Kristinn Svavarsson er látinn Agnar Már Másson skrifar 22. janúar 2026 22:04 Kristinn Svavarsson spilaði í Kryddsíldinni á gamlársdag 2024. Vísir/Hulda Margrét Kristinn Svavarsson, kennari og saxófónleikarinn sem gerði garðinn frægan með hljómsveitinni Mezzoforte, er látinn 78 ára að aldri.
Þetta kemur fram í Facebook-færslu frá Þórunni Helgu Guðbjörnsdóttur, eiginkonu hans. Hann bjó síðustu ár lífs síns í Hveragerði. Kristinn fæddist 15. desember 1947 og ólst upp í Reykjavík. Hann nam skipasmíði í Iðnskólanum í Reykjavík til 1977 og útskrifaðist síðar með kennarapróf frá Kennaraháskóla Íslands árið 1990. Þá kláraði hann einnig próf sem tónlistarkennari árið 1993, með áherslu á blásturshljóðfæri en hann lék bæði á saxófón og flautu. Frá unglingsárum starfaði Kristinn við tónlist en hann hefur leikið á saxafón með fjölda hljómsveita. Hann spilaði með Pónik og Blúskompaníinu á 7. áratugnum. Svo var hann meðal stofnenda Mídasar árið 1972 sem spilaði nokkrum sinnum á Keflavíkurflugvelli áður en sveitin leystist svo upp eftir eitt ár þegar Kristinn gekk til liðs við Musicamaxima (1973). Hann spilaði víða og gekk meðal annars til liðs við Brimkló árið 1980, en líklegast er hann þekktastur fyrir hlutverk sitt í Mezzoforte. Kristinn varð í raun að andliti Mezzoforte þegar hann var formlega genginn til liðs við sveitina árið 1982, um það leyti sem hún var á hátindi ferils síns. Margir kannast væntanlega við saxófónblástur Kristins í laginu „Garden Party“, slagara Mezzoforte af plötunni „Surprise Surprise“ sem rataði í tónlistarþáttinn Top of The Pops á BBC þegar það kom út 1982. Það fór í 17. sæti breska vinsældalistans og má segja að það hafi sett íslenska fönktónlist á kortið. „Fyrir marga var hann svona ígildi söngvara,“ sagði Eyþór Gunnarsson, hljómborðsleikari Mezzoforte, um Kristin í viðtali í Kastljósi 2002. Kristinn starfaði einnig sem aðstoðarskólastjóri Laugarnesskóla frá 2010 til 2019 en hann hlaut mastersgráðu í kennslufræðum árið 2007 og svo diplómu í opinberri stjórnsýslu 2015. Kristinn skilur eftir sig sjö börn sem öll eru vaxin úr grasi. Eiginkona hans greinir frá því að útför hans fari fram í Lindakirkju næsta fimmtudag, 29. janúar. Síðustu ár hefur Kristinn verið ötull við tónsmíðar og gefið út nokkrar plötur með tónlist eftir sig og aðra sem má finna á Spotify.
Tónlist Andlát Menning Hveragerði Grunnskólar Reykjavík Mest lesið Vill skapa staðinn sem sonur hennar þurfti en fann aldrei Lífið Sló pabba út með að kasta sér yfir línuna Lífið „Ég er svolítið svífandi á bleiku skýi“ Lífið Klukkutíma bröns getur kostað marga daga í rúminu Lífið Myndaveisla: Stjörnufans fyrir norðan á Einni með öllu Lífið IceGuys boða sína síðustu tónleika: Sonur Arons Can gerði allt vitlaust Tónlist Innipúki er ekki það sama og fýlupúki Lífið Krakkatía vikunnar: Hungurleikar, biskup og geirfuglinn Lífið „Við getum ekki kvartað undan veðrinu“ Lífið Big Pussy er látinn Lífið Fleiri fréttir IceGuys boða sína síðustu tónleika: Sonur Arons Can gerði allt vitlaust Guðjón Þorgils flytur lag Hinsegin daga Skímó á skikkanlegum tíma fyrir ömmur og afa Patrik hættur að gigga: „Mér líður eins og apa í búri“ Daniil gefur út lag með Kodak Black: „Trúi þessu ekki ennþá“ Grafalvarlegt nýtt efni: „Jafn tilgangslausar og að selja flugelda inni í helli“ Von á tíu nýjum lögum tíu árum eftir andlátið „Undirstaða Hörpu mun hristast undir hreinum og ómenguðum krafti“ „Þýðir í raun bara endalok fyrir íslenska útgefna tónlist“ Sagði Viktoríu Beckham að „fokka sér“ Litla systir Gretu Thunberg ætlar að verða súperstjarna Innipúkunum fjölgar enn Bonnie Tyler er látin Skvísur og töffarar fögnuðu með Elvari Hvarf vegna athyglisbrests á hæsta stigi Landslið íslenskra söngvara syngur afmælislag Bylgjunnar Söngvari YMCA látinn Sjá meira