Vísar því á bug að HSÍ fái ekkert fyrir sinn snúð Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 30. janúar 2026 19:06 Einar Logi Vignisson er auglýsingastjóri Ríkisútvarpsins. Vísir/Samsett Auglýsingastjóri RÚV segir það af og frá að Ríkisútvarpið stórgræði á auglýsingasölu á leikjum íslenska handboltalandsliðsins á Evrópumótinu. Auknar auglýsingatekjur vegna góðs gengis strákanna okkar nemi ekki nema fáeinum prósentum á milli móta og hluti teknanna skili sér sömuleiðis til Handknattleikssambandsins.
Einar Logi Vignisson hefur farið fyrir auglýsingadeild RÚV um árabil. Fréttastofa hafði samband við hann vegna gagnrýni á auglýsingasölu Ríkisútvarpsins á meðan Evrópumótinu stendur sem gætt hefur víða á samfélagsmiðlum. Á Facebook og TikTok hefur ríkismiðillinn verið vændur um að hala inn tekjum á meðan HSÍ sitji fjársvelt eftir. Þetta segir Einar Logi ekki standast skoðun. Auglýsingar skili milljónum til HSÍ Sýningarréttinn kaupi Ríkisútvarpið af Evrópska handknattleikssambandinu á háar fjárhæðir og umgjörðin í kringum mótið kosti sömuleiðis sitt. Verð á auglýsingaplássi fyrir leik og í hálfleik sé fyrst og fremst hugsað til að standa undir kostnaði. Þá selji RÚV einnig svokallaðar handboltakveðjur og hluti teknanna af þeim fer til Handknattleikssambandsins. Kveðjurnar skila nokkrum milljónum á hverju móti í kassa HSÍ, að sögn Einars Loga. Hann segir það sömuleiðis algengan misskilning að plássið verði dýrara eftir árangri landsliðsins. Sekúndan kosti það sama á úrslitaleiknum og öllum öðrum leikjum, meira að segja ef við leggjum Dani í kvöld. Gengi liðsins skipti þannig ekki miklu hvað auglýsingatekjurnar varðar. Til að mynda segir hann tekjurnar þennan janúar aðeins fáeinum prósentum meiri en á síðasta stórmóti. „Það er horft sama hvernig gengur. Það er það fallega við þetta. Íslendingar halda með sínum mönnum í blíðu og stríðu.“ Áhorf stöðugt hvernig sem gengur Hann bendir einnig á að það sé ólíku saman jafnað beri maður saman Evrópumót í knattspyrnu og handbolta. Á stórmótum í handbolta séu það aðeins leikir Íslands sem laði að þennan fjölda áhorfenda en á Evrópumótum í knattspyrnu sé áhorfið talsvert jafnara leikja á milli. „Ég fagna því að fólk vilji styðja við handbolta á Íslandi. Það er frábært að fólk vilji styrkja HSÍ og um að gera að vekja athygli á bágri fjárhagsstöðu Handknattleikssambandsins,“ segir Einar Logi.
Ríkisútvarpið Handbolti HSÍ Auglýsinga- og markaðsmál Fjölmiðlar Mest lesið Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Innlent Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Fleiri fréttir Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Sjá meira