Segir að Repúblikanar eigi að „þjóðnýta“ næstu kosningar Samúel Karl Ólason skrifar 3. febrúar 2026 16:16 Donald Trump hefur ítrekað haldið því fram að kosningasvindl hafi kostað hann sigur í forsetakosningunum 2020. Þær ásakanir hafa ítrekað reynst innihaldslausar. AP/Alex Brandon Tulsi Gabbard, yfirmaður leyniþjónusta Bandaríkjanna, sagði þingmönnum í gær að hún hafi verið viðstödd húsleit útsendara Alríkislögreglu Bandaríkjanna (FBI) í húsnæði kjörstjórnar í Fulton-sýslu í Georgíu, af því Donald Trump hafi beðið hana um að vera þar. Þá viðurkennir hún að hafa gert Trump kleift að ræða við starfsmenn FBI sem framkvæmdu húsleitina en segir að hvorki hún né Trump hafi gefið þeim skipanir.
Í viðtali sem hann veitti í gær staðhæfði Trump að hann hefði í raun sigrað í forsetakosningunum 2020 og hélt því fram að umfangsmikið kosningasvindl hefði verið notað til ræna hann sigri. Þetta er ekki satt, þó Trump hafi ítrekað haldið því fram. Þessa lygi notaði Trump til að halda því fram í viðtalinu að Repúblikanar ættu að „þjóðnýta“ þingkosningarnar í nóvember og taka þar með völdin til að halda utan um kosningar af ríkjum Bandaríkjanna. Þetta var meðal þess sem Trump sagði í viðtali við Dan Bongino, hlaðvarpsmann sem er nýhættur í starfi sínu sem næstráðandi hjá FBI. Trump skipaði hann í embættið. Trump sagði einnig í viðtalinu að hann hefði sigrað í einhverjum ríkjum 2020 þar sem úrslitin hefðu ekki sýnt það og vísaði sérstaklega til Georgíu. Trump: "These people were brought to our country to vote, and they vote illegally. The Republicans should say, we should take over the voting in at least 15 places. The Republicans ought to nationalize the voting. We have states that I won that show I didn't win. You're gonna see… pic.twitter.com/H5hT3OvtLE— Aaron Rupar (@atrupar) February 2, 2026 Samkvæmt stjórnarskrá Bandaríkjanna er það í höndum ráðamanna hverra ríkja vestanhafs að halda utan um kosningar þar. Eins og bent er á í grein Washington Post veitir stjórnarskráin ekki forseta vald þegar kemur að kosningum. Þá hafa Repúblikanar um árabil talað fyrir því að tryggja réttindi stakra ríkja í Bandaríkjunum gegn öflugri alríkisstjórn. Í grein Politcio um þau ummæli Trumps að Repúblikanar ættu að þjóðnýta kosningarnar í nóvember segir að þau séu í samræmi við færslu hans á Truth Social, hans eigin samfélagsmiðli, frá því í sumar. Þá hafi hann haldið því fram að ríki Bandaríkjanna héldu um kosningar sem útsendarar alríkisstjórnarinnar. Trump sagði að ráðamenn í stökum ríkjum hefðu skyldu til að hlýða skipunum alríkisstjórnarinnar. Þá hét hann því að skrifa undir forsetatilskipun um að kosningarnar í nóvember yrðu haldnar á „heiðarlegan“ hátt. Slík tilskipun hefur þó aldrei litið dagsins ljós. Fyrr á árinu gaf Trump til kynna að hann hefði hugsað um að „hætta við kosningarnar“. Leita að kosningasvindli Viðvera Gabbard þegar húsleitin var gerð í Georgíu vakti mikla furðu vestanhafs þar sem slíkt tengist störfum hennar sem yfirmaður leyniþjónsta Bandaríkjanna lítið. Í húsleitinni var hald lagt á kjörseðla og önnur gögn kjörstjórnarinnar. Trump hefur oft talað um Georgíu og sérstaklega Fulton-sýslu, þar sem lítill munur var á atkvæðafjölda hans og Bidens í kosningunum 2020. Fjölmargar rannsóknir og endurtalningar hafa þó ekki sýnt fram á að svindl sem hafi skipt máli hafi átt sér stað. Trump var ákærður af yfirvöldum í Georgíu vegna tilrauna hans til að breyta úrslitum kosninganna þar en ákæran var að endingu felld niður. Fjölmiðlar vestanhafs hafa í kjölfarið sagt frá því að Gabbard hafi á undanförnum mánuðum leitt umfangsmikla leit ríkisstjórnar Trumps að vísbendingum um það umfangsmikla kosningasvindl sem hann hefur ítrekað haldið fram að hafi átt sér stað. Hún er sögð hafa rannsakað kosningavélar í Bandaríkjunum, greint gögn frá svokölluðum sveifluríkjum og reynt að rýna í hinar ýmsu kenningar Trumps um kosningasvindlið meinta. Karoline Leavitt, talskona Trumps, sagði á dögunum að markmið ríkisstjórnar Trumps væri að tryggja að ekki verði hægt að svindla í kosningum aftur og að Gabbard leiddi þá vinnu. Trump og Repúblikanar hafa áhyggjur af þingkosningunum sem fara fram í nóvember. Þessar kosningar fara iðulega þannig að flokkurinn sem forsetinn tilheyrir kemur illa út og eins og staðan er í dag líta kosningarnar illa út fyrir Repúblikana. Síðustu mánuði hefur Demókrötum vegnað vel í sérstökum kosningum sem haldnar hafa verið víða um Bandaríkin til að fylla upp í laus þingsæti og önnur embætti. Um helgina sigraði Demókrati til að mynda kosningar um sæti í öldungadeild ríkisþings Texas. Kosningarnar voru í kjördæmi þar sem Trump sigraði Kamölu Harris með sautján prósentustiga mun í forsetakosningunum 2024. Taylor Rehmet, demókrati, sigraði þó kosningar um helgina með fjórtán prósentustiga mun, sem markar rúmlega þrjátíu prósenta sveiflu. Trump sagði á dögunum að ef Demókratar nái meirihluta í fulltrúadeildinni muni þeir líklega gera sitt besta til að ákæra hann aftur fyrir embættisbrot.
Bandaríkin Donald Trump Forsetakosningar í Bandaríkjunum 2020 Þingkosningar í Bandaríkjunum Mest lesið Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent Hafi verið beggja vegna borðsins Innlent „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Innlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Erlent Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Erlent Fleiri fréttir Tígrisdýrið verður ekki aflífað Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfirlýsingu Trumps Fær aukadag til stjórnarmyndunar Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Leó páfi á leið í aðgerð eftir að hnútur fannst á lunga Vara við því að fara um flugvelli í Sádí-Arabíu Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Vill nýjan Úkraínuforseta Lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði Níu létust eftir skotárás Þrjú börn meðal fimmtán látinna í árás á íbúðarblokkir Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Þúsundum gert að yfirgefa heimili sín vegna Isaias Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Trump samdi við Pútín um dísel Vance biðlar til ungra reiðra manna Ætla að „binda enda“ á stríðsglæpadómstól Skólum lokað eftir árásir og tíu handteknir vegna hótana Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur friðarverðlaun Nóbels? Yfir sjötíu þúsund mótmæltu þrátt fyrir umbótatillögur Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Sjá meira