Eitt besta skautalið heims í Reykjavík: „Við myndum elska að keppa við Ísland“ Sindri Sverrisson skrifar 3. febrúar 2026 09:02 Þær Georgina Yardy og Brynn Wilkinson eru hæstánægðar með að fá að koma til Íslands í nokkra daga. vísir/Bjarni Eitt fremsta lið heims í samhæfðum skautadansi, NEXXICE frá Kanada, æfir þessa dagana í Reykjavík. Þjálfari liðsins og fyrrverandi heimsmeistari hvetur Íslendinga til að láta til sín taka í greininni að nýju.
Kanadíska liðið heldur sérstaka sýningu fyrir Íslendinga í Skautahöllinni í Reykjavík í dag, áður en liðið heldur á stórt mót í Finnlandi. Liðið sýnir stutta prógrammið sitt klukkan 17:20 og sérstök eftirvænting ríkir svo fyrir frjálsa prógramminu sem liðið sýnir um klukkan 18, þar sem sóttur er innblástur í kvikmyndina Wonder Woman. „Ég er svo spennt. Við elskum prógrömmin okkar svo mikið og það er svo gaman að fá að sýna fólki,“ segir Georgina Yardy, einn af meðlimum NEXXICE. Um er að ræða lið sem orðið hefur heimsmeistari í tvígang, árin 2009 og 2015. „Þær eru bara mjög góðar. Þær eru á topp tíu á heimsmælikvarða og hafa orðið heimsmeistarar tvisvar sinnum. Þjálfari liðsins hefur komið áður til Íslands og við þekkjumst ágætlega. Hún spurði mig hvort að þetta væri möguleiki og við gripum gæsina. Frábært að fá þær hingað,“ segir Ásdís Rós Clark, íþróttastjóri listskautadeildar SR. View this post on Instagram A post shared by Skautafélag Reykjavíkur List (@sr_list) Ásdís þekkir vel til Jennifer Beauchamp-Crichton sem er annar þjálfara NEXXICE í ferðinni og var í heimsmeistaraliðinu árið 2009. „Við höfum rætt um það í nokkur ár að vilja koma með liðið okkar til Íslands. Þetta var fullkomið tækifæri úr því að við erum á leið til Helsinki á mót, að geta æft hérna og verið á þessum fallega stað. Við elskum þessa höll og erum mjög spennt að fá að sýna listir okkar,“ segir Jennifer sem hefur áður komið til Íslands að þjálfa, þó að nokkuð sé um liðið síðan þá. Ísland hefur átt slitrótt samband við samhæfðan skautadans en upp úr aldamótum varð hér til lið sem varð fyrsta íslenska kvennalandsliðið í hópíþrótt til að komast á Heimsmeistaramót. Íþróttin hefur legið í ákveðnum dvala síðustu ár en til stendur að breyta því og hver veit nema að Nexxis þurfi að keppa við Skautafélag Reykjavíkur í framtíðinni: „Það væri bara stórkostlegt. Við myndum elska að keppa við Ísland. Því fleiri lönd því betra,“ segir Jennifer. Ásdís Rós Clark og hennar fólk hjá SR vinnur að því að íslenskt lið keppi að nýju í samhæfðum skautadansi.SR „Við erum að byrja núna með nýtt lið,“ segir Ásdís Rós sem var í kvennalandsliðinu sem fór á HM 2003. „Við áttum lið hérna áður en því miður hætti samhæfður skautadans hérna á Íslandi í kringum árið 2015. En við erum að vonast til að geta byggt aftur upp lið og átt mögulega lið einhvern tímann aftur á heimsmeistaramóti,“ bætir hún við. Stelpurnar í NEXXICE mæla í það minnsta heils hugar með íþróttinni. „Þetta tekur mikið á en ég er svo þakklát því við fáum að gera það sem við elskum á hverjum einasta degi. Það eru ekki margir sem fá tækifæri til þess,“ segir fyrrnefnd Georgina Yardy og liðsfélagi hennar, Brynn Wilkinson, skýtur inn í: „Sérstaklega ekki á svona fallegum stað eins og hér á Íslandi.“
Skautaíþróttir Mest lesið Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Íslenski boltinn „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Íslenski boltinn Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Enski boltinn Hitti nýjustu stjörnu íslenska körfuboltans í skólanum Körfubolti Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Fótbolti Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Enski boltinn „Við verðum að líta í eigin barm“ Enski boltinn Hákon Arnar meiddist Fótbolti Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona Fótbolti „Guð morning!“ Enski boltinn Fleiri fréttir Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona Kimi vann í Texas en þarf að bíða í viku til að verða heimsmeistari „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Martin öflugur þegar Alba Berlin endaði taphrinuna Katla tryggði Fiorentina sigur Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Ómar Ingi og félagar nálgast toppsætið eftir sigur á Hauki Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Ásdís Karen með tvennu í góðum sigri Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Bruno settur á bekkinn Bræður bættu stigamet pabba þeirra Sjáðu rauða spjald Palmer og Arsenal jafna Man. City Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór Árni Ágúst grátlega nálægt því að bæta met Emin Kadri heldur áfram að vera ósigraður „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Sjá meira