Hefjast handa á rúmlega hundrað íbúðum fyrir fyrstu kaupendur Agnar Már Másson skrifar 10. febrúar 2026 17:42 Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, Pálmar Harðarson, framkvæmdastjóri Þingvangs, Valdimar Víðisson, bæjarstjóri Hafnarfjarðar, og Kristín Hrönn Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka. Aðsend Ráðamenn og verktakar tóku í dag fyrstu skóflustungu að nýju uppbyggingarverkefni í Hafnarfirði þar sem reistar verða tæplega fjögur hundruð íbúðir, þar á meðal þriðjungur fyrir fyrstu kaupendur sem fá hlutdeildarlán.
Ragnar Þór Ingólfsson húsnæðismálaráðherra, Pálmar Harðarson framkvæmdastjóri Þingvangs, Valdimar Víðisson bæjarstjóri Hafnarfjarðar, og Kristín Hrönn Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka, tóku í dag fyrstu skóflustunguna að stóru uppbyggingarverkefni við Hjallahraun í Hafnarfirði. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félags- og húsnæðismálaráðuneytinu og Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS). Þar segir að 390 íbúðir verði reistar og þar af þriðjungur fyrir fyrstu kaupendur í gegnum hlutdeildarlán. Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, Hermann Jónasson, forstjóri Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, og Pálmar Harðarson, framkvæmdastjóri Þingvangs. Aðsend Tekið er fram í tilkynningunni að þetta sé fyrsta verkefnið sem stjórnvöld og byggingaraðilar ráðast sameiginlega í eftir að ríkisstjórnin kynnti húsnæðispakka í október og sömuleiðis breytingar á hlutdeildarlánakerfinu, en hlutdeildarlán eru þau lán sem HMS veitir fyrstu kaupendum en einnig þeim sem ekki hafa átt íbúðarhúsnæði síðastliðin fimm ár og eru undir tilteknum tekjumörkum. Í fyrsta áfanga verkefnisins verði byggðar 177 íbúðir og þar af 60 íbúðir hið minnsta fyrir þau sem uppfylla skilyrði hlutdeildarlána. Verkefnið hefur verið í bið í einhver ár en Þingvangur hafði áður undirbúið uppbyggingu á íbúðum í Hjallahrauni en hætti við verkefnið um mitt ár 2024, vegna hárra vaxta og óvissu um sölu, samkvæmt tilkynningunni. Nú hafi verkefnið verið endurhannað til að falla að skilyrðum hlutdeildarlána svo að a.m.k. 60 íbúðir passi inn í ramma hlutdeildarlána. Íbúðunum hafi því fjölgað en meðalstærð þeirra minnkað frá fyrri hönnun. Samkvæmt viljayfirlýsingu sem undirrituð var samhliða skóflustungunni er samstarfið á milli stjórnvalda og byggingaraðila grundvöllur þess að hægt sé að fara af stað með þetta stóra uppbyggingarverkefni á höfuðborgarsvæðinu og auka framboð íbúða verulega, þar með talið íbúða innan hlutdeildarlánakerfisins. Haft er eftir Ragnari Þór Ingólfssyni, félags- og húsnæðismálaráðherra, að breytingarnar gjörbreyti stöðunni. „Með því að ríki, sveitarfélög og uppbyggingaraðilar gangi sameinuð til verks rjúfum við kyrrstöðuna og tryggjum framboð á íbúðum sem henta fyrstu kaupendum og falla inn í hlutdeildarlánakerfið. Uppbyggingaraðilar geta þá byggt sérstaklega inn í kerfið sem áður var ekki mögulegt,“ er haft eftir ráðherranum. Pálmar Harðarson, framkvæmdastjóri Þingvangs, mun hafa fagnað áfanganum samkvæmt tilkynningunni. „Þingvangur hefur beðið lengi eftir að geta hafið þessa uppbyggingu og núna er það mögulegt þegar félags- og húsnæðismálaráðherra leggst á vogarskálarnar með okkur ásamt Hafnarfjarðarbæ, fjárfestum og Íslandsbanka. Ég vil þakka þeim sérstaklega fyrir að leggja sitt af mörkum svo hægt sé að koma verkefninu af stað,“ er haft eftir honum. Þá er haft eftir Valdimar Víðissyni, bæjarstjóra Hafnafjarðar, að gleðilegt sé að sjá gott samstarf á milli byggingarverktakanna og ríkisstjórnarinnar í þessu verkefni. „Bæjarfélagið hefur átt í góðu samstarfi við Þingvang og sýnt sveigjanleika þegar kemur að skipulagsskilmálum. Ekki hefur verið slegið slöku við í íbúðauppbyggingu hér í Hafnarfjarðarbæ síðustu ár og við ætlum að axla þá ábyrgð áfram.“
Húsnæðismál Lánamál Hafnarfjörður Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira