Ljóstrað upp um svindl eftir asna á Extraleikunum Sindri Sverrisson skrifar 5. janúar 2026 22:16 Andri Már Eggertsson fékk upplýsingar um ákveðið svindl í Extraleikunum. Sýn Sport Það reyndi á körfuboltahæfileikana í nýjustu grein Extraleikanna, þar sem þeir Tommi Steindórs og Andri Már Eggertsson, eða Nablinn, kepptu í asna. Eftir keppnina kom í ljós að báðir höfðu þegið „ölmusu“ í frjálsíþróttakeppni fyrr í vetur.
Extraleikarnir hafa slegið í gegn í vetur en þeir eru ómissandi hluti af Körfuboltakvöldi Extra sem sýnt er á Sýn Sport Ísland á mánudagskvöldum. Keppni kvöldsins má sjá í spilaranum hér að neðan en þar mættu menn venju samkvæmt kokhraustir til leiks og þóttust býsna sjóaðir í hinum sígilda leik asna. Klippa: Extraleikarnir - Keppni í asna Eftir keppnina var svo komið að því að Stefán Árni Pálsson, stjórnandi þáttarins, ljóstraði upp um ákveðinn skandal í frjálsíþróttahluta leikanna. Eins og einhverjir muna sjálfsagt eftir þá vann Tommi 200 metra spretthlaupið gegn Andra fyrr í vetur. Stefán greindi frá því í kvöld að Tommi hefði þar fengið að byrja framar en hann hefði átt að gera, að áeggjan Silju Úlfarsdóttur sem dæmdi frjálsíþróttakeppnina. Andri kvaðst reyndar hafa fengið upplýsingar um þetta óréttlæti frá frjálsíþróttadómurum og var ósáttur við að svindlað væri á sér. En Stefán benti þá á að Andri hefði fengið léttari kúlu en Tommi í kúluvarpinu, og ákvað því að þessi tíðindi hefðu engin áhrif á stigastöðuna á leikunum, eins og sjá má í spilaranum hér að ofan.
Körfuboltakvöld Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti Svona missti Aron markið sögulega Fótbolti Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Er skrefareglan dauð í NBA? Körfubolti „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Bestu byrjanir táninga í körfunni: Gerði betur en Tryggvi og Jón Arnór Körfubolti Fleiri fréttir Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Er skrefareglan dauð í NBA? Bestu byrjanir táninga í körfunni: Gerði betur en Tryggvi og Jón Arnór Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Uppgjörið: Grindavík-Keflavík 89-75 | Grindavíkurkonur á skriði og eru taplausar á toppnum Reiður LeBron lét stuðningsmenn Knicks heyra það Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Lagði meistarana í fyrsta leik með nýju liði Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Sjá meira