Fjölskyldu konunnar grunaði ekkert Árni Sæberg og Smári Jökull Jónsson skrifa 3. febrúar 2026 15:33 Konan lést á hjúkrunarheimili í Vestmannaeyjum um helgina. Vísir/Vilhelm Fjölskyldu konu á tíræðisaldri, sem lést á hjúkrunarheimilinu Hraunbúðum í Vestmannaeyjum í síðustu viku, grunaði ekki að andlátið gæti hafa borið að með saknæmum hætti fyrr en Lögreglan á Suðurlandi hafði samband við hana um helgina. Lögreglan í Vestmannaeyjum sagði sig frá rannsókn málsins vegna fjölskyldutengsla starfsmanns hennar við konuna.
Þetta herma heimildir Vísis en mikið hefur verið fjallað um málið frá því að tveir starfsmenn hjúkrunarheimilisins voru handteknir í gær. Farið hefur verið fram á gæsluvarðhald yfir þeim báðum en ákvörðun dómara um það liggur ekki enn fyrir. Krafa um gæsluvarðhald var tekin fyrir í hádeginu. Samkvæmt heimildum Vísis lést konan á miðvikudag í síðustu viku eftir að hafa þegið líknandi meðferð á hjúkrunarheimilinu um nokkurt skeið. Rannsókn lögreglu hafi hafist á laugardag en á sunnudag hafi Ríkissaksóknari óskað eftir því við Lögregluna á Suðurlandi að hún tæki yfir rannsóknina. Sem áður segir grunaði fjölskylduna ekki að andlát konunnar hefði borið að með saknæmum hætti en hún var að undirbúa útför konunnar þegar lögregla tilkynnti henni um að rannsókn væri hafin á andlátinu. Útförin átti að fara fram síðar í vikunni en nú hafa jarðneskar leifar konunnar verið fluttar upp á land til krufningar.
Vestmannaeyjar Lögreglumál Lögreglan Rannsókn á andláti í Hraunbúðum í Eyjum Mest lesið Sjö ára dómur Innlent Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Veður Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað Innlent Ekki ástæða til að rýma bankann Innlent Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Innlent Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Innlent Georg Páll er næsti forseti ASÍ Innlent Fleiri fréttir Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Hafa sett upp keðjur og bönd við Reynisfjöru Sjá meira