Kristall snýr aftur „þroskaðri og fullorðnari“ Sindri Sverrisson skrifar 26. janúar 2026 13:26 Kristall Máni Ingason með Brann-treyju sem sýnir að samningur hans gildir til 2029. Hann mætti til móts við liðið á Marbella á Spáni, þar sem það er við æfingar. Brann.no Norska Íslendingafélagið Brann hefur fest kaup á fótboltamanninum Kristali Mána Ingasyni frá Sönderjyske í Danmörku og kynnti hann formlega til leiks í dag.
Kristall Máni, sem á að baki sex A-landsleiki auk fjölda leikja fyrir yngri landslið Íslands, snýr þar með aftur til Noregs eftir að hafa farið á kostum fyrir jól í dönsku úrvalsdeildinni. Hann er sagður kosta jafnvirði rúmlega 200 milljóna íslenskra króna og að hafa þannig margfaldast í verði frá því að Sönderjyske keypti hann frá Rosenborg árið 2023. Kristall skilur við Sönderjyske í 4. sæti dönsku úrvalsdeildarinnar, með sex mörk og tvær stoðsendingar í fjórtán deildarleikjum í vetur. Hef trú á að þetta gangi mjög vel í þetta sinn Hlutirnir gengu ekki alveg upp þegar þessi 24 ára, uppaldi Fjölnismaður var hjá Rosenborg en hann er staðráðinn í að gera betur með Brann. „Síðast þegar ég var í norska fótboltanum var ég mjög ungur. Ég hef þroskast og fullorðnast, og tekið skref sem leikmaður. Þess vegna hef ég trú á því að það gangi mjög vel í þetta sinn,“ sagði Kristall á heimasíðu Brann. Þar segir að ekki verði hægt að skrá hann sem leikmann Brann fyrr en eftir leikinn við Sturm Graz í Austurríki á fimmtudaginn, þegar Brann spilar um að komast áfram úr Evrópudeildinni. Brann leikur undir stjórn Freys Alexanderssonar og þeir Sævar Atli Magnússon og Eggert Aron Guðmundsson eru báðir leikmenn liðsins.
Norski boltinn Danski boltinn Mest lesið Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Íslenski boltinn Valur - Stjarnan 90-77 | 16 ára gutti stal senunni Körfubolti Leikmenn landsliðsins sekir um agabrot Fótbolti Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Enski boltinn Wirtz sé búinn að missa trúna Enski boltinn Leik lokið: Álftanes - Höttur 111-77 | Nýtt upphaf í forsetahöllinni Körfubolti Toppbaráttan í vetur: Vildi spá KR titlinum Körfubolti Bakgarðsáskorunin: Soðnar kartöflur besta nestið Sport Þekkir ekkert annað en pressu Körfubolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Fleiri fréttir Leikmenn landsliðsins sekir um agabrot Xhaka sekur um að falsa Covid-19 vottorð Haaland biðlar til stuðningsmanna að standa saman Ceferin ætlar sér að stýra UEFA áfram Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Ber enn örið: „Eitur í æðum mér“ Wirtz sé búinn að missa trúna Varaforsetinn mildar afstöðu sína gagnvart Infantino Eins og óendurgoldin ást „Framkoman eins og við hverja aðra leikmuni“ Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Heimir þrefalt líklegri en Ísland til að fara á EM Guardiola verður viðstaddur fyrsta heimaleik Manchester City eftir dóminn Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Býður sig fram á móti Infantino Tarik framlengir við Víking Leggur skóna á hilluna Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Upp um eitt sæti á heimslistanum Rekinn frá Tyrkjum Arteta framlengir við Arsenal Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Sjá meira