„Miklu skemmtilegra að spila körfubolta þegar fólkið er í húsinu“ Stefán Marteinn Ólafsson skrifar 26. janúar 2026 21:35 Daníel Guðni Guðmundsson, þjálfari karlaliðs Keflavíkur í körfubolta. Vísir/Anton Brink Keflavík vann frábæran sautján stiga sigur á liði Tindastóls 98-81 þegar liðin mættust í frestuðum leik í Blue höllinni í Keflavík nú í kvöld. Leiknum hafði verið frestað sökum þáttöku Tindastóls í Evrópukeppni. Daníel Guðni Guðmundsson, þjálfari Keflavíkur, ræddi við Vísi eftir leik. „
Virkilega ánægður með frammistöðuna og framlagið hjá öllum mínum leikmönnum og gaman að sjá marga áhorfendur í húsinu þannig þetta var virkilega ánægjulegt,“ sagði Daníel sáttur eftir leik. Eftir að hafa tapað nokkuð óvænt á fimmtudaginn fyrir Ármann svaraði Keflavík með hörku frammistöðu í kvöld. „Rosalega mikilvægt fyrir okkur. Þetta gefur okkur sjálfstraust í næstu leiki og bara mjög mikilvægt að ná og geta sýnt svona frammistöðu sem við eigum inni og við þurfum bara að halda áfram að æfa okkur að verða betri og það er bara áfram veginn,“ sagði Daníel. Keflavík fékk frábæran stuðning úr stúkunni kvöld og mátti sjá hversu mikið það gaf liðinu í kvöld. „Það skiptir bara öllu máli eins og í upphafi tímabils þegar það hefur verið margt í húsinu oft á tíðum og það gefur bara auka kraft,“ sagði Daníel. „Það er líka miklu skemmtilegra að spila körfubolta þegar fólkið er í húsinu. Það var bara virkilega skemmtilegt að sjá og við þurfum bara að halda áfram á þessari braut og ef við erum að leggja okkur fram og sýna góða frammistöðu þá kemur fólk í húsið“ Þéttur varnarleikur var það sem lagði góðan grunn af sigrinum í kvöld. „Mér fannst við vera mjög þéttir í vörn, sérstaklega í fyrsta leikhluta. Við áttum svo alveg góðar varnir hérna í seinni hálfleik sömuleiðis. Mikilvægt að ná góðum sóknum í röð,“ sagði Daníel. „Þeir náðu einhverju smá áhlaupi og hótuðu að koma þessu niður í tíu stig en við gerum vel í kjölfarið og náðum að sigla þessu heim“ Þessi sigur gefur Keflavík gríðarlega mikið fyrir framhaldið. „Rosalega mikilvægt. Við erum að fara í krefjandi leik á föstudaginn gegn Þór Þorlákshöfn og svo í kjölfarið er bikar vikan og auðvitað viljum við fara alla leið og viljum fá alla með okkur í lið. Við viljum sjá fullt af stuðningsmönnum í Þorlákshöfn sömuleiðis á föstudaginn“ sagði Daníel að lokum.
Keflavík ÍF Bónus-deild karla Mest lesið Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport „Betra liðið tapaði” Fótbolti „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ Íslenski boltinn „Ég er rígmontinn af þeim” Fótbolti „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ Íslenski boltinn Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti „Allir tala um hvað ég er gamall“ Íslenski boltinn Þykja Alpine liðið vera of dýrt Formúla 1 Uppgjör: FH - ÍA 0-1 | ÍA sótti sigur í Kaplakrika Íslenski boltinn Fleiri fréttir Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Elvar Már óvænt til Tenerife út tímabilið Pirraður yfir því hvernig Baldur yfirgaf Stjörnuna Grét alla Reykjanesbrautina Sjá meira