„Þeir setja pressu á alla og gera allt óþægilegt“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. febrúar 2026 12:03 Ægir Þór Steinarsson og félagar i Stjörnunni eru á svakalegu skriði og rúlla upp hverju stórliðinu á fætur öðru. Vísir/Vilhelm Sérfræðingarnir í Bónus Körfuboltakvöldi eru skiljanlega afar hrifnir af Stjörnuliðinu sem keyrir yfir flesta mótherja sína þessa dagana í Bónusdeild karla í körfubolta. 38 stiga stórsigur á Stólunum í síðustu umferð sýndi öðrum liðum hversu svakalega öflugir Garðbæingar eru orðnir. „
Hlynur Bæringsson, þú útskýrir kannski fyrir okkur það sem þú kallar aggressjón hjá Stjörnumönnum. Hvernig þeir eru að koma inn í leikina á báðum endum vallarins,“ sagði Stefán Árni Pálsson. Stjarnan skoraði 35 stig í fyrsta leikhluta á móti Stólunum og Garðbæingar voru strax komnir sextán stigum yfir. Snöggir úr vörn í sókn „Í fyrsta lagi sjáum við bara hvað þeir eru bara ‚physical' út um allan völl. Þeir pressa og svo eru þeir svo snöggir úr vörn í sókn,“ sagði Hlynur og ráðleggur áhorfendum að læra af Stjörnuliðinu. Klippa: Körfuboltakvöld: Stjörnumenn líta mjög vel út „Lærið af þessu, hvað þeir eru snöggir upp. Þeir setja pressu á alla því þeir setja ekki bara pressu á góða skotmenn eða bakverði. Þeir setja pressu á alla og gera allt óþægilegt,“ sagði Hlynur. Hann bendir á það að Stjörnumenn séu með marga líkamlega sterka leikmenn. Þetta var bara töff „Hjá mörgum liðum er þetta byrjað að snúast um að reyna að finna einhvern lélegan varnarmann. Það væri þá helst Pablo [Bertone] en hann var stórkostlegur í kvöld. Það er erfitt að ‚targeta' einhvern hjá Stjörnunni og ætla að fara að níðast á honum eitthvað varnarlega. Ég var bara mjög hrifinn af þessu og þetta var bara töff,“ sagði Hlynur. Hann hrósaði líka Pablo Bertone fyrir að sýna fagmennsku með því hvernig hann tók við mótlætinu þegar lítið gekk upp hjá honum. „Honum til hróss þá var hann bara ‚prófessíonal' og fór ekki bara í fýlu eins og sumir í þessari deild,“ sagði Hlynur. Þetta er geggjað lið Sjö leikmenn í Stjörnunni sem skora yfir tíu stig í þessum leik. „Allir þeir sem spiluðu leikinn voru frábærir í þessum leik. Ægir spilaði ekki síðustu tólf mínúturnar, held ég, af því að hann þurfti þess ekki. Seth LeDay er búinn að vera rosalegur eftir áramót. Þetta er geggjað lið,“ sagði Magnús Þór Gunnarsson. Næst á dagskrá hjá Stjörnumönnum er undanúrslitaleikur á móti Keflavík í VÍS-bikarnum í kvöld þar sem er í boði sæti í bikaúrslitaleiknum á laugardaginn. Leikurinn fer fram í Smáranum og hefst klukkan 17.15.
Körfuboltakvöld Stjarnan Bónus-deild karla Mest lesið Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport „Betra liðið tapaði” Fótbolti „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ Íslenski boltinn „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Elvar Már óvænt til Tenerife út tímabilið Pirraður yfir því hvernig Baldur yfirgaf Stjörnuna Grét alla Reykjanesbrautina Sjá meira