Daði Már kennir olíufélögunum um Árni Sæberg skrifar 29. janúar 2026 12:10 Daði Már Kristófersson er fjármála- og efnahagsráðherra. Vísir/Vilhelm Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, segir aukningu verðbólgu mikið áhyggjuefni. Hann vísar því á bug að aukningin skýrist af gjaldahækkunum ríkisstjórnarinnar og segir olíufélög og bílaumboð bera ábyrgðina.
Líkt og greint var frá í morgun mælist verðbólga nú 5,2 prósent og hefur ekki verið meiri frá því í september árið 2024. Það sem hafði mest áhrif á vísitölu neysluverðs voru breytingar á vörugjöldum bifreiða og upptaka nýs kílómetragjalds. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson beindi fyrirspurn til Daða Más í óundirbúnum fyrirspurnatíma á Alþingi í morgun og spurði hann hvað hann ætlaði að gera til þess að takast á við verðbólguna. Mikilvægt að rýna tölurnar Daði Már þakkaði Sigmundi fyrirspurnina og tók undir með honum að það væri auðvitað mikið áhyggjuefni að verðbólga væri að aukast. Það væri hins vegar mjög mikilvægt að rýna verðbólgutölurnar og skoða í grunninn hver ástæða hækkunarinnar væri. „Það hefur orðið töluverð umræða um það og kemur raunar fram í máli háttvirts þingmanns að stjórnarandstaðan hafi varað við áhrifum breytinga á kílómetragjaldi og vörugjöldum á bifreiðum á vísitölu neysluverðs. Nú liggur mat Hagstofu Íslands fyrir og það kemur í ljós að áhrifin eru nákvæmlega í samræmi við það sem fjármálaráðuneytið spáði og að hækkunin sem er að verða núna á verðbólgu er vegna annarra þátta. Það er hækkunar á eldsneytisverðinu sjálfu, álagningu eldsneytis eða annarra slíkra þátta og álagningu á bifreiðar. Það er auðvitað slæmt. Þegar breytingar eru notaðar til þess að réttlæta hækkanir.“ Það benti hins vegar til undirliggjandi verðbólguþrýstings og nauðsynlegt væri að bregðast við honum. „Það verður ekki gert með niðurgreiðslu verðlags. Það er ekki leið til þess að draga úr verðbólgu, heldur þvert á móti. Yfir þetta hef ég margoft farið í máli mínu hér í þinginu.“ Ríkisstjórn í sýndarveruleika Sigmundur Davíð tók þá til máls öðru sinni og sagði svar Daða Más furðusvar. Hann sagði að svo virtist að Daði Már væri hættur að fylgjast með gangi mála. Í greiningu Hagstofunnar kæmu ástæður aukningar verðbólgu skýrt fram. „Það eru nákvæmlega þær ástæður sem varað var við hér fyrir áramótin. Það er vegna aðgerða ríkisstjórnarinnar og afleiðinga, fyrirsjáanlegra afleiðinga þeirra aðgerða. En ég get ekki skilið svar hæstvirts ráðherra öðruvísi en svo að ríkisstjórnin kjósi að halda áfram að lifa í sínum sýndarveruleika og muni ekki bregðast við, þrátt fyrir að staðreyndirnar liggi fyrir.“ Daði Már svaraði sagði þá að svo virtist sem Sigmundur Davíð hefði ekkert botnað í svörum hans við fyrri fyrirspurn hans og að hann botnaði sömuleiðis ekkert í fyrirspurn Sigmundar Davíðs. „Það sem ég var að segja var að til dæmis í tilfelli breytinga á kílómetragjaldi og rekstrarkostnaði bifreiða er einn fjórði af breytingunni vegna breytinga hins opinbera. Fyrirsjáanleg áhrifin á vísitölu neysluverðs voru 0,05 prósent og varðandi vörugjöldin er um helmingurinn vegna breytinga hins opinbera, annað verður að sækja annað. Og það að háttvirtur þingmaður telji að hann hafi séð fyrir álagningarákvarðanir einkafyrirtækja finnst mér auðvitað bara mjög merkilegt og bendir til ýmissa tenginga sem ég reiknaði ekki með að væru til staðar.“
Efnahagsmál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Skattar, tollar og gjöld Verðlag Alþingi Viðreisn Mest lesið Áslaug Arna í gervigreindina hjá CCP Viðskipti innlent Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Viðskipti innlent Fer frá laxeldi í eldri borgara Viðskipti innlent Sektir Neytendastofu á bílastæðafyrirtækin „dropi í hafið“ Neytendur Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Viðskipti innlent Farþegum fækkaði milli ára Viðskipti innlent Tollar kísilframleiðslu í Kína Viðskipti erlent Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Viðskipti innlent Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Viðskipti innlent Innkalla te sem innihélt ál Neytendur Fleiri fréttir Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá CCP Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Fer frá laxeldi í eldri borgara Farþegum fækkaði milli ára Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Von á hóflegum hagvexti næstu árin Ingibjörg og Tómas taka við af Þórunni hjá Úrval Útsýn Rikka hætt hjá Ólafi Ragnari Eykur strandveiðikvótann um 964 tonn Þórunn stígur til hliðar hjá Úrvali Útsýn Gistinóttum á hótelum fækkaði milli ára Opna þriðju verslunina í Kaupmannahöfn Oculis tekur kipp í örviðskiptum eftir tilkynningu Fyrrverandi forstjóri Play í landeldið Framkvæmdastjórinn heldur frídag verslunarmanna heilagan Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Tvírukkaðar færslur leiðréttar Niceair horfir til Evrópu eftir brösuga byrjun Ekki erfitt að skila hagnaði í gósentíð hávaxtaumhverfis Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Rúmlega fimmtán milljarða hagnaður Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Samkeppniseftirlitið leggur blessun sína yfir samruna Brims og Lýsis Bæta við sex nýjum Airbus-vélum María Fjóla lætur af störfum hjá Hrafnistu Fyrsta apótek Víkur opnað Skuldir hækka og afkomuspá lækkar Stóru fyrirtækin geti jafnvel orðið öflugri innan ESB Sjá meira