Borgin segir upp leigusamningi og 54 barna leikskóla að óbreyttu lokað Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 15. janúar 2026 19:02 Foreldrar barna á leikskólanum hafa áhyggjur af stöðunni ef fram fer sem horfir. Myndin er úr safni og tengist leikskólanum Ársól ekki beint. Getty Að óbreyttu verður rekstri Heilsuleikskólans Ársólar hætt í sumar eftir að Reykjavíkurborg sagði upp leigusamningi vegna húsnæðis sem hýst hefur starfsemi leikskólans við Völundarhús í Grafarvogi. Foreldrar barna á leikskólanum lýsa miklum áhyggjum og „algjöru áfalli“ enda hafi ríkt almenn ánægja með starfsemi leikskólans og ekki hlaupið að því að fá nýtt leikskólapláss. Pláss er fyrir 54 börn á aldrinum níu mánaða til þriggja ára á leikskólanum samkvæmt upplýsingum á heimasíðu skólans.
Um er að ræða einkarekinn leikskóla sem fyrirtækið Skólar ehf. hefur leigt húsnæði af Reykjavíkurborg undir leikskólann. Samkvæmt bréfi sem stjórnarformaður fyrirtækisins sendi foreldrum barna á leikskólanum í dag, og Vísir hefur undir höndum, sagði Reykjavíkurborg upp leigusamningi vegna Völundarhúsa 1 þann 1. janúar með sex mánaða fyrirvara. Hvorugt húsnæðið áfram í boði Fram kemur í bréfinu að húsnæðið við Völundarhús hafi verið metið ónothæft og því hefur starfsemi leikskólans verið rekin í öðru húsnæði í hverfinu undanfarna mánuði. Það húsnæði, við Húsaskóla, muni hins vegar ekki heldur standa leikskólanum til boða frá og með 30. júní næstkomandi. Húsnæðið við Völundarhús 1 er í slæmu ásigkomulagi og því hefur starfsemi leikskólans verið í öðru húsnæði undanfarna mánuði.Já.is/skjáskot „Upphaflega hugðist Reykjavíkurborg gera við og endurnýja ýmislegt í gamla húsnæði leikskólans að Völundarhúsum 1 og stóð til að leikskólinn yrði fluttur þangað aftur að loknu sumarleyfi. Á fundi fulltrúa Skóla ehf. með Reykjavíkurborg í desember síðastliðnum var aftur á móti upplýst að húsnæðið væri verr farið en ráð var gert fyrir og að Reykjavíkurborg hefði því horfið frá áætlunum sínum um endurbætur á húsnæðinu,“ segir meðal annars í bréfinu sem sent var foreldrum í dag, en undir það ritar Guðmundur Pétursson, stjórnarformaður Skóla ehf. Fyrirtækið hafi litið svo á að borgin myndi grípa til einhverra ráðstafana til að tryggja annað og viðunandi húsnæði til starfseminnar en Heilsuleikskólinn Ársól hafi verið rekinn í leiguhúsnæði í eigu Reykjavíkurborgar síðan hann hóf starfsemi árið 2008. Þá var leikskólinn rekinn að Sólheimum 9, en flutti þaðan upp í Völundarhús í Grafarvogi árið 2016 vegna leka- og rakaskemmda. Undanfarna mánuði hefur starfsemi Ársólar verið rekin í húsnæði Húsaskóla í Grafarvogi vegna hrörlegs ástands á húsnæðinu við Völundarhús.Vísir/Anton Brink Það hafi hins vegar komið fyrirtækinu í algjörlega opna skjöldu þegar borgin hafi tilkynnt þeim í desember að „sveitarfélagið teldi það ekki hlutverk sitt að útvega leikskólanum húsnæði eða koma að uppbyggingu þess,“ líkt og það er orðað í bréfinu. Því líti Skólar ehf. svo á að uppsögn borgarinnar á leigusamningi vegna húsnæðis feli einnig í sér uppsögn á þjónustusamningi um rekstur leikskólans, enda sé húsnæði forsenda þess að hægt sé að reka skólann. „Að óbreyttu munu Skólar ehf. því hætta rekstri Heilsuskólans Ársólar þann 30. júní nk. Okkur hjá Skólum ehf. þykir þetta mjög miður,“ segir að lokum í bréfinu. Foreldrar í áfalli og vonbrigðin mikil Fréttastofu hafa borist upplýsingar frá nokkrum foreldrum barna við leikskólann sem lýsa verulegum áhyggjum af áformunum. Það skjóti skökku við að Reykjavíkurborg „leysi leikskólavandann“ með því að segja upp leigu hjá einum af fáum einkareknum leikskólum í borginni. Annað foreldri lýsir „rosalega vönduðu leikskólastarfi“ þar sem starfsmannavelta hafi verið lítil og börn hafi undanfarna mánuði lítið sem ekkert þurft að vera heima vegna manneklu. Vonbrigðin séu gríðarleg og „algjört áfall fyrir foreldra“ sem eigi að hafi átt börn á leikskólanum. Þá bendir enn eitt foreldrið á að eftir að starfsemi leikskólans var flutt úr mygluðu húsnæði við Völundarhús og yfir í Húsaskóla í vor hafi staðan snarbatnað með tilliti til undirmönnunar eða fjarveru starfsfólks vegna veikinda. Úr því hafi dregið verulega eftir að starfsemin var færð úr hinu myglaða húsnæði.
Reykjavík Leikskólar Stjórnsýsla Húsnæðismál Mygla Skóla- og menntamál Mest lesið Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Erlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Innlent Ítalski baróninn á ekki vatnið Innlent Fleiri fréttir Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Leigubílstjóri lét hnefana tala Búið að opna Hellisheiði á ný Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Sjá meira