„Þessi helvítis ESB þráhyggja” Arnar Steinn Þórarinsson skrifar 11. febrúar 2026 07:46 „Það er ekki hægt að semja um neitt” „ESB er rót alls ills” „Þorgerður Katrín ætlar að smygla okkur inn bakdyramegin í Brussel” „Þorgerður er að stunda valdarán” „Viðreisn er með ESB þráhyggju!” „Það er verið að ógna fullveldinu okkar” „Þau ætla bara að kljúfa þjóðina” „ESB er drasl” Þetta eru þær neikvæðu setningar sem maður heyrir oft þegar „hræðilega” Evrópusambandið er rætt. Ég er sjálfur ESB sinni og trúi því að hagsmunum okkar Íslendinga sé betur borgið innan ESB. Ég held að tækifæri og ekki síst tækifæri unga fólksins yrðu fleiri, ég held að lítil og meðalstór fyrirtæki myndu hagnast gífurlega á því að vera með stöðugan gjaldmiðil og ég held að við Íslendingar yrðum mjög glaðir með það að fá aðgang að þeim ótalmörgu sjóðum sem fylgja inngöngu. Sjóðir sem myndu hagnast ungu fólki, fyrirtækjum og ekki síst landsbyggðinni. Væri ekki geggjað að fá hér nokkur stykki af innviða framkvæmdum sem væru með skilti á sér sem stæði á: „Funded by the EU.” Þetta er allt eitthvað sem gæti orðið raunveruleiki hér á Íslandi. En ekki nema við kíkjum í pakkann, förum í þessa vegferð jákvæð, sjáum hvað er raunverulega í boði og förum yfir kosti og galla. Að sjálfsögðu eru neikvæðir hlutir við ESB og margt sem þarf að bæta innan sambandsins. En það er líka margt neikvætt við EES og NATO en það eru samt í dag hlutir sem við Íslendingar gætum ekki hugsað okkur að segja okkur úr. Evrópusamvinna skiptir svo miklu máli á þessum tímum. Því saman stöndum við sterk og sérstaklega með þjóðum sem standa vörð um sömu grunngildi og við Íslendingar. Við eigum skilið að fá að kjósa um þetta mál og munum fá að gera það undir núverandi ríkisstjórn, sem treystir þjóðinni. Það að vera ósammála nágranna þínum um það hvort að Ísland ætti að ganga inní Evrópusambandið kallast ekki að kljúfa þjóðina. Það kallast lýðræði. Tökum yfirvegaða og jákvæða umræðu um kosti og galla inngöngu. Hættum að benda fingrum og hættum tala með svona mikilli neikvæðni. Þetta varðar framtíðina okkar allra. Lífskjör eru góð á Íslandi. Það er gott að búa á Íslandi og við eigum að vera stolt af okkur. En hvað ef ég sagði þér að hlutirnir gætu orðið aðeins betri. Myndirðu ekki allavega tékka? Höfundur er í stjórn Uppreisnar, ungliðahreyfingu Viðreisnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Mest lesið Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason Skoðun Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? Jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Sjá meira
„
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar