Skora á borgina að virða íbúalýðræði og koma í veg fyrir „þrálátar deilur“ Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 10. febrúar 2026 09:05 Hópur íbúa í hverfi 108 í Reykjavík hafa sent frá sér yfirlýsingu í kjölfar íbúafundar sem haldinn var í síðustu viku vegna fyrirhugaðar opnunar kaffistofu Samhjálpar við Grensásveg þar sem þess er krafist að borgaryfirvöld finni starfseminni aðra og meira viðeigandi staðsetningu. Um tvö hundruð manns hafi mætt á fundinn og það hafi verið augljós skoðun íbúa á fundinum að staðsetningin sé óheppileg. Því sé skorað á Reykjavíkurborg að „virða íbúalýðræði og koma í veg fyrir þrálátar deilur í framtíðinni,“ eins og það er orðað í yfirlýsingunni.
Vísir fjallaði um fundinn sem fram fór í Réttarholtsskóla á miðvikudaginn í síðustu viku en um var að ræða nokkurn hitafund um flutning kaffistofu Samhjálpar í gær. Íbúar sögðust styðja starfsemi kaffistofunnar en voru nær einróma um að finna ætti henni aðra staðsetningu en á Grensásvegi. Framkvæmdastýra Samhjálpar sagði að búið að gera ítarlega leit hjá borg, ríki og fjölda annarra að eign sem henti starfseminni en varaði við því að mál kaffistofunnar yrði gert að pólitísku bitbeini fyrir kosningar í vor. Þá barst yfirlýsing íbúafundarins vegna kaffistofunnar Vísi í dag. „Á fundinum kom fram ríkur skilningur á mikilvægi þess starfs sem Samhjálp sinnir í þágu þeirra sem höllum fæti standa. Starfsemin er ómissandi hlekkur í velferðarkerfi borgarinnar. Á sama tíma eru flestir íbúar sammála um að slík starfsemi fari ekki saman með þeim hagsmunum sem beri að vernda í rótgrónu fjölskylduhverfi. Öryggi barna og fjölskyldna þarf að vega þungt og vera í fyrirrúmi,“ segir meðal annars í yfirlýsingunni. „Fundurinn krefst þess að borgaryfirvöld finni starfseminni viðeigandi staðsetningu. Mikilvægt er að húsnæðið styðji vel við bakið á starfseminni og tryggi um leið góða sambúð við nærumhverfið. Reynsla frá fyrri staðsetningu Samhjálpar sýnir bersýnilega að því miður er augljóst að þessi starfsemi á ekki heima í sama húsnæði og börn og fjölskyldur búi í enda hafi það aldrei verið reynt áður, hvað þá milli grunnskóla í miðju íbúðahverfi.“ Þá er fullyrt í yfirlýsingunni að framkvæmdarstýra Samhjálpar hafi sjálf bent á að húsnæðið við Grensásveg væri ekki það sem best henti þeirra skjólstæðingum. Það kalli meðal annars á sérstakt eftirlit með nærliggjandi húsum auk þess sem ferja þurfi allra viðkvæmustu skjólstæðinga Samhjálpar á staðinn þar sem staðsetningin sé langt frá dvalarstað flestra þeirra. „Skoðun íbúa var augljós og varð enn augljósari eftir fjölmennan íbúafund. Skorað er á borgina að virða íbúalýðræði og koma í veg fyrir þrálátar deilur í framtíðinni,“ segir ennfremur í yfirlýsingunni, sem send er út í nafni Stefáns Björnssonar, eins skipuleggjenda fundarins.
Kaffistofa Samhjálpar Reykjavík Mest lesið Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert Innlent Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Innlent Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Innlent Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Innlent „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ Innlent Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Lífið Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Innlent Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Innlent Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Innlent Móðirin sem Bandaríkjamenn deila um Erlent Fleiri fréttir Fyrstu tölur sýna líklega fleiri nei en já Stútur „með allt í skrúfunni“ Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Þyrluútköllum fjölgað verulega milli ára Hyggst kanna hug íbúa til áforma í Finnafirði Erfiðast að horfa upp á manneskju deyja og geta ekkert gert „Þetta er ekki saklaus könnunarleiðangur“ „Það verður ekki þjónusturof við þessar breytingar“ Fjörutíu og eitt þúsund þegar greitt atkvæði „Það er ekkert við þetta mannúðlegt“ Gagnrýna vinnubrögð meirihlutans: „Allt stefnir í hryllilegt haust” Kvöldfréttir: Hildur og Pétur mætast í beinni um uppsagnir Fyrsta háskólasamstæða landsins tekin til starfa Íslendingar voru alræmdir og lítið traust á milli Hætta að keyra fjarskiptastaði með ljósavélum Staðfesta tæplega níutíu uppsagnir Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu „Það var gott að ná þessu fyrir nóttina“ Ný könnun: Dregur saman milli fylkinga Biðla til pysjubjörgunarfólks að fara varlega „Þetta er erfiður dagur og ferlinu er ekki lokið“ Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Tugum borgarstarfsmanna sagt upp Aukið umferðareftirlit nú þegar skólarnir eru komnir í gang Ný Maskínukönnun frumsýnd í Pallborði Aukafundur um uppsagnir í borginni og vendingar í minkamáli Taka frá sex daga fyrir mál Írisar Helgu Bjarga þúsundum pysja í Eyjum Sonur þingmanns grunaður um að hafa banað föður sínum Maðurinn sem féll í Stuðlagil látinn Sjá meira