Borgarstjórn biður vöggustofubörnin afsökunar Árni Sæberg skrifar 20. janúar 2026 13:54 Frá fyrri fundi borgarstjórnar Reykjavíkur. Vísir/Vilhelm Borgarstjórn samþykkti í dag ályktun þar sem þau sem vistuð voru sem börn á Vöggustofu Thorvaldsenfélagsins á árunum 1974 til 1979 og fjölskyldur þeirra eru beðin afsökunar á þeirri meðferð sem lýst var í skýrslu vöggustofunefndar.
Í ályktun borgarstjórnar segir að þrátt fyrir að vöggustofubörnin hafi ekki sætt illri meðferð í skilningi laganna, þá hafi vissum þáttum varðandi meðferð barnanna verið ábótavant. Þar megi nefna að ekki var hugað að því með faglegri vinnu eða greiningum að mæta sérþörfum barna, svo sem þeirra sem voru fötluð, þeirra sem voru eldri og þeirra sem komu úr sérstaklega erfiðum aðstæðum eða voru vistuð oft. Dæmi séu um að barn hafi verið vistað í fjögur á ár vöggustofunni og elsta barnið sem var vistað hafi verið 15 ára. Mun hærri dánartíðni „Afdrif vöggustofubarnanna eru sláandi. Af þeim 149 börnum sem dvöldu á vöggustofunni í einn mánuð eða lengur eru 60 skráð öryrkjar eða 40,3 prósent en hlutfall meðal jafnaldra er 20 prósent. Þá er dánartíðni umtalsvert hærri á meðal fyrrum vöggustofubarna eða 13,4 prósent borið saman við einungis 4,8 prósent hjá jafnöldum.“ Borgarstjórn vilji þakka vöggustofunefndinni fyrir umfangsmikla, vandaða og vel rökstudda skýrslu. Borgarstjórn sé einnig þakklát hvatamönnum þess að ráðist var í gerð beggja vöggustofuskýrslnanna, þeim Árna H. Kristjánssyni, Fjölni Geir Bragasyni, Hrafni Jökulssyni, Tómasi V. Albertssyni og Viðari Eggertssyni. Tveir af þessum heiðursmönnum séu fallnir frá. Skora á dómsmálaráðuneytið „Borgarstjórn tekur heilshugar undir tillögur vöggustofunefndar og vinnsla þeirra er þegar í farvegi, meðal annars um að Reykjavíkurborg tryggi vöggustofubörnum geðheilbrigðis- og sálfræðiþjónustu þeim að kostnaðarlausu líkt og gert var þegar fyrri vöggustofuskýrslan kom út 2023.“ Borgarstjórn skori jafnframt á dómsmálaráðuneyti að ljúka við gerð frumvarps um sanngirnisbætur sem fyrst til að leitast við að skýra leiðir til að rétta hlut þeirra einstaklinga sem vistaðir voru á Vöggustofunni Hlíðarenda og Vöggustofu Thorvaldsensfélagsins í formi skaðabóta.
Vöggustofur í Reykjavík Reykjavík Borgarstjórn Mest lesið Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Erlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Innlent Fleiri fréttir Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði ESA geti ekki beðið endalaust Valgerður réttir fram sáttahönd Vill að Daði vísi til þess sem hún á að hafa sagt Tilkynnt um ölvaðan flugmann Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Skoðar uppfærslu í 36 sæta rafflugvél Neysla geðrofs-, tauga- og ofnæmislyfja stóraukist Dæmdur fyrir manndráp af gáleysi við Vík Innan við helmingur karla vill refsingar fyrir vændiskaup Árásin rannsökuð sem tilraun til manndráps Bein útsending: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? „Einn aðili sem hefur til þessa skilað auðu“ Telur ESA falla frá málsókn ef Alþingi samþykkir frumvarpið Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Tvöfalda makrílráðgjöf Ragnar Þór vissi ekkert og meirihluti karla vill ekki refsa fyrir vændiskaup Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Í mál gegn Íslandi fyrir vanefndir á bókun 35 Ein vél Fljótsdalsstöðvar úti „Ég er ógeðslega reiður“ Kröpp og djúp lægð og varasamar vindhviður Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Leitaði að sveppum í Breiðholti í indíánabúningi Rúmlega eitt og hálft ár fyrir ítrekaðan akstur undir áhrifum Sjá meira