Fellur frá máli sínu á hendur Hödd Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 13. janúar 2026 16:30 Hödd Vilhjálmsdóttir sakaði Hörð Ólafsson um nauðgun, en hann hafnaði því alfarið og stefndi henni. Hann hefur nú fallið frá málinu og greiðir allan kostnað sem af því hlaust. Samkomulag náðist á milli Harðar Ólafssonar læknis og Haddar Vilhjálmsdóttur almannatengils um að fallið verði frá stefnu læknisins á hendur almannatenglinum fyrir meiðyrði. Fyrirtaka málsins var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag.
Þetta staðfestir Auður Björg Jónsdóttir lögmaður Haddar í samtali við Vísi. Greint var frá stefnunni í ágúst á síðasta ári en það sumar hafði Hödd birt færslu á Facebook þar sem hún sakaði Hörð um að hafa nauðgað sér tvisvar, en þau voru í sambandi um tíma. Samkvæmt upplýsingum frá lögmanni Haddar lauk málinu með samkomulagi um að málið yrði látið niður falla. Hörður greiði allan málskostnað vegna þess. Hödd lýsti meintum nauðgunum í Facebook færslu þann 18. júlí síðastliðinn þar sem hún nafngreindi Hörð jafnframt. Síðar birti hún fleiri færslur á samfélagsmiðlinum þar sem hún sagðist standa með orðum sínum. Það var svo í ágúst sem Hödd tilkynnti á Facebook að henni hefði verið stefnt. Sagðist hún hafa verið undir áhrifum áfengis þegar hún ritaði færsluna en enn standa með frásögn sinni. „Ég trúi því að ég hafi þróað með mér alkóhólisma út frá áföllum og sést það skýrt í því að ég tengi áfengi ekki við neitt skemmtilegt heldur hef ég notað það til að deyfa sár sem ég hafði ekki unnið úr. Því sári skilaði ég út kerfinu þann 18. júlí síðastliðinn, þá vel hvítvínslegin. Ég vil þakka hvítvíninu fyrir samfylgdina og þrátt fyrir að það hafi stundum lækkað greindarvísitölu mína undir frostmark þá gaf það mér í kveðjugjöf styrk...eða kannski nógu mikið kæruleysi til að skella sárinu í status og negla honum inn í lokaðri færslu á Facebook. Því sé ég alls ekki eftir og stend ennþá gallhörð við það sem ég skrifaði því ég veit að það er sannleikurinn,“ skrifaði Hödd í ágúst. Hörður hefur áður hafnað ásökunum Haddar opinberlega í yfirlýsingum sem hann hefur sent á fjölmiðlana DV og Mannlíf. Hann sagði ásakanirnar viðurstyggilegar og glórulausar. „Hödd Vilhjálmsdóttir lögfræðingur og almannatengill hefur sett fram viðurstyggilegar og glórulausar ásakanir í minn garð á Facebook síðu sinni, þar sem hún nafngreindi mig, en vefmiðillinn Mannlíf tók í kjölfarið viðtal við Hödd þann 19. júlí. Ég heyrði af ásökunum hennar á meðan ég var í fríi erlendis en brást við strax með því að senda henni bréf þar sem henni var tilkynnt um að mál yrði höfðað til að ómerkja ummælin. Ég veit ekki á hvaða vegferð Hödd er, en ásökunum hennar hafna ég með öllu. Ég hef aldrei brotið á nokkrum einstaklingi – þvert á móti hef ég helgað mig því að aðstoða aðra. Við Hödd áttum í nokkra mánaða sambandi sem hófst fyrir rúmum 15 árum síðan sem ég sleit um áramótin 2010/2011. Við hittumst einu sinni nokkrum mánuðum eftir að sambandið okkar lauk og skildum þá í góðu og síðan þá hef ég ekki haft nein samskipti við hana. Dragi Hödd ásakanir sínar til baka, og biðjist hún fyrirgefningar, mun ég fyrirgefa henni. Öðrum kosti sé ég mér ekki annað fært en að leita atbeina dómstóla eins og ég hef tilkynnt henni,“ sagði Hörður í yfirlýsingu. Hann stóð við það, stefndi Hödd en hætti svo við. Sigurður G. Guðjónsson, lögmaður Harðar, sagði í fyrra að Hörður myndi reka mál sitt fyrir dómstólum en ekki í fjölmiðlum. Ekki náðist í Sigurð við vinnslu fréttarinnar.
Dómsmál Tjáningarfrelsi Kynferðisofbeldi Mest lesið „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent „Burt með bölvað ofstækið“ Innlent Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Innlent Wolt kærir hótanir til lögreglu Innlent Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Innlent Fleiri fréttir Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar Fengu ráðgjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir uppsagnirnar Sjá meira