Ekki rétta leiðin að kynda undir læsisstríð Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 19. janúar 2026 09:11 Gunnar Gíslason forstöðumaður Miðstöðvar skólaþróunar við HA. Vísir/samsett Gunnari Gíslasyni, forstöðumanni Miðstöðvar skólaþróunar við Háskólann á Akureyri, líst ekki á blikuna hvað varðar umræðuna um læsi og lestrarkennslu, en hann segist óttast að verið sé að kynda undir „læsisstríði“. Hann telur það meðal annars vera lykilatriði að efla og auka áherslu á læsi og lesskilning á mið- og unglingastigi, en ekki bara í fyrstu bekkjum grunnskóla.
Töluverð umræða hefur verið uppi um læsi og lestrarkennslu á Íslandi eftir að Inga Sæland tók við embætti mennta- og barnamálaráðherra á dögunum. Inga hefur sjálf boðað átak í þeim efnum og hefur sjálf lýst gagnrýni á svokallaða byrjendalæsisstefnu sem hér hafi verið stuðst við, og hefur ekki borið tilætlaðan árangur að mati Ingu. Yfirlýsingar hennar hafa sætt nokkurri gagnrýni. Gunnar var til viðtals í Bítinu á Bylgjunni í morgun, þar sem hann var spurður hvernig umræðan blasi við honum og hvernig hann meti stöðuna. „Mér líst ekkert rosalega vel á þessa stöðu vegna þess að við erum einhvern veginn að kynda undir eitthvað sem kallað er læsisstríð. Ég held að það græði enginn á svoleiðis stríði, svona læsisstríði þar sem menn eru að takast á um mismunandi stefnur í læsi og þar fram eftir götunum,“ sagði Gunnar. „Þetta hefur verið í gangi erlendis eins og hér og þetta hefur hingað til ekki skilað nokkrum einasta árangri og kemur þá bara niður á börnunum sem við erum að reyna eftir fremsta megni að sinna og gera sem best læs.“ Það hafi ekki gengið eins vel og menn myndu vilja sé horft til niðurstaðna mælinga á borð við PISA-kannanir. „Það er bara hárrétt. Þetta hefur bara alls ekki gengið nógu vel,“ sagði Gunnar. Þetta sé þó ekki í fyrsta sinn sem byrjendalæsistefnunni sé kennt um og hún gerð að eins konar blóraböggli þegar kemur að umræðu um bága stöðu læsis. Hann vill þó meina að mikilvægt sé að skoða einnig aðra þætti. Til að mynda hafi áherslan löngum verið á læsi og lestur í 1. til 3. bekk grunnskóla, en það skipti máli að einblína á læsi á öllum skólastigum. „Við erum að sjá þetta bara í niðurstöðum rannsóknar, eftir rannsókn, eftir rannsókn, að það er ekki verið að gera þetta. Þetta er svo skrítið að við skulum alltaf vera að höggva í sama knérunn, vitandi það að það hefur engan tilgang. Við þurfum að horfa á hvar við þurfum að styrkja læsi og læsiskennslu. Það er á eldri stigum grunnskólans, miðstigi og unglingastigi,“ sagði Gunnar. Viðtalið við hann í heild sinni má heyra í spilaranum hér að ofan.
Skóla- og menntamál Grunnskólar Börn og uppeldi Mest lesið Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Vaktin: Hákon tekur við af föður sínum Erlent Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Innlent Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Innlent „Verkinu er haldið í gíslingu“ Innlent Mættu í skólann og beittu nemanda ofbeldi Innlent Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Innlent Haraldur V Noregskonungur er látinn Erlent Fleiri fréttir Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Jón Hrói nýr sveitarstjóri í Langanesbyggð Efast um að skylt verði að hefja aðildarviðræður þótt já verði ofan á Armslengd eigi sérstaklega vel við um Fjölmiðlanefnd Inga segir já Örfáir töldu Ingu hafa staðið sig best Tuttugu prósent búin að greiða atkvæði „Mér fannst ég þekkja hann strax og ég hitti hann í fyrsta sinn“ Bíða enn niðurstöðu varðandi vatnslögnina Brotist inn í Hygge á Barónsstíg Vélstjóra sem átti að sigla Bandero meinuð innganga Tuttugu prósent þegar greitt atkvæði og andlát Noregskonungs „Verkinu er haldið í gíslingu“ Reyndi að smygla fíkniefnum í vínflöskum Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Þorgerður beygði af í Bítinu Segir Katrínu sparka í konuna sína Sjá meira