Villigötur eru ekki alltaf merktar – svar við skoðun Bjarna Torfa Lárus Gunnarsson skrifar 11. febrúar 2026 07:02 Það er orðið nokkuð algengt að fyrrverandi sjálfstæðismenn lýsi pólitísku ferðalagi sínu til vinstri sem einhvers konar uppvakningu eða siðferðislegri endurfæðingu. Í slíkum pistlum er fortíðin gjarnan einfölduð og Sjálfstæðisflokkurinn gerður að vandamálinu sem þurfti að yfirgefa. Pistill Bjarna Torfa á Vísi.is þann 6.febrúar s.l. er þar dæmigerður, ekki vegna þess að hann greini vandamál Sjálfstæðisflokksins, heldur vegna þess að hann endurspeglar þá ringulreið sem ríkir þegar hugmyndafræði víkur fyrir tilfinningum. Bjarni Torfi gerir talsvert grín að prófkjöri Sjálfstæðisflokksins á Nesinu sem var laugardaginn 7.febrúar og fjölda frambjóðenda sem bauð sig fram. Það er áhugavert sjónarhorn, sérstaklega í ljósi þess að kjörsókn í prófkjörinu var öflug og hreinlega meiri en þegar Bjarni Torfi sjálfur tók þátt í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins 2018, þrátt fyrir að frambjóðenda hópurinn þá hafi verið fjölmennari. Fjöldi frambjóðenda er ekki vísbending um áhuga heldur endurspeglast áhuginn í góðri þátttöku í prófkjörinu sjálfu. Þegar kemur að fjölda frambjóðenda skiptir mestu máli hverjir stíga fram. Í þessu prófkjöri komu fram einstaklingar sem hafa skapað verðmæti í raunhagkerfinu, rekið fyrirtæki, greitt laun, staðið skil á skuldum og þurft að taka ábyrgðarfullar ákvarðanir með eigin fjármuni en ekki skattfé annarra. Á vinstri listum, bæði í sveitarstjórnum og á landsvísu, hefur þróunin verið sú að sífellt fleiri frambjóðendur koma úr kerfum þar sem tekjur eru tryggðar óháð árangri: úr stjórnsýslu, hagsmunasamtökum og bótakerfum. Þegar slíkir hópar verða ráðandi í stjórnmálum, breytist forgangsröðunin og meðferð á almannafé eins og sést nú á landsvísu. Þegar rætt er um rekstur bæjarins er líka mikilvægt að horfa á ábyrgð þeirra sem hafa stýrt honum. Bjarni Torfi hefur verið hluti af bæjarstjórn í yfir tvo áratugi og tekið þátt í ákvarðanatöku um rekstur bæjarins sem hann nú gagnrýnir. Gagnrýni á stöðuna verður því að fara saman við viðurkenningu á eigin hlutdeild. Nýir frambærilegir frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins á Seltjarnarnesi eru skýr vísbending um styrk flokksins til að laða að hæft og drífandi fólk sem, á grunni sjálfstæðisstefnunnar, mun leiða bæinn áfram og tryggja bæjarbúum betri þjónustu og öflugra samfélag. Nú blasir við nýtt framboð á Seltjarnarnesi þar sem Samfylking, óháðir og Viðreisn hyggjast bjóða fram saman. Það er athyglisverður samsuðningur ólíkra hópa meðsameiginlegan vilja til að vera „ekki Sjálfstæðisflokkurinn“. Sá sem skilgreinir sig fyrst og fremst út frá því hvað hann er ekki, á sjaldnast skýra hugmynd um hvað hann ætlar að verða. Villigötur eru oftast aðlaðandi í byrjun. Þær eru breiðar, greiðfærar og fullar af góðum ásetningi. Vandinn er bara sá að þær leiða sjaldnast heim. Höfundur var frambjóðandi í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins þann 7.febrúar s.l. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Seltjarnarnes Sjálfstæðisflokkurinn Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson Skoðun Skoðun Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar