuga að taka tölvur og sjónvörp út úr svefnherbergjum. 2. Skiptu skrollinu út fyrir lestur En hvernig næ ég þá að sofna? Kannski er þetta góður tími til að bæta við öðru markmiði: að lesa meira. Settu það sem reglu að lesa alltaf smá fyrir svefninn. Lestur er besta leiðin til að snúa við blaðinu og þjálfa okkur í að halda athygli. Það er erfitt fyrst - en eins og hver annar vöðvi þá styrkist hann með æfingunni. Lestur er frábær fyrir svefninn, þar sem hann hægir á huganum og gerir okkur bæði slök og syfjuð. Það þarf ekki nema 1–2 blaðsíður að kvöldi til að byrja með. Smátt og smátt kemst þú loksins í gegnum bókina sem hefur beðið á náttborðinu. 3. Vertu með hugann til staðar á viðburðum Reynum að sleppa símanum á viðburðum – hvort sem það eru tónleikar, flugeldasýningar, brúðkaup, fermingar eða einfalt partý með vinunum. Njótum tónlistarinnar, horfum saman á flugeldana, tölum saman og verum til staðar.. Í stórum veislum hafa gestgjafar oft lagt mikla vinnu, tíma og peninga í undirbúninginn. Að vera virkilega til staðar er ein besta leiðin til að sýna þeim ást og umhyggju. 4. Gerðu þetta með öðrum Allt er auðveldara þegar við erum fleiri. Fáðu vini eða fjölskyldu með þér í lið og ákveðið saman að skilja símann eftir þegar þið hittist – í úlpuvasanum, bílnum eða jafnvel heima. Sumir fara skrefinu lengra og kaupa símageymslu fyrir andyri eða stofu. Þannig verðum við raunverulega saman þegar við erum saman. Hægt er að kaupa Símaklefann hjá Barnaheill og styrkja gott málefni í leiðinni. 5. Notaðu einn skjá í einu Hafðu það að markmiði að vera ekki í mörgum skjám eða nota mörg öpp samtímis. Ekki horfa á sjónvarpið og skrolla á sama tíma. Ekki hlusta á hlaðvarp á meðan þú spilar tölvuleik. Gefðu því sem þú ert að gera fulla athygli og leyfðu þér að njóta. Horfðu á góðar bíómyndir, spilaðu skemmtilegan tölvuleik eða hlustaðu á áhugavert hlaðvarp. Og ekki hlusta á hlaðvörp eða horfa á þætti á tvöföldum hraða. Við erum ekkert að flýta okkur. 6. Skjátími sem samvera, ekki einangrun Það er ekki allur skjátími slæmur. Þegar við notum skjái saman getur hann orðið að góðri samveru. Safnaðu vinum eða fjölskyldu saman í þáttamaraþon, haltu bíókvöld eða tölvuleikjakvöld þar sem við upplifum skemmtunina saman. Sameiginleg upplifun skapar tengsl. Hún færir okkur nær hvort öðru og vinnur gegn einmanaleika. Í stað þess að vera hvert í sínu horni, föst í sitthvorum algorithmanum, erum við saman að njóta sömu sögunnar, hlátursins og augnablikanna. 7. Prófaðu einfaldari lausnir Finnst þér erfitt að standast freistinguna og hefur jafnvel hugleitt að vera alveg án snjallsíma? Það eru til allskonar lausnir. Hægt er að fá sér tímabundið takkasíma til að brjóta notkunarmynstrið. Ef það hljómar hræðilega eru einnig til snjallsímar eins og Balance Phone - sem er með aðgengi að öllum nytsamlegum öppum en lokar fyrir öll ávanabindandi öpp eins og samfélagsmiðla og leiki. Það þarf hvorki að taka öll þessi skref né innleiða þau öll í einu. Veldu það sem hentar þér best – og prófaðu í rólegheitunum. Best er að gera þetta með öðrum, hvort sem það er fjölskyldan eða vinahópurinn. Stafræn velferð snýst ekki um að gera allt fullkomlega – heldur að finna jafnvægi í stafrænni notkun. Við eigum að nota tæknina. Tæknin á ekki að nota okkur. Gangi þér vel í þinni vegferð að finna stafrænt jafnvægi og gleðilegt nýtt ár. Höfundur er tölvunarfræðingur hjá Stafrænni velferð. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Tækni Áramót Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Skoðun Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar