„Þá er Ísland eina landið í heiminum þar sem læknar veita ekki dánaraðstoð” Ingrid Kuhlman skrifar 14. febrúar 2026 08:02 Um þögn, grá svæði og stjórnsýslulega ábyrgð Árið 2017 hélt Rob Jonquière, læknir og þáverandi framkvæmdastjóri Heimssamtaka félaga um dánaraðstoð (World Federation of Right to Die Societies), erindi á málþingi um dánaraðstoð sem Siðfræðiráð Læknafélags Íslands hélt fyrir lækna. Þar rakti hann þróun löggjafar um dánaraðstoð og benti á að hún væri veitt utan laga víða um heim, jafnvel þar sem hún væri formlega bönnuð. Íslenskur læknir mótmælti harðlega og sagði slíkt ekki eiga við hér á landi. Rob Jonquière svaraði yfirvegað í þá veru að þá væri Ísland eina landið í heiminum þar sem læknar veittu ekki dánaraðstoð. Þessi orð voru ekki ásökun heldur spegilmynd. Bann í lögum útilokar ekki að læknar aðstoði fólk við að deyja heldur ýtir þeim út á jaðar hins löglega og inn á svæði sem helst má ekki ræða. Þar myndast óformleg mörk, óskrifaðar reglur og óljós skilaboð. Sumir fá meiri upplýsingar en aðrir, sumir aðstandendur skilja hvað er í gangi, aðrir ekki. Óljósar ákvarðanir í lok lífs Okkur hjá Lífsvirðingu berast reglulega frásagnir frá aðstandendum fólks sem hefur dáið við aðstæður þar sem mörkin milli líknar og lífsloka voru óljós. Þær eru sjaldnast settar fram sem ásakanir í garð lækna heldur sem tjáning sorgar, reiði og vanmáttar gagnvart því að verklag og lagarammi veiti ekki skýrari leiðsögn. Fyrir fólk sem bíður með mikið veikum ástvini sínum eftir síðustu stundinni getur þessi veruleiki verið mjög átakanlegur. Einn systkinahópur lýsir reynslu sinni svo: „Morfíngjafir fékk hún þar til hún varð meðvitundarlaus og dó. Þess má geta að við systkini vorum spurð um hvort ekki ætti að gefa henni síðustu morfínsprautuna… Það var lokainngjöf.“ Þessi frásögn er ekki einsdæmi. Á félagsfundum lýsa aðstandendur því reglulega að verkjalyfjaskammtar hafi verið auknir með þeim hætti að dauðinn varð fyrirsjáanleg afleiðing, án þess að skýr samtöl færu fram um tilgang, ábyrgð eða valkosti. Fyrir aðstandendur getur slík staða verið þungbær. Þeir upplifa sig ekki aðeins sem vitni að andláti ástvinar heldur sem þátttakendur í ákvörðun sem enginn hafði undirbúið þá fyrir. Siðferðileg togstreita innan heilbrigðiskerfisins Svipaðar sögur berast úr heilbrigðiskerfinu sjálfu. Á félagsfundi Lífsvirðingar lýstu hjúkrunarfræðingar því að hafa sagt upp störfum eftir að vera beðnir um að gefa sjúklingum auka morfínskammt í þeim tilgangi að hjálpa þeim „yfir móðuna miklu“. Þeir lýstu þessari stöðu sem siðferðilega óbærilegri. Gagnsæi fram yfir fyrir andstöðu Árið 1990, þegar Ruud Lubbers var forsætisráðherra í Hollandi, fór fram fyrsta landskönnunin þar sem læknar voru spurðir beint hvort og með hvaða hætti þeir veittu dánaraðstoð. Lubbers var sjálfur mótfallinn dánaraðstoð, bæði á trúarlegum og siðferðilegum forsendum, en taldi engu að síður nauðsynlegt að varpa ljósi á raunveruleikann. Niðurstöður könnunarinnar drógu fram veruleika lækna sem reyndu að sinna deyjandi sjúklingum í oft mjög erfiðum aðstæðum. Þeir gáfu upp í einlægni að hafa vísvitandi og af ásetningi bundið enda á líf 1040 deyjandi einstaklinga með banvænum ofskömmtum eða sprautum, án þess að fyrir lægi skýr beiðni eða samþykki viðkomandi sjúklinga. Það voru 0,8% af dauðsföllum árið 1990. Algengustu ástæður sem gefnar voru fyrir því að binda enda á líf sjúklinga án vitundar þeirra voru: „lítil lífsgæði“, „engar horfur á bata“ og „fjölskyldan gat ekki meir“. Niðurstöðurnar staðfestu að bann við dánaraðstoð hafði ekki stöðvað framkvæmdina heldur ýtt henni út á grátt svæði. Margar ákvarðanir snerust um að hætta lífslengjandi meðferð eða auka verkjastillingu með fyrirsjáanlegum lífslokum (tvíþætt áhrif, þ.e. að lina þjáningu en jafnframt flýta andláti). Línan milli „náttúrulegs dauða“ og virkra inngripa í klínísku starfi reyndist óskýr. Læknar lýstu því að þeir tækju slíkar ákvarðanir í siðferðilegu tómarúmi þar sem skýr lög skorti, venjur væru óskráðar, upplýsingar til sjúklinga og aðstandenda misjafnar og persónuleg ábyrgð og áhætta mikil. Margir lýstu siðferðilegu álagi, óöryggi og þörf fyrir skýran lagalegan og siðferðilegan ramma. Könnunin færði umræðuna úr leynd yfir í opinbert siðferðilegt og lagalegt samtal. Hún svaraði ekki spurningunni Eigum við að leyfa dánaraðstoð? heldur Hvernig eigum við að bregðast við því sem þegar er að gerast? Læknar upplifa aukið öryggi eftir lögleiðingu Reynslan í Hollandi eftir lögleiðinguna árið 2002 er mjög góð. Læknafélag Hollands (KNMG) hefur frá upphafi stutt löggjöfina. Í yfirlýsingum og könnunum þess kemur skýrt fram að læknar meta skýran ramma, lagalegt öryggi og faglegt eftirlit. Andstaða yfirvalda ýtir undir ógagnsæi og setur lækna í mjög erfiða stöðu Frásagnir starfsfólks í heilbrigðisgeiranum og aðstandenda undanfarin ár gefa ástæðu til að ætla að ástandið á Íslandi sé ekki ólíkt því sem Rob Jonquière lýsti að sé að gerast í öðrum löndum sem heimila ekki dánaraðstoð. Á Íslandi hafa heilbrigðisráðherra og formaður Læknafélags Íslands (LÍ) lýst skýrri andstöðu við dánaraðstoð. Sú andstaða hefur meðal annars birst í því að ekki hefur verið gerð könnun meðal lækna á vegum LÍ um raunverulega stöðu mála. Hópur lækna hefur þó stigið fram og vill fá umræðu um þetta viðkvæma og mikilvæga málefni en án árangurs. Þá hafa verið framkvæmdar tvær kannanir, árið 2021 (á LSH) og 2023 á vegum þáverandi heilbrigðisráðherra, um afstöðu lækna þar sem hin síðari sýnir að rúmur meirihluti þeirra (56%) eru fylgjandi dánaraðstoð, nokkur hluti óákveðinn og um þriðjungur andvígur. Stjórn LÍ hunsar þær niðurstöður og dregur í efa marktækni þeirra þó svo að viðurkenndri aðferðafræði hafi verið beitt. Andstaða við dánaraðstoð þarf ekki að þýða andstöðu við gagnasöfnun og opna umræðu. Þögnin leysir ekki vandann heldur gerir hann aðeins ósýnilegan. Höfundur er formaður Lífsvirðingar, félags um dánaraðstoð, sem berst fyrir lögleiðingu dánaraðstoðar á Íslandi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ingrid Kuhlman Mest lesið Þess vegna já Arnór Sighvatsson Skoðun Er Ísland Manchester City og ESB Sheffield United Gauti Eggertsson Skoðun Finnar elska ESB Halldór Jörgen Olesen Skoðun Kúnstin að naga blýanta Hrafnkell Tumi Kolbeinsson Skoðun Varanlegar undanþágur eru möguleiki Per Ekström Skoðun Það er ekki eftir neinu að bíða Trausti Hjálmarsson Skoðun Hverju erum við eiginlega að fórna fyrir „lægra atvinnuleysi“? Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Erlent vald er vesen Guðmundur Fertram Sigurjónsson Skoðun Er betra að vita en halda? Óli Rúnar Ástþórsson Skoðun Upplýst lýðræði - Lærdómurinn af einni leiðréttingu Sigurður Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Þjóðaratkvæðagreiðslan er lýðræðisleg aðferð og lærdómsferli Þorsteinn Gunnarsson skrifar Skoðun Tími varanlegra undanþága er liðinn Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Málefnið liggur á götunni Steindór Þórarinsson skrifar Skoðun Finnska fordæmið – aðlögun að afnámi tollverndar eða umbreytingu stuðningskerfis? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Er betra að vita en halda? Óli Rúnar Ástþórsson skrifar Skoðun Eitt lítið og saklaust skref í einu í átt til Brussel Einar Geir Þorsteinsson skrifar Skoðun Það er ekki eftir neinu að bíða Trausti Hjálmarsson skrifar Skoðun Þess vegna já Arnór Sighvatsson skrifar Skoðun Smá standard, takk Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Erlent vald er vesen Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Hvernig getum við stöðvað innbrotaölduna í Reykjavík? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Finnar elska ESB Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Kúnstin að naga blýanta Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Hverju erum við eiginlega að fórna fyrir „lægra atvinnuleysi“? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Upplýst lýðræði - Lærdómurinn af einni leiðréttingu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fullyrðingar utanríkisráðherra um samningssvigrúm Íslands Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þreifað á „pakkanum“ Hlín Leifsdóttir skrifar Skoðun Er Ísland Manchester City og ESB Sheffield United Gauti Eggertsson skrifar Skoðun Varanlegar undanþágur eru möguleiki Per Ekström skrifar Skoðun Hvernig lögum við vanstillt stjórnmál? Gunnar Már Gunnarsson skrifar Skoðun Gjaldþrotasaga flugfélaga er alvarleg áminning um skaða krónunnar Baldur Pétursson skrifar Skoðun Einfaldasta sagan er ekki alltaf sú sanna Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Það er ekki nóg að tala um geðheilbrigði. Það er kominn tími á aðgerðir Jóna Kristín Einarsdóttir skrifar Skoðun Hver fer í slíkar „samningaviðræður“? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sættum okkur ekki við atvinnuleysi Illugi Gunnarsson,Ragnhildur Björt Björnsdóttir skrifar Skoðun Íslenskir vefir á faraldsfæti Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Ég er ekki Evrópusinni Óðinn Freyr Baldursson skrifar Skoðun Hjarðarbólsoddi Oddur Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta snýst um aðild Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Standast orkufyrirtæki ríkisins grundvallargildi fjármálaráðherra? Embla Einarsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Þjóðaratkvæðagreiðslan er lýðræðisleg aðferð og lærdómsferli Þorsteinn Gunnarsson skrifar
Skoðun Finnska fordæmið – aðlögun að afnámi tollverndar eða umbreytingu stuðningskerfis? Erna Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Hverju erum við eiginlega að fórna fyrir „lægra atvinnuleysi“? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar
Skoðun Gjaldþrotasaga flugfélaga er alvarleg áminning um skaða krónunnar Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Það er ekki nóg að tala um geðheilbrigði. Það er kominn tími á aðgerðir Jóna Kristín Einarsdóttir skrifar
Skoðun Standast orkufyrirtæki ríkisins grundvallargildi fjármálaráðherra? Embla Einarsdóttir skrifar