Sjáðu sögulega seint sigurmark og Manchester-liðin missa frá sér sigra Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. janúar 2026 09:04 Harvey Barnes fagnar hér sögulegu sigurmarki sínu fyrir Newcastle í sigrinum á Leeds í gær. Getty/George Wood/ Nú er hægt að sjá hér á Vísi mörkin og alla dramatíkina frá viðburðarríku kvöldi í ensku úrvaldeildinni í gærkvöldi.
Newcastle og Bournemouth skoruðu bæði sigurmörk í uppbótartímanum, Manchester City, Aston Villa og Manchester United töpuðu öll stigum og Chelsea tapaði fyrir nágrönnum sínum í London. Það var nóg um að vera í ensku úrvalsdeildinni í gærkvöldi. Harvey Barnes skoraði tvívegis í endurkomusigri Newcastle á Leeds þar á meðal sigurmarkið á tólfu mínútu í uppbótartíma. Joelinton og Bruno Guimaraes skoruðu hin mörkin en hjá Leeds var Brenden Aaronson með tvö mörk og Dominic Calvert-Lewin skoraði eitt. Sigurmark Barnes setti nýtt met í ensku úrvalsdeildinni því aldrei áður hefur leikmaður skorað sigurmark svo langt inn í uppbótartíma enda voru liðnar næstum því tólf mínútur af honum. Fögnuðurinn var líka gríðarlegur hjá stuðningsmönnum Newcastle. Antoine Semenyo tryggði Bournemouth 3-2 sigur á Tottenham með marki á fimmtu mínútu í uppbótartíma en hann átti bæði afmæli sem og var að spila sinn síðasta leik fyrir félagið áður en hann fór til Manchester City. Evanilson og Eli Junior Kroupi skoruðu hin mörkin en mörk Tottenham skoruðu Mathys Tel og Joao Palhinha. Benjamin Sesko skoraði tvö mörk fyrir Manchester United en það dugði ekki til sigurs í 2-2 jafntefli við Burnley. Sjálfsmark Ayden Heaven kom Burnley yfir en Jaidon Anthony skoraði svo jöfnunarmark á 66. mínútu. Erling Haaland kom Manchester City yfir með marki úr vítaspyrnu á 41. mínútu en Kaoru Mitoma tryggði Brighton & Hove Albion 1-1 jafntefli á Ethiad þegar hann jafnaði metin eftir klukkutíma leik. Raul Jiménez og Harry Wilson skoruðu fyrir Fulham í 2-1 sigri á nágrönnum þeirra í Cheslea en Liam Delap hafði jafnað metin í 1-1. Chelsea var manni færri frá 22. mínútu þegar Marc Cucurella fékk beint rautt spjald. Klippa: Mörkin úr leik Fulham og Chelsea Brasilíumaðurinn Igor Thiago skoraði tvö mörk þegar Brentford vann 3-0 sigur á Sunderland en þriðja markið skoraði Yehor Yarmoliuk. Klippa: Mörkin úr leik Brentford og Sunderland Klippa: Mörkin úr leik Everton og Wolves
Enski boltinn Manchester United Manchester City Chelsea FC Fulham FC Newcastle United AFC Bournemouth Tottenham Hotspur Leeds United Burnley FC Brighton & Hove Albion Brentford FC Sunderland AFC Mest lesið Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Enski boltinn Blóðbað í Köben: „Þetta var helvítis bras“ Sport Missir af HM í fótbolta vegna samfélagsmiðlafærslu Fótbolti Draumurinn ekki dáinn hjá Bergrós Sport „Takk fyrir ástina“ Fótbolti HM-minning: Óheiðarlegasta heimsmeistarakeppni allra tíma Fótbolti Mætti seint á æfingu fyrir leik en svaraði með þrennu Fótbolti „Tímabilinu sem aldrei hófst er nú lokið“ Sport Hefja formlegar viðræður við Iraola Enski boltinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Körfubolti Fleiri fréttir Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein „Öfundsýki alls staðar“ „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Hefja formlegar viðræður við Iraola Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Stóru liðin á eftir Kroupi Óvíst hvort Arsenal-maðurinn geti verið með á HM Keegan með fjórða stigs krabbamein Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Milner hættur í fótbolta Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Taka gleði sína á ný í meistararútu í London Van Dijk sendi Slot kveðju Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Slot rekinn frá Liverpool Tottenham bætir í vörnina Sjáðu allar bestu stoðsendingar tímabilsins í enska boltanum Vilja ráða Iraola eða Lampard Vann tvo Evróputitla sama vorið Í keppni sem þeim var vísað út úr: „Ævintýri sem átti að enda svona“ Barcelona búið að landa Gordon Ederson nálgast Manchester United Stórlið slást um Gordon Siggi Bond með besta stjörnuliðið en Ragnar hætti snemma Tottenham leitar að rót meiðslavandans Nuno verður áfram stjóri West Ham Arteta valinn þjálfari ársins í fyrsta sinn Rúrik hafði rétt fyrir sér um Wirtz City að vinna United í slagnum um Anderson Stoðsending Bruno staðfest og metið í hans eigu Sjá meira