Lifir draumurinn eða raungerist leðjuslagur á botninum? Aron Guðmundsson skrifar 12. febrúar 2026 14:32 Lárus Jónsson, þjálfari Þórs Þorlákshafnar. Vísir/Hulda Margrét Lárus Jónsson, þjálfari Þórs Þorlákshafnar, segir leik liðsins gegn ÍR í Bónus deildinni í körfubolta í kvöld gríðarlega mikilvægan. Hans lið þurfi að vinna til að eiga séns á að komast í úrslitakeppnina, tap þýði að leðjuslagur við botn deildarinnar bíði þeirra.
Staða Þórs Þorlákshafnar í Bónus deildinni er erfið en á sama tíma á liðið enn möguleika á því að koma sér inn í úrslitakeppnina þrátt fyrir að vera í fallsæti fyrir leiki kvöldsins. Fjögur stig muna á Þór Þorlákshöfn og liðunum sem eru í baráttunni um síðustu sætin í úrslitakeppni deildarinnar. Leikjunum, þar sem hægt er að sækja mikilvæg stig, fer hins vegar fækkandi. Aðeins sex umferðir eru eftir af deildarkeppninni. Staðan í Bónus deildinni fyrir leiki kvöldsinsVísir „Þetta er gríðarlega mikilvægur leikur fyrir okkur,“ segir Lárus, þjálfari Þórsara í samtali við Vísi um leik kvöldsins gegn ÍR en Þórsarar unnu fyrri leik liðanna og gætu því verið með innbyrðis viðureignir á ÍR þegar talið verður upp úr pokanum við lok deildarkeppninnar. „Með sigri getum við kannski lyft okkur upp úr fallsæti og ef við látum okkur dreyma um úrslitakeppni þá þurfum við líka á sigri að halda þar sem að ÍR er eitt af þeim liðum sem við erum að elta þar. Staðan er þannig að ef við ætlum að reyna komast í úrslitakeppnina þá þurfum við að vinna. Ef við töpum í kvöld þá verðum við í leðjuslagnum á botninum.“ Og Þórsarar mæta til leiks í kvöld, eftir hlé í Bónus deildinni vegna úrslitahelgar í bikarkeppninni, með breyttan leikmannahóp. Nýr íslenskur leikmaður, Haukur Davíðsson er mættur til Þorlákshafnar og þá hefur liðið fengið inn nýjan bandarískan leikmann í stað Jacoby Ross, sá heitir Dachon Burke og spilaði síðast í næstefstu deild Ísrael. „Hann lítur bara ágætlega út, spilaði síðast leik í desember í Ísrael,“ segir Lárus um stöðuna á Burke. „Hann er kannski ekki í bestu leikæfingunni en alls ekkert afleitri, kemur inn með svolítið öðruvísi leikstíl en Jacoby Ross. Hann er töluvert betri varnarmaður, hávaxnari og betri í því að ráðast á körfuna. Burke er kannski ekkert ólíkur Jacob Falko hjá ÍR og kemur með eitthvað annað að borðinu hjá okkur.“ En hvað þurfa Þórsarar að hafa á hreinu varðandi sinn leik til þess að sækja sigur í greipar ÍR-inga í Breiðholtinu? „Þetta dæmigerða. Mæta í Skógarselið, koma með meiri baráttu en ÍR. Það er lykillinn að mínu mati. ÍR er lið sem er þekkt fyrir mikla baráttu, ef við náum að jafna þá baráttu eða vinna hana, þá eigum við möguleika á sigri í kvöld.“ Leikur ÍR og Þórs Þorlákshafnar hefst klukkan korter yfir sjö í kvöld og verður sýndur í beinni útsendingu á Sýn Sport Ísland 5. Hægt verður að fylgjast með öllu því helsta úr leikjum kvöldsins samtímis í Skiptiborðinu á Sýn Sport Ísland.
Bónus-deild karla Þór Þorlákshöfn ÍR Mest lesið Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport „Betra liðið tapaði” Fótbolti „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ Íslenski boltinn Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti „Ég er rígmontinn af þeim” Fótbolti „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ Íslenski boltinn Þykja Alpine liðið vera of dýrt Formúla 1 „Allir tala um hvað ég er gamall“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Elvar Már óvænt til Tenerife út tímabilið Pirraður yfir því hvernig Baldur yfirgaf Stjörnuna Grét alla Reykjanesbrautina Sjá meira