Taldi sig mega birta nektarmyndir af fyrrverandi en dómarinn hélt ekki Árni Sæberg skrifar 21. janúar 2026 17:10 Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í málinu. Vísir/Vilhelm Karlmaður hefur verið dæmdur til fjögurra mánaða skilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir kynferðisbrot gagnvart fyrrverandi kærustu sinni. Hann gekkst við því að hafa birt nektarmyndir af henni á netinu eftir að hótað að gera það. Hann bar fyrir sig að hann hefði ýmist tekið myndirnar eða hún sent honum þær og því hefði hann mátt birta þær opinberlega. Dómari féllst ekki á þann málatilbúnað en sýknaði manninn hins vegar af broti í nánu sambandi, þar sem samband þeirra var ekki talið slíkt.
Dómur þess efnis var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur þann 15. janúar síðastliðinn. Vísir fjallaði um ákæru á hendur manninum í nóvember síðastliðnum en þar kom fram að maðurinn væri ákærður fyrir fjölda kynferðisbrota, brot í nánu sambandi og stórfelldar ærumeiðingar gagnvart fyrrverandi kærustu sinni. Átta liða ákæra Ákæran var í átta liðum og í fyrsta var hann ákærður fyrir að hafa sent konunni tölvupósta og ein skilaboð á óþekktum samfélagsmiðli, með hótunum um að dreifa nektarmyndum af konunni og myndabandi, sem sýndi nekt hennar, auk þess að senda henni slíkar myndir og myndband. Háttsemi hans hafi verið til þess fallin að vekja hræðslu og kvíða hjá henni, særa blygðunarsemi hennar, smána hana og móðga. Í ákæruliðum tvö til sex var manninum gefið að sök að hafa dreift nokkrum fjölda nektarmynda á Instagramreikningum. Meðal myndanna sem hann var sakaður um að dreifa voru myndir sem sýndu konuna bera að neðan í fjöru. Þá var hann ákærður fyrir að hafa dreift tengli inn á vefsvæði sitt á ótilgreindri vefsíðu og birt þar 21 nektarmynd af konunni, sem hafi verið til þess fallnar að smána hana og móðga. Stílaði bréf á helstu fjölmiðla Bretlands Loks var maðurinn ákærður fyrir að hafa sent bréf, sem stílað var á helstu fjölmiðla Bretlands, á vinkonu konunnar. Þar hafi meðal annars komið fram viðkvæmar og persónulegar upplýsingar um líf konunnar og foreldra hennar, auk þess sem vísað hafi verið á einn þeirra Instagramreikninga sem maðurinn hafði stofnað. Í dóminum kemur fram að konan hafi verið búsett á Englandi þegar hún kynntist manninum, sem er íslenskur. Þau hafi átt í samskiptum um nokkurt skeið í gegnum net og síma, varið tíma saman í Kaupmannahöfn og hafið þar kynferðisleg samskipti og loks hafi konan búið hjá manninum um nokkurra mánaða skeið á Íslandi. Að skammri sambúð lokinni hafi hún flutt aftur til London, þar sem hún hafi búið þegar maðurinn hóf að senda henni skilaboðin og birta af henni myndirnar. Dómurinn komst að þeirri niðurstöðu að vafi um að slíkt samband teldist náið samband í skilningi almennra hegningarlaga skyldi túlkaður manninum í hag. Því var hann sýknaður af ákæru um brot í nánu sambandi. Samþykki lá ekki fyrir Þá segir í dóminum að maðurinn hafi borið því við að hafa haft heimild konunnar til að birta myndir af henni. „Kvaðst hann eiga myndirnar, bæði þær sem hann tók af henni og þær sem brotaþoli sendi honum,og hafa fengið samþykki brotaþola fyrir því að birta þær.“ Niðurstaða dómsins var að með vísan til framburðar konunnar, þess að engin gögn lægju fyrir um fullyrðingar mannsins og ótrúverðugs framburðar mannsins að maðurinn hefði birt myndirnar án samþykkis konunnar. Því var hann sakfelldur fyrir kynferðislega áreitni gagnvart konunni. Hann var sem áður segir sýknaður af ákæru fyrir brot í nánu sambandi. Við ákvörðun refsinga var litið til þess að brot mannsins hafi verið umfangsmikil, ásetningur hans sterkur og með þeim hafi hann brotið gróflega gegn friðhelgi konunnar og valdið henni mikilli vanlíðan, auk þess að skaða atvinnustarfsemi hennar. Þó var einnig litið til þess að fjögur og hálft ár liðu frá því málið var kært til lögreglu og þar til ákæra var gefin út. Refsing hans þótti því hæfilega ákveðin fjögurra mánaða fangelsisvist, skilorðbundin til tveggja ára. Honum var gert að greiða tvo þriðju hluta þóknunar verjanda hans og réttargæslumanns konunnar, sem var alls 5,45 milljónir króna, og miskabætur til handa konunni upp á 1,5 milljónir króna.
Dómsmál Kynferðisofbeldi Stafrænt ofbeldi Mest lesið Rýnt í tollana: Ætla að láta Repúblikana finna til tevatnsins Erlent Haft samband við þá bændur sem búa næst gilinu Innlent Vandræðalegt þegar stjórnmálamenn komi inn á sviðið og ætli að breyta öllu Innlent Flugvallarstarfsmenn í Frankfurt látnir eftir að hafa smitast af malaríu Erlent Hafa augun opin fyrir fleiri „hjálparlausum krúttum á vappi“ Innlent Leikskóli spratt upp eins og gorkúla Innlent Fjölmiðlanefnd sektar Þórarin um hálfa milljón Innlent Afhjúpi ekkert nema þeirra eigin viðhorf til fólksins í landinu Innlent Mikilvægt að fatlaðir geti tekið þátt í umræðunni Innlent Svipleg starfslok, í beinni frá fjöldafundi og söngkona sem syrgir Innlent Fleiri fréttir Mikilvægt að fatlaðir geti tekið þátt í umræðunni Hafa augun opin fyrir fleiri „hjálparlausum krúttum á vappi“ Haft samband við þá bændur sem búa næst gilinu Svona var ávarp Kristrúnar vegna atkvæðagreiðslunnar Vandræðalegt þegar stjórnmálamenn komi inn á sviðið og ætli að breyta öllu Leikskóli spratt upp eins og gorkúla Afhjúpi ekkert nema þeirra eigin viðhorf til fólksins í landinu Pallbíll sem var illa lagt upphafið að nágrannaerjum Svipleg starfslok, í beinni frá fjöldafundi og söngkona sem syrgir Flaggað í hálfa stöng í bandaríska sendiráðinu Fjölmiðlanefnd sektar Þórarin um hálfa milljón Mikill munur á trausti til fjölmiðla í aðdraganda atkvæðagreiðslu Hvað gerist ef það verður jafnt? Eins og að hafa fimmtán menn inni á vellinum Svona verður atkvæðagreiðslan á laugardaginn Starfsfólki hafi verið boðin lægri laun Tvöfalt fleiri andvígir loðdýrarækt á Íslandi en hlynntir Dæmdur fyrir nauðgun: „Numer uno hlutur sem fólk gerir í kynlífi“ Starfsfólkinu boðin lakari kjör Grindavík á varaafli Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Stútur „með allt í skrúfunni“ Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Þyrluútköllum fjölgað verulega milli ára Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Sjá meira