Boðar tímabundna heimild svo unnt sé að senda erlenda fanga fyrr úr landi Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 13. febrúar 2026 15:09 Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra. Vísir/Vilhelm Drögum að frumvarpi um fullnustu refsinga, sem varðar brottvísun og afplánun erlendra fanga hefur verið dreift í samráðsgátt stjórnvalda. Í drögunum er meðal annars gert ráð fyrir tímabundinni heimild til að veita erlendum föngum, sem ákveðið hefur verið að vísa úr landi að afplánun lokinni, reynslulausn þegar aðeins einn þriðji hluti refsitímans er liðinn. Samkvæmt gildandi lögum þarf helmingi afplánunar að vera lokið til að veita megi reynslulausn, en frumvarpsdrögin gera ráð fyrir að viðkomandi verði vísað úr landi þegar í stað við reynslulausn.
Um er að ræða drög að frumvarpi til breytinga á lögum um fullnustu refsinga sem fela í sér endurskoðun á ákvæðum laganna sem varða reynslulausn og fullnustu refsinga utan fangelsa, „í þeim tilvikum þar sem fyrir liggur að erlendum föngum með lítil eða engin tengsl við Ísland verði brottvísað í kjölfar afplánunar,“ líkt og segir um frumvarpið í samráðsgátt. Þannig verði lögð til tímabundin heimild til 1. júlí 2027 til að veita erlendum föngum, „sem endanlega hefur verið ákveðið að vísa úr landi að afplánun lokinni, reynslulausn þegar einn þriðji hluti refsitímans er liðinn í stað helmings samkvæmt gildandi lögum. Við reynslulausn verður viðkomandi vísað úr landi þegar í stað.“ Sömuleiðis er gert ráð fyrir að þeir ákveðið hefur verið að vísa úr landi geti ekki afplánað á áfangaheimili eða undir rafrænu eftirliti. „Slík úrræði eiga aðeins við þegar markmiðið er aðlögun að íslensku samfélagi, sem á ekki við um þá sem ljóst er að hafi engin eða lítil tengsl við landið og muni yfirgefa landið að afplánun lokinni,“ segir ennfremur um frumvarpið sem birtist í samráðsgátt í dag. „Þegar nánar er litið til mikillar fjölgunar erlendra ríkisborgara í fangelsum landsins kemur í ljós að þeir eru 83% allra þeirra sem hófu gæsluvarðhald árið 2025, 70% árið 2024 og 60% árið 2019. Þó ber að hafa í huga að inn í þeim tölum eru einnig þeir sem sæta gæsluvarðhaldi vegna fyrirhugaðs flutnings úr landi en ekki einungis þeir sem framið hafa afbrot,“ segir meðal annars í greinargerð með frumvarpinu þar sem tilefni og nauðsyn lagasetningarinnar er rökstudd. „Skilaboðin eru skýr. Alvarleg afbrot hér á landi hafa raunverulegar og langvarandi afleiðingar. Þegar ákvörðun um brottvísun liggur fyrir og afplánun lýkur verður brotamönnum vísað strax úr landi og þeir fá endurkomubann til Íslands og eftir atvikum alls Schengen-svæðisins. Þannig tryggjum við að fangelsisrými nýtist þar sem þess er raunverulega þörf og að brottvísanir séu ekki aðeins orð á blaði heldur raunveruleg aðgerð,“ Þetta er haft eftir Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra, í tilkynningu um málið á vef stjórnarráðsins. „Fangelsiskerfið hefur á skömmum tíma tekið miklum breytingum. Samsetning fangahópsins er orðin fjölbreyttari en áður og í einstökum tilvikum hafa einstaklingar af yfir tuttugu ólíkum þjóðernum verið vistaðir samtímis í sama fangelsi. Það skapar ýmsar áskoranir, m.a. við að tryggja öryggi starfsmanna og fanga. Með frumvarpinu erum við að bregðast við þessari þróun með skýrum hætti. Þetta mun hafa jákvæð áhrif sem fyrst og fremst mun birtast í styttingu boðunarlista og því að fleiri geti hafið afplánun,“ segir ráðherra.
Fangelsismál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Viðreisn Mest lesið Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Segja boltann hjá stjórnvöldum Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Innlent Fleiri fréttir Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Sjá meira