Framlag Íslands mun minna en annarra Norðurlanda Smári Jökull Jónsson skrifar 13. febrúar 2026 13:14 Pawel Bartoszek er formaður utanríkismálanefndar Alþingis. Vísir/Arnar Formaður utanríkismálanefndar segir framlag Íslands til Úkraínu mun minna á hvern íbúa en á hinum Norðurlöndunum en í gær tilkynnti utanríkisráðuneytið um milljarðs framlag til vopnakaupa til handa Úkraínumönnum. Nauðsynlegt sé að gefa Úkraínu færi á að verja sig til að stöðva hæga framrás Rússa.
Utanríkisráðuneytið tilkynnti í gær um milljarðs króna framlag Íslands til PURL-verkefnis Atlantshafsbandalagsins vegna kaupa á varnartengdum búnaði í Úkraínu. Pawel Bartoszek, formaður utanríkismálanefndar og þingmaður Viðreisnar, segir það ekki stefnubreytingu af hálfu Íslands að svona hárri upphæð sé varið til vopnakaupa. „Alls ekki. Þessi stuðningur er náttúrulega að fullu leyti í samræmi við þingsályktunartillöguna sem hefur verið samþykkt á Alþingi með stuðningi allra flokka,“ segir Pawel. Engin sérstök pressa sé frá Bandaríkjunum hvað þetta varðar. „Pressan snýst einfaldlega um það að ég tel nauðsynlegt, að gefa Úkraínu færi á því að verja sig til þess að stöðva þessa hægu framrás Rússa sem hefur átt sér stað og er í rauninni það sem tefur fyrir friðarviðræðum vegna þess að á meðan Rússland sér fyrir sér að geta haldið áfram að vinna land, þá hafa þeir ekki áhuga á samningum.“ Meginverkefnið sé að styðja við vini Íslands í Úkraínu sem eigi í sjálfstæðisstríði gegn ólöglegri innrás. „Þá verður líka kannski að setja þetta í það samhengi að ef við skoðum framlög Norðurlanda. Þá eru framlög hinna Norðurlandanna, per íbúa, margfalt hærri heldur en framlög Íslands. Ég held að framlög Danmerkur,“ segir Pawel. „Frá upphafi stríðsins séu tífalt hærri heldur en framlög Íslands, þannig að ef eitthvað er, þá mættum við gera betur. Í öllum stuðningi.“ Hann segir að fé sé einnig varið til mannúðarmála og nefnir til dæmis kaup á rafölum þar sem raf- og hitakerfi Úkraínu sé lamað. Árleg öryggisráðstefna fer fram í Munchen í dag sem Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra sækir fyrir Íslands hönd. Í aðdraganda ráðstefnunnar sagði Metta Fredriksen forsætisráðherra Danmerkur að allt hnigi í þá átt að Bandaríkin væru á leið frá Evrópu og að álfan þyrfti að vígbúast. „Ég myndi nú ekki spá því að Bandaríkin myndu hverfa frá Evrópu alfarið. Bandaríkin gegna lykilhlutverki í vörnum Evrópu og munu gera það áfram. Hins vegar, hafa skilaboð frá þessum stjórnvöldum í Bandaríkjunum, og reyndar þeim síðustu, verið þau að Evrópa þurfi að taka meiri þátt í eigin vörnum og það hefur hún verið að gera.“
Öryggis- og varnarmál Utanríkismál Bandaríkin Viðreisn Mest lesið Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Innlent Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Innlent „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Innlent Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Innlent Þyrlan lenti við Hörpu Innlent „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Innlent Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Innlent Tortímir gervigreindin mannkyninu? Innlent Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Innlent Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Innlent Fleiri fréttir Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Fluttur til aðhlynningar eftir umferðarslys Tortímir gervigreindin mannkyninu? „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Hver ákvað að Guðmundur Ingi ætti að hætta? Sjá meira