Blóraböggull fundinn! Jenný Gunnbjörnsdóttir skrifar 13. janúar 2026 09:18 Nýr barna- og menntamálaráðherra býður fram krafta sína við að gera börnin okkar læs, sem er gott…en Traust byggist á að farið sé með rétt mál, að upplýsinga sé aflað og ákvarðanir teknar á grundvelli þeirra. Ef það er rétt sem Inga Sæland, barna-og menntamálaráðherra segir í fjölmiðlum, að 50% drengja sé ólæs að lokinni 10 ára grunnskólagöngu og að það megi skrifa á Byrjendalæsi, þá er mikilvægt að bregðast við. Ef þessi orð eiga sér ekki raunverulega stoð, ber að taka þau til baka. Inga er ný í embætti og á vonandi eftir að kynna sér hvernig lestrar- og læsiskennslu er háttað í skólum landsins og hvernig embætti hennar getur stutt sem best við þá sem starfa í menntakerfinu og vinna af heilindum með börnum og ungmennum. Grunnskólar á Íslandi starfa samkvæmt aðalnámskrá sem gefin er út af yfirvöldum menntamála og kveður á um markmið skólastarfs. Skólar hafa ákveðið frelsi til að velja leiðir til að ná þeim markmiðum sem þeim er ætlað. Miðstöð skólaþróunar við Háskólann á Akureyri hefur í um 20 ár boðið skólum stuðning við eflingu starfshátta við kennslu læsis, meðal annars í starfsþróunarverkefninu Byrjendalæsi sem þróað var fyrir læsiskennslu í 1. og 2. bekk grunnskóla og hefur náð góðri fótfestu í mörgum skólum. Aðferðin myndar umgjörð um læsiskennslu sem tryggir að unnið sé með alla helstu undirþætti læsis, það er talað mál, hlustun, lestur og ritun samkvæmt gagnreyndum aðferðum. Í upphafi lestrarnáms er unnið markvisst með tengsl stafa og hljóða og hljóðaaðferð nýtt bæði á samtengjandi og sundurgreinandi hátt. Skólar sem kenna eftir aðferðum Byrjendalæsis fylga hæfniviðmiðum aðalnámskrár líkt og aðrir skólar í landinu og leggja fyrir þau matstæki sem yfirvöld leggja skólum til. Það gefur tækifæri til að bera árangur nemenda í Byrjendalæsisskólum saman við meðalárangur nemenda á landinu. Það hefur Rannveig Oddsdóttir gert og birtir niðurstöður í ritrýndri grein 11. nóvember 2025. Í greininni kemur m.a. fram að lestrarfærni barna í Byrjendalæsisskólum þróast á sambærilegan hátt og hjá nemendum á landsvísu á fyrstu tveimur árum grunnskólagöngu. Byrjendalæsi virðist því skila svipuðum árangri fyrir lestrarfærni nemenda og aðrar aðferðir sem notaðar eru við lestrarkennslu í íslenskum skólum og aðferðin því ólíklega sá blóraböggull sem ráðherra barna-og menntamála heldur fram. Auk þess að fylgjast með stöðu og framförum nemenda í Byrjendalæsisskólum í opinberum gögnum styðjast skólarnir við Gæðaviðmið sem Miðstöð skólaþróunar leggur til og nýtist skólunum við innra mat og þróun starfshátta. Miðstöð skólaþróunar á í lifandi samstarfi við fræðafólk og starfandi kennara um allt land til að efla skilning og þekkingu á hvernig styðja má sem best við kennara og nemendur þegar kemur að læsi. Við vitum að breytingar í samfélagi okkar, meðal annars hvað varðar aukna fjölbreytni í tungumála- og menningarlegum bakgrunni er áskorun sem takast þarf á við í breiðu samstarfi. Það er gott að tilheyra öflugu samfélagi Byrjendalæsiskennara, þar ríkir metnaður og vilji til samvinnu og góðra verka. Miðstöð skólaþróunar er mjög stolt af samstarfsskólum sínum og kennurum sem leggja á hverjum degi metnað í starfið sitt og vita fyrir hvað þeir standa. Þeir vita að börnin eru okkar dýrmætasta eign og að þeim er treyst fyrir miklu. Við viljum styðja og efla í stað þess að tala niður. Við vitum að það er ekki hægt að finna einhlítar orsakir eða einfalda lausn á flóknum viðfangsefnum. Hægt er að fræðast á ýmsan hátt um Byrjendalæsi ef áhugi er fyrir hendi. Ýmis skrif og rannsóknir má finna, auk þess sem facebook hópur Byrjendalæsis er virkur, opin vefsíða er aðgengileg og horfa má á kynningarmyndband sem tekið var upp þegar aðferðin var á upphafsárum sínum. Sjá á https://sites.google.com/view/byrjendalaes/fors%C3%AD%C3%B0a Ráðherra er alltaf velkomin til Akureyrar og fá kynningu á starfi Miðstöðvar skólaþróunar. Eins væri tilvalið fyrir ráðherra að fara í heimsókn í skóla til að sjá skútu sem er ekki strand á miðjum sjó, heldur metnaðarfulla kennara og áhugasama og kröftuga nemendur. Höfundur er sérfræðingur á Miðstöð skólaþróunar við Háskólann á Akureyri. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skóla- og menntamál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Halldór 13.06.2026 Halldór Þegar jafnrétti verður skýringin á vanlíðan karla Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Hagfræði almennings Guðmunda G. Guðmundsdóttir Skoðun Að gefast upp Haraldur Eiríksson Skoðun Að senda kjósendum fingurinn Atli Bollason Skoðun Hafa íslenskir neytendur lakari rétt en evrópskir? Arngrímur Stefánsson Skoðun Reiður Hjólabúi Geirdís Hanna Kristjánsdóttir Skoðun Upplýsingaóreiða ráðherra Hörður Þorsteinsson Skoðun Mikilvægar staðreyndir um lög um brottfararstöð Jóhannes Óli Sveinsson Skoðun Öll trixin í bókinni Árni Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Reiður Hjólabúi Geirdís Hanna Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Þegar jafnrétti verður skýringin á vanlíðan karla Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Hafa íslenskir neytendur lakari rétt en evrópskir? Arngrímur Stefánsson skrifar Skoðun Hagfræði almennings Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Veit „óvinur númer eitt“ að hann er númer eitt? Jón Steinar Sæmundsson skrifar Skoðun Að loka augunum fyrir hinu augljósa skrifar Skoðun Færeyingar eru ekki í ESB en… Sigurður Steinar Ásgeirsson skrifar Skoðun Mikilvægar staðreyndir um lög um brottfararstöð Jóhannes Óli Sveinsson skrifar Skoðun Upplýsingaóreiða ráðherra Hörður Þorsteinsson skrifar Skoðun Öll trixin í bókinni Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Dagur í lífi Íslendinga árið 2040 Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Skólafrí - skelfing eða sæla Fjalar Freyr Einarsson skrifar Skoðun Sagan um afganginn sem hvarf Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Að senda kjósendum fingurinn Atli Bollason skrifar Skoðun Hver ertu þegar þú réttlætir að barn sé lokað inni? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Hver borgar þegar ríkið tekur yfir heilbrigðiseftirlitið? Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson,Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skynsemi fremur en upphrópanir í útlendingamálum Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Já, tökum okkur Færeyinga til fyrirmyndar Hjörtur j. Guðmundsson skrifar Skoðun Að gefast upp Haraldur Eiríksson skrifar Skoðun Draghi-skýrslan og Ísland: framleiðni, samkeppnishæfni og kostnaður krónunnar Baldur Pétursson skrifar Skoðun Við þurfum ekki ESB – eða hvað? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Það er verið að efla framhaldsskóla og verkmenntun Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Fullveldið er undirstaða sveigjanleikans: Hvers vegna EES-samstarfið dugar okkur Kristinn Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Seiðkarlar fyrri alda Steingrímur Gunnarsson skrifar Skoðun Hverjir borga brúsann? Franklín Ernir Kristjánsson skrifar Skoðun Þegar rekstrarkröfur grafa undan faglegu starfi í þverfaglegri endurhæfingu Gunnhildur L. Marteinsdóttir skrifar Skoðun Hvað varð um gangbrautirnar? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Misskilningur: RÚV, Silfrið og meint hlutdrægni Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Árnar eru ekki hreinsistöð fyrir sjókvíaeldi Brynjar Arnason skrifar Skoðun Þarf vinnuskóli að vera vesen? Íris Róbertsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Hver borgar þegar ríkið tekur yfir heilbrigðiseftirlitið? Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson,Sigrún Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Draghi-skýrslan og Ísland: framleiðni, samkeppnishæfni og kostnaður krónunnar Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Fullveldið er undirstaða sveigjanleikans: Hvers vegna EES-samstarfið dugar okkur Kristinn Karl Brynjarsson skrifar
Skoðun Þegar rekstrarkröfur grafa undan faglegu starfi í þverfaglegri endurhæfingu Gunnhildur L. Marteinsdóttir skrifar