Nemendur vilji ekki vera í skólanum á meðan rektor er við stjórnvölinn Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 7. febrúar 2026 10:56 Selma Klara er hagsmunafulltrúi Nemendafélags Háskólans á Bifröst. Samsett/Vilhelm/Aðsend Hagsmunafulltrúi Nemendafélags Háskólans á Bifröst segir að fjöldi nemenda ætli ekki að hefja meistaranám við skólann á meðan núverandi ástand varir. Vantraustsyfirlýsing gagnvart rektor veki upp spurningar um hvort stjórnin forgangsraði hagsmunum einstaklings ofar velferð stofnunarinnar. „
Innan nemendahópsins ríkir nú mikill óróleiki. Margir hafa verulegar áhyggjur af námi sínu, námsframvindu og ekki síst virði háskólagráðu sinnar, en það óöryggi tengist beint þeim skaða sem orðspor skólans hefur hlotið í kjölfar nýlegra atburða. Staðan er orðin það alvarleg að rætt er af vaxandi þunga um úrsagnir og flutning í aðra skóla,“ segir Selma Klara Gunnarsdóttir, hagsmunafulltrúi Nemendafélags Háskólans á Bifröst, í skoðanagrein á Vísi. Mikið hefur gengið á í Háskólanum á Bifröst undanfarnar vikur. Greint var frá því að Félag akademískra starfsmanna við Háskólann á Bifröst (FAB) hefði lýst yfir vantrausti á stjórnsýslu rektors skólans, Margrétar Jónsdóttur Njarðvík. Sjá nánar: Deilur í Háskólanum á Bifröst Vantrauststillagan var samþykkt eftir að í ljós kom að rektor, deildarforseti og rannsóknarstjóri notuðu gervigreindarforritið Claude til að meta réttmæti höfundarstöðu á vísindagreinum hjá akademískum starfsmönnum. Niðurstöður gervigreindarinnar voru síðan nýttar til að kæra þrjá starfsmenn til siðanefndar. Seinna meir sagði Margrét að hún auk deildarforsetans og rannsóknarstjórans hefðu hafið athugun eftir athugasemd aðila sem nýtur nafnleyndar. Í gær ákvað siðanefnd háskólans að hreinsa starfsmennina þrjá af öllum ásökunum. Orð rektors um að allir vinni ekki rétt Selma Klara sakar stjórn skólans um að brjóta gegn siðareglum hans og spyr hvort hún forgangsraði hagsmunum einstaklinga ofar velferð stofnunarinnar í heild. Þá hafi orðræða stjórnarinnar verið ófullnægjandi. Fyrst um sinn hafi stjórnin lýst yfir fullu trausti til rektors en síðar tekið sjálf við sáttaferlinu. Orð Margrétar í viðtali við Rúv í gær féllu einnig ekki í geðið. Þar ræddi Margrét niðurstöðu siðanefndar skólans sem hreinsaði starfsmennina þrjá af öllum sökum. „Viðbrögð rektors við niðurstöðu siðanefndar í dag vekja jafnframt alvarlegar spurningar um dómgreind, ábyrgð og raunveruleikaskyn. Með því að lýsa niðurstöðunni sem „bestu mögulegu niðurstöðu“ og halda því fram að „allir vinni þegar enginn tapar“ er horft fram hjá þeirri staðreynd að vantrausti hefur þegar verið lýst yfir. Í slíku samhengi er augljóst að ekki vinna allir þótt enginn sé talinn brotlegur,“ segir Selma Klara. Vilja ekki stunda nám undir núverandi rektor Auk þess sem nemendur segjast íhuga flutning í aðra skóla, líkt og kom fram hér fyrir ofan, segir Selma Klara að fjölmargir grunnnemar ætli ekki að hefja meistaranám við skólann á meðan Margrét starfi þar. „Sú ákvörðun byggir á brotnu trausti og þeirri sannfæringu að gæði námsins og virði gráðunnar séu í hættu. Þá sérstaklega má nefna þann augljósa tvískinnung í nálgun skólans er varðar gervigreind,“ segir hún. Nemendur við Bifröst megi einungis nota gervigreind til stuðnings og ekki er mælt með því að taka mark á öllu sem hún skilar þar sem hana skortir meðal annars dómgreind og samhengi. Selma Klara telur það því þversagnarkennt að nýta gervigreindarmállíkan til að meta framlag sérfræðinga í ritrýndum fræðigreinum. Óskar eftir hreinskilni Selma Klara óskar eftir formlegu svari frá stjórn skólans innan viku þar sem brugðist er við athugasemdum hennar. „Ég biðla til stjórnar skólans að sýna ábyrgð og endurskoða afstöðu sína. Það er lágmarkskrafa að hagur nemenda og kennara sé settur í forgrunn og að gripið sé til raunverulegra ráðstafana til að stöðva þá þróun sem nú á sér stað.“ Þá vill hún að nemendur séu upplýstir af hreinskilni um stöðu mála. Margrét hefur ekki viljað tjá sig um málið.
Deilur í Háskólanum á Bifröst Háskólar Gervigreind Höfundar- og hugverkaréttur Mest lesið Páll biður einhvern að forða því að Ísland verði að athlægi Innlent Ari „eltihrellir“ eftirlýstur og handtekinn á Kýpur Innlent „Ef læknir myndi skjóta sjúkling þá mætti ekki ákæra hann“ Innlent Landlæknir hafi í raun sakfellt Skúla Tómas Innlent Óttast um fleiri kindur eftir að tík týndist Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Fleiri fréttir „Þarf að hafa afleiðingar ef fólki er lógað af heilbrigðisstofnun“ Mikilvægt að draga lærdóm af gerð gatnamótanna „Vald flugstjórans er náttúrulega alveg klárt“ Segir málið verða að hafa afleiðingar fyrir Skúla Tómas Vestmannaeyjabær áfrýjar til Landsréttar Segir Dag plata með úreltri skýrslu Leiðrétting fréttar: Það sem Þorgerður sagði í raun Íslenskt sumarveður verðmæt auðlind Vara við hættulegum aðstæðum við Sólheimajökul Ari „eltihrellir“ eftirlýstur og handtekinn á Kýpur Hálfs árs hrakfallasögu Herjólfs virðist lokið „Ef læknir myndi skjóta sjúkling þá mætti ekki ákæra hann“ Undirbúa sig fyrir töluvert fleiri gesti á Einni með öllu Bakkakotsvelli lokað vegna rigninga: Grjótharðir golfarar láta í minnipokann Fimmtán ár frá hryðjuverkunum í Útey og Ósló Landlæknir hafi í raun sakfellt Skúla Tómas Óttast um fleiri kindur eftir að tík týndist Úrskurður sagður skapa hættulegt fordæmi og fimmtán ár frá atburðunum í Útey Hamingjuóskum rignir yfir Skúla Tómas: „Vanhugsað strax frá upphafi“ Opna senn fyrir atkvæðagreiðslu utan kjörfundar Bandero innan lögsögunnar á ný Páll biður einhvern að forða því að Ísland verði að athlægi Aukið aðgengi að áfengi auki neyslu Regnboginn verði málaður aftur en með breyttu sniði „Verið að herja á fólk sem er búið að missa maka“ „Mikilvægast að þetta verði ekki eins og einhver hótelsundlaug á Tenerife“ Bandero stefnir í átt að Íslandi á ný Heimurinn aftur orðinn flóknari en NATO muni aðlagast Mikið fylgistreymi milli Miðflokksins og Sjálfstæðisflokksins Toppurinn þegar 450 manns hlupu á eftir Matt Damon Sjá meira