Pípulagningamenn Íslands – Fagkerfi/átak, fagmenn og fagmennska Snæbjörn R. Rafnsson skrifar 6. febrúar 2026 14:02 Pípulagnir eru ein af grunnstoðum samfélagsins. Án þeirra stöðvast daglegt líf, heilbrigði og öryggi. Þrátt fyrir það stendur fagstétt pípulagningamanna á Íslandi frammi fyrir áskorunum sem kalla á samstöðu, framtíðarsýn og markvissa uppbyggingu. Á sama tíma og mikill áhugi er meðal ungs fólks á iðnnámi komast margir þeirra ekki inn í námið. Aldrei hafa fleiri útskrifast í pípulögn en árið 2025. Samhliða því eru ófaglærðir aðilar á markaðnum, og það skýrir að hluta til mikla vöntun á iðnaðarmönnum síðustu ára. Sumir eru með góðan vilja en án formlegrar menntunar, og einnig hafa erlendir aðilar komið til landsins vegna skorts á vinnuafli síðustu ár. Í einhverjum tilfellum starfa þessi aðilar án þess að hafa farið í formlegt raunfærnimat og/eða fengið viðurkennd starfsréttindi hérlendis. Þessi staða og mönnun fagstéttarinnar skapar ójafnvægi sem hefur áhrif á fagmennsku, öryggi og framtíð stéttarinnar. Nú stendur til að búa til kerfi sem dregur skýra línu í sandinn, þar sem aðeins faglærðir sveinar og meistarar, sem hafa starfsréttindi á Íslandi, snúa bökum saman. Átak til uppbyggingar Markmiðið er ekki að útiloka, heldur að byggja upp. Með því að styrkja fagstéttina, hvetja til náms og tryggja að þeir sem starfa við pípulagnir hafi viðeigandi menntun og réttindi, erum við að verja bæði neytendur og fagið sjálft. Pípulagningamenn Íslands – Sameiginlegur vettvangur, reynsla, hvati, fræðsla Facebook‑vefurinn Pípulagningamenn Íslands er sameiginlegur vettvangur faglærðra pípulagningamanna og annarra sem eru faginu stoð og hjálp, svo sem félagasamtaka fagsviðsins, fræðslu og fleira. Þetta er 13 ára gamall vettvangur þar sem fagmenn hafa deilt reynslu sinni, vakið athygli á mistökum og veitt fagsviðinu aðhald og stuðning. Fræðsluvefurinn vatnsidnadur.net hefur samhliða sinnt fræðslu og hvatningu, m.a. með því að kynna nýútskrifaða löggilta pípulagningameistara. Markmiðið er að sameina alla fagstéttina á þessum stað, halda utan um fagstéttina með skýrum og gagnsæjum hætti, bjóða nýsveinum sjálfvirkt inn í samfélagið, kynna nýútskrifaða löggilta meistara, taka út ófaglærða og sækja faglærða sem hafa lokið námi en eru ekki hluti af samfélaginu. Hér er því verið að stuðla að fagmennsku, fræðslu og samstöðu. Í framhaldinu verður unnið markvisst að því að tryggja að aðeins faglærðir pípulagningamenn séu hluti af þessum vettvangi, á sama tíma og hvatt er til náms og raunfærnimats fyrir þá sem vilja stíga skrefið til fulls inn í fagið og verða hluti af samfélagi pípulagningamanna á Íslandi. Framtíðarsýn - Stuðningur Sterk fagstétt byggist á menntun, ábyrgð og samstöðu. Með því að sameina krafta okkar, styðja unga iðnnema og halda faglegum stöðlum háum tryggjum við að pípulagnir á Íslandi standist kröfur framtíðarinnar. Fyrir um sjö árum hófu hið opinbera, fagfélög og fleiri að hvetja fólk til iðnnáms, og það hefur tekist vel, kannski of vel. Nú þurfa sömu hagsmunaaðilar að sýna samstöðu og stuðning í að vinna á því ójanvægi sem hefur skapst. Það er vonandi að tilgangur þessa framtaks sé skýr og að menn átti sig á að hagsmunir neytenda, fagsviðsins og mannvirkjagerðar er undir. Sagan markar sporin — yfirlýsingar og orð úr pontu vísa veginn. Fagstéttin framkvæmir, því er samtal við fagstéttina forsenda. Hvað erum við að gera? Búa til fagkerfi til framtíðar, ekki bara tímabundið átak, þar sem er hvati og eftirfylgni, þar sem fagmenn verða sýnilegir innan fagstéttarinnar, ófaglærðir ekki, sem mun leiða af sér jafnvægi í greininni. Öll fagstéttin á einum stað — Pípulagningamenn Íslands. Óháð því hvort hinn faglærði er sveinn í FIT, meistari í FP, meistari í SI eða annarstaðar. Hér eru lagðar fram raunhæfar og markvissar aðgerðir sem geta markað spor í réttan farveg. Umfang verkefnisins liggur fyrir og það er athyglisverð tölfræði, en nú er óskað eftir samtali og stuðning. Þetta er ekki barátta gegn einstaklingum — þetta er átak fyrir fagið. Höfundur er fagstjóri fb.Pípulagningarmenn Íslands, löggiltur pípulagningameistari og tæknifræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skólp Mest lesið Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman Skoðun Skoðun Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar