Frá Sjálfstæðisflokki til Samfylkingar og óháðra – af hverju? Bjarni Torfi Álfþórsson skrifar 6. febrúar 2026 07:00 Allt hefur sinn tíma og nú er senn á enda seta mín í bæjarstjórn Seltjarnarness. Ég hlaut fyrst kosningu til þeirra setu fyrir tímabilið 2002–2006 á lista Sjálfstæðisflokksins og svo aftur fyrir öll kjörtímabilin frá 2010. Það hefur svo sannarlega margt breyst á þessum tíma en það er líka margt sem enn er á dagskrá. Í framboðsræðu minni fyrir kosningar 2002 sé ég að ég ræddi vandamál í leikskólum bæjarins en þá voru biðlistar vandamál, sem enn er á okkar borði í dag. Þá hafði ég sömuleiðis orð á því að átak þyrfti í frágangi gatna og að gera þyrfti umhverfismálum hærra undir höfði. Þá sé ég að í minni ræðu sagði ég líka: „Á meðan ástandið er með þessum hætti mun ég ekki geta sagt eins og margir hafa gert að við munum lækka álögur enn frekar á bæjarbúa“. Ég lofaði því líka að það yrði meðvindur á hjólastígum 😊 Álögur í lágmarki og öflug þjónusta Útsvar og fasteignagjöld voru á þessum tíma með því lægsta sem þekktist á landinu og það hefur verið mantra Sjálfstæðismanna á Seltjarnarnesi að alls ekki megi hækka útsvar. Fyrstu fjögur árin mín í bæjarstjórn voru spennandi. Mikið að læra og margt að gera. Ég sat sem formaður skólanefndar og fjölskyldunefndar. Á kjörtímabilinu var unnið að því að sameina Mýrarhúsa- og Valhúsaskóla undir eina stjórnunareiningu og úr varð Grunnskóli Seltjarnarness. Það var unnið að þessu undir þeim formerkjum að þetta væri faglega gott og skólastarfi til góða. Þessu var svo snúið við á því kjörtímabili sem nú er að líða, en í þetta skipti var helsti drifkraftur þess gjörnings að með því að snúa þessu til baka fengi bæjarsjóður tæplega 200 milljónir frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga v/kostnaðar við rekstur sömu grunnskóla! Viðsnúningur í rekstri og þjónustu Á síðustu árum hefur heldur sigið á ógæfuhliðina í rekstri sveitarfélagsins og það er margt sem er með öðrum hætti í dag. Ég sakna til dæmis þorrablótanna sem haldin voru í félagsheimili bæjarins þar sem ég mætti líka á fern 1. des skemmtikvöld með börnum mínum en sá viðburður var ávallt haldinn í Félagsheimilinu, sem nú hefur staðið nánast fokhelt í 6 eða 7 ár. Því er hvíslað að til standi að fjársterkir aðilar hafi áhuga á rekstri þess, en það yrði þá ekki lengur okkar eins og áður var. Rétt eins og nú eru bæjarskrifstofurnar til sölu og húsakynni þeirra nú í leiguhúsnæði, rétt eins og bókasafnið okkar. Þá hafa verið uppi raddir um að reyna að finna áhaldahúsi bæjarins stað í vesturhluta Reykjavíkur! Ósjálfbær rekstur Það er áhugavert að skoða hver niðurstaða A hluta bæjarsjóðs hefur verið frá 2002 en það ár var niðurstaðan jákvæð um tæpar 27 milljónir. Árin á eftir var niðurstaðan áfram jákvæð og best árið 2006 þegar niðurstaðan var jákvæð um 1.700 milljónir. Eftir bakslag hrunsáranna var niðurstaðan aftur jákvæð árin 2010 og til ársins 2014 en síðan þá hefur verið neikvæð niðurstaða öll árin, mest 2023 eða tæpar 900 milljónir. Öll þessi ár hefur minnihluti bæjarstjórnar lagt til útsvarshækkun til að mæta áskorunum í rekstri. Meirihluti Sjálfstæðismanna hafnar þessu alltaf og ber því við að allt sé í hinum bestu málum á sama tíma og bæjarsjóður „grætur“. Nú er prófkjör Sjálfstæðismanna á Seltjarnarnesi um helgina en ekki virðist áhuginn á því mikill. Aðeins 8 einstaklingar sækjast eftir sæti á lista sem mun telja 14 manns en merkilegust er sú staðreynd að aðeins 6 höfðu lýst yfir áhuga á framboði þegar frestur til þess rann út. En hverju ætluðu svo þessir frambjóðendur að lofa? Þeir lofa því sama og frambjóðendur flokksins síðustu kjörtímabila, ábyrga fjármálastjórn og lágar álögur. Þetta hljómar vel en ekki veitir af þegar horft er til þess að á síðustu 8 árum hefur niðurstaða A hluta bæjarsjóðs Seltjarnarness verið neikvæð um þrjúþúsundogsexhundruð milljónir, 3.600.000.000 krónur. Ábyrgur rekstur undirstaða góðrar þjónustu Ég trúi illa á þetta módel Sjálfstæðismanna og reynslan hefur sýnt okkur að það virkar ekki lengur. Fyrir síðustu kosningar sagði ég mig úr Sjálfstæðisflokknum og gekk til liðs við Samfylkingu og óháða. Ég trúi því að nú sjái íbúar á Seltjarnarnesi að Sjálfstæðismenn eru ekki að ráða við rekstur Seltjarnarnesbæjar og að boðskapur okkar á lista Samfylkingar og óháðra er trúverðugri til að ná jafnvægi í rekstri bæjarins eftir kosningarnar í vor. Höfundur er bæjarfulltúi á Samfylkingar og óháðra á Seltjarnarnesi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Samfylkingin Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Seltjarnarnes Mest lesið Halldór 13.06.2026 Halldór Hagfræði almennings Guðmunda G. Guðmundsdóttir Skoðun Að gefast upp Haraldur Eiríksson Skoðun Að senda kjósendum fingurinn Atli Bollason Skoðun Hafa íslenskir neytendur lakari rétt en evrópskir? Arngrímur Stefánsson Skoðun Upplýsingaóreiða ráðherra Hörður Þorsteinsson Skoðun Mikilvægar staðreyndir um lög um brottfararstöð Jóhannes Óli Sveinsson Skoðun Öll trixin í bókinni Árni Guðmundsson Skoðun Skólafrí - skelfing eða sæla Fjalar Freyr Einarsson Skoðun Skynsemi fremur en upphrópanir í útlendingamálum Sævar Þór Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Hafa íslenskir neytendur lakari rétt en evrópskir? Arngrímur Stefánsson skrifar Skoðun Hagfræði almennings Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Veit „óvinur númer eitt“ að hann er númer eitt? Jón Steinar Sæmundsson skrifar Skoðun Að loka augunum fyrir hinu augljósa skrifar Skoðun Færeyingar eru ekki í ESB en… Sigurður Steinar Ásgeirsson skrifar Skoðun Mikilvægar staðreyndir um lög um brottfararstöð Jóhannes Óli Sveinsson skrifar Skoðun Upplýsingaóreiða ráðherra Hörður Þorsteinsson skrifar Skoðun Öll trixin í bókinni Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Dagur í lífi Íslendinga árið 2040 Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Skólafrí - skelfing eða sæla Fjalar Freyr Einarsson skrifar Skoðun Sagan um afganginn sem hvarf Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Að senda kjósendum fingurinn Atli Bollason skrifar Skoðun Hver ertu þegar þú réttlætir að barn sé lokað inni? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Hver borgar þegar ríkið tekur yfir heilbrigðiseftirlitið? Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson,Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skynsemi fremur en upphrópanir í útlendingamálum Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Já, tökum okkur Færeyinga til fyrirmyndar Hjörtur j. Guðmundsson skrifar Skoðun Að gefast upp Haraldur Eiríksson skrifar Skoðun Draghi-skýrslan og Ísland: framleiðni, samkeppnishæfni og kostnaður krónunnar Baldur Pétursson skrifar Skoðun Við þurfum ekki ESB – eða hvað? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Það er verið að efla framhaldsskóla og verkmenntun Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Fullveldið er undirstaða sveigjanleikans: Hvers vegna EES-samstarfið dugar okkur Kristinn Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Seiðkarlar fyrri alda Steingrímur Gunnarsson skrifar Skoðun Hverjir borga brúsann? Franklín Ernir Kristjánsson skrifar Skoðun Þegar rekstrarkröfur grafa undan faglegu starfi í þverfaglegri endurhæfingu Gunnhildur L. Marteinsdóttir skrifar Skoðun Hvað varð um gangbrautirnar? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Misskilningur: RÚV, Silfrið og meint hlutdrægni Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Árnar eru ekki hreinsistöð fyrir sjókvíaeldi Brynjar Arnason skrifar Skoðun Þarf vinnuskóli að vera vesen? Íris Róbertsdóttir skrifar Skoðun Djarfar senur klipptar út Elías Blöndal Guðjónsson skrifar Skoðun Hinn sjö mánaða Sam Fahd Abu Haikal Sveinn Þórhallsson skrifar Sjá meira
Skoðun Hver borgar þegar ríkið tekur yfir heilbrigðiseftirlitið? Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson,Sigrún Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Draghi-skýrslan og Ísland: framleiðni, samkeppnishæfni og kostnaður krónunnar Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Fullveldið er undirstaða sveigjanleikans: Hvers vegna EES-samstarfið dugar okkur Kristinn Karl Brynjarsson skrifar
Skoðun Þegar rekstrarkröfur grafa undan faglegu starfi í þverfaglegri endurhæfingu Gunnhildur L. Marteinsdóttir skrifar