Hýdd 140 sinnum fyrir áfengisneyslu og kynlíf utan hjónabands Hólmfríður Gísladóttir skrifar 30. janúar 2026 07:47 Alls voru sex hýddir opinberlega í Aceh í gær fyrir hin ýmsu siðferðisbrot. Getty/Riza Azhari Maður og kona voru hýdd 140 sinnum í Aceh í Indónesíu í gær, fyrir að hafa neytt áfengis og stundað kynlíf utan hjónabands. Bæði voru lamin í bakið með priki í almenningsgarði á meðan tugir fylgdust með en á endanum leið yfir konuna.
Sjaría lög hafa gilt í Aceh-héraði frá því að því var veitt sjálfstjórn að hluta árið 2001. Áfengisneysla, veðmál, kynlíf utan hjónbands og kynlíf einstaklinga af sama kyni eru meðal þess sem hefur verið bannað alla tíð síðan og viðurlögin hýðingar. Bæði maðurinn og konan voru dæmd til að hljóta 40 högg fyrir áfengisneyslu og 100 högg fyrir kynlíf utan hjónabands. Um er að ræða einn strangasta dóminn sem fallið hefur frá því að lögin tóku gildi. Konan missti meðvitund á meðan ofbeldið stóð yfir og var flutt í sjúkrabifreið.Getty/Riza Azhari Fjórir aðrir voru hýddir í gær, meðal annars lögreglumaður og kona sem voru gripin glóðvolg í miklu návígi við hvort annað. Hlutu þau 23 högg hvort. Yfirmaður lögreglunnar í Aceh ítrekaði í samtali við AFP að sömu lög giltu fyrir lögreglumenn og aðra. Tveir menn voru hýddir opinberlega í fyrra og hlutu 76 högg hvor, eftir að þeir voru fundnir sekir um að hafa átt í kynferðislegum samskiptum.
Indónesía Mest lesið Kannast þú við Tommy? Innlent Ísland hefur sagt sig frá orkusáttmálanum Innlent Ömurlegt að sjá skilaboð á veggnum sem geti ekki talist annað en pólitísk Innlent Ungmenni réðust að konu með höggum og spörkum í Mjóddinni Innlent „Ekki einhverjir krúttlegir krakkar að leika sér í tölvum“ Innlent Framkvæmdastjóri Hopp vill ráða sófakappana Innlent Borgarfulltrúar til rannsóknar vegna gagnaleka Innlent Upplausn á Ártúnshöfða og þolinmæði á þrotum Innlent Taldi sig mega fara með fimmtán ára stúlku um borð Innlent Aðstandendur „Kannabis Inc“ dæmdir í fangelsi Innlent Fleiri fréttir Skaut tvo til bana og særði sex með Kalishnikov-riffli Vopnahléið í öndunarvél eftir „rusl“ svar klerkastjórnarinnar Fjaðrafok vegna ásakana um kynlífsþrælkun á Wall Street ChatGPT sagt hafa ráðlagt byssumanni að myrða börn Hafna því að hantaveiran hafi borist frá hjara veraldar Viðræður virðast stranda á kjarnorkumálunum „Gjörsamlega óásættanlegt“ Frakki sýndi veirueinkenni og allir fimm skikkaðir í einangrun Fallhlífastökkvarar aðstoða með hantasmit á afskekktri eyju „Lífið heldur bara áfram sinn vanagang“ Fyrrverandi ráðherra vill þvinga fram leiðtogakjör Fyrstu farþegar hantaveiruskipsins farnir frá borði á Tenerife Skildu skriðdrekana eftir á víglínunni Loftárásir skekja vopnahlé í Líbanon Yfirmaður WHO hughreystir Tenerife-búa Maður varð fyrir flugvél á flugbraut og lést Bandarískur ellilífeyrisþegi býður vegfarendum tugi milljóna Einn í lífshættu eftir að bíl var ekið inn í þvögu Myndir af lífinu um borð í hantaveiruskipinu Farage sextánfaldar sætin á sveitarstjórnarstiginu Farþegi Norrænu greindist með annað afbrigði hantaveiru Venstre fá umboð til að mynda ríkisstjórn Þriggja daga vopnahlé í Úkraínu Frederiksen á fund konungs vegna þráteflis Sátu um tóman banka í sex tíma Samföngum Maxwell refsað fyrir að tjá sig Stærsta haldlagning á rafmynt í sögu Svíþjóðar Umsátur í Þýskalandi: Bankarán varð að gíslatöku Segjast aldrei hafa séð Epstein-bréfið meinta áður Ekkert vopnahlé heldur umfangsmiklar árásir í Rússlandi Sjá meira