Stjörnulið vikunnar hjá Fantasýn: „Teitur var vondi karlinn“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. janúar 2026 22:11 Teitur Örlygsson í Ljónagryfjunni sem er honum og öðrum Njarðvíkingum afar kær. Vísir/Sigurjón Ólason Strákarnir í Fantasýn hlaðvarpinu, sem fjallar um draumadeildarleik ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta, rýndu meðal annars í lið körfuboltagoðsagnarinnar Teits Örlygssonar í nýjasta þætti sínum.
Albert Þór Guðmundsson fékk að þessu sinni heimsókn frá Borgnesingnum og Tottenham-stuðningsmanninum Ragnari Lúðvík Jónssyni til að ausa úr sínum fantasy-viskubrunni og má hlusta á þáttinn í heild hér að neðan. Þátturinn að þessu sinni ber nafnið „Markaþurrð á nýju ári.“Þátttakendur eru minntir á að hægt er að gera breytingar á sínu liði til klukkan 11 á morgun, laugardag, og að veitt eru verðlaun í hverjum mánuði fyrir árangur í stóru Sýn Sport deildinni.Stjörnulið vikunnar er úr smiðju Teits Örlygssonar sem er um það bil í sæti númer fjögur hundruð þúsund í heiminum. Liður sem hefur vakið lukku „Það er nú liður hérna sem hefur vakið lukku. Þar reynum við að finna þekkta einstaklinga sem eru að spila á Fantasy. Við erum ekkert mikið að pæla í því hvernig þeim gengur vikuna sem við veljum þá,“ sagði Albert Þór Guðmundsson. Liðið hjá Teiti Örlygssyni. „Við höfum verið að lenda hérna á stjórum á mjög slæmu gengi og líka þegar þeir eru á mjög góðu gengi. Í dag erum við bara að hitta þá frekar en venjulega umferð hjá þessum aðila. Þessi aðili hefur verið á góðu skriði en er reyndar að brenna tvö chips sýnist mér, sem eru nú aldrei góðar fréttir,“ sagði Albert Þór.„Þetta er hann Teitur Örlygsson, körfuboltahetja. Getur þú sagt okkur eitthvað um hann Ragnar,“ sagði Albert. Goðsögn hjá Njarðvík „Kannski ekki mikið meira en aðrir vita um hann. Þetta er goðsögn hjá Njarðvík,“ sagði Ragnar. Albert spurði hvort Skallagrímur hafi einhvern tímann lent í honum. „Já, biddu fyrir þér. Að vera alinn upp í níunni í Borgarnesi þá var örfúbolti allsráðandi og Teitur var vondi karlinn,“ sagði Ragnar. „Hann var vondi karlinn,“ sagði Albert. „Njarðvík var með tak á Skallagrím. Ég man þetta óljóst en NJarðvíkingar voru erfiðir. Ef við unnum Njarðvík þá var það eins og að vinna bikar,“ sagði Ragnar. Skallagrímsmenn voru ekki þeir einu enda Teitur tíu sinnum Íslandsmeistari, ellefu sinnum deildarmeistari og sjö sinnum bikarmeistari á ferli sínum með Njarðvík og enginn annar hefur skorað fleiri stig fyrir eitt félag í efstu deild. „Tveir stórir menn“ En hvað með liðið hjá Teiti? „Teitur tekur 38 stig í þessari umferð. Hann er með Donnarumma og Ruben Dias. Það eru tvö hrein mörk þar,“ sagði Albert. „Tveir stórir menn,“ skaut Ragnar inn í. „Hann fer óhefðbundna leið. Hann er til dæmis ekki með Haaland. Það finnst mér áhugavert,“ sagði Albert. Albert velti því fyrir sér hvort Teitur væri að hlusta á þennan þátt en þegar hann sá João Pedro í liðinu hans þá dró hann að til baka.Það má hlusta á allan þáttinn og sjá liðið hans Teits hér fyrir neðan.
Enski boltinn Fantasýn Mest lesið Framkvæmdastjórinn þrífur upp skemmdarverkin Íslenski boltinn Vaktin: Lokadagur félagsskiptagluggans Fótbolti Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Íslenski boltinn „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Enski boltinn KR - Víkingur | Stærsti leikur tímabilsins Íslenski boltinn Söngur og gleði hjá KR-ingum fyrir leik Íslenski boltinn Ekki eitthvað sem Víkingur stendur fyrir Íslenski boltinn Ensku félögin með bókhaldsbrellur Enski boltinn McTominay í hjartaaðgerð Fótbolti Sveindís skoraði í langþráðum sigri Fótbolti Fleiri fréttir Íslendingalið Brann hlaut þungan skell Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann KR - Víkingur | Stærsti leikur tímabilsins Söngur og gleði hjá KR-ingum fyrir leik City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Slær Aron markametið í kvöld? „Þetta er svo lúðalegt“ McTominay í hjartaaðgerð „Þetta er síðasti séns fyrir KR-inga“ Ekki eitthvað sem Víkingur stendur fyrir Framkvæmdastjórinn þrífur upp skemmdarverkin Mbaye til Aston Villa Vaktin: Lokadagur félagsskiptagluggans Albert lánaður til Lazio Ensku félögin með bókhaldsbrellur Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Allt klárt á Meistaravöllum fyrir pallaleikinn í kvöld Arteta vill bæta við hópinn í dag Gata nefnd í höfuð Salah í Tyrklandi „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sjáðu Stjörnuna klára Blika Sveindís skoraði í langþráðum sigri Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Dagskráin í dag: Toppslagur í Bestu deildinni Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez „Stemning í hópnum og við reynum að láta verkin tala“ „Óöruggir og við þurfum að laga það“ Kushner tjáir sig formlega um söluna á heimsmeistaramótinu Barcelona með fullt hús stiga eftir þrjár umferðir Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Sjá meira