Tiger Woods útilokar ekki þátttöku á Masters Ágúst Orri Arnarson skrifar 17. febrúar 2026 23:17 Tiger Woods ræddi við blaðamenn í dag. Getty/Kevin C. Cox Tiger Woods hefur ekki tekið þátt í golfmóti í tæplega tvö ár en útilokar ekki þátttöku á Masters mótinu í apríl næstkomandi.
Tiger hefur glímt við mikil meiðsli í baki og gekkst undir sína sjöundu aðgerð á síðasta ári, þar sem hryggjarlið var skipt út fyrir gervidisk. Nokkrum mánuðum áður hafði hann slitið hásin. Þar að auki er Tiger orðinn fimmtugur og tæknilega séð gjaldgengur á gamlingjatúrinn, PGA mótaröð eldri kylfinga. Hann útilokar samt ekki endurkomu á golfvöllinn og vinnur hart að því dags daglega. Hann segist byrjaður að sveifla kylfunni að fullu en vantar enn aðeins upp á formið. Á blaðamannafundi í dag var hann spurður spjörunum úr og sýndi lítinn áhuga, samkvæmt The Athletic, þangað til talið færðist að Masters. Tiger var spurður hvort hann útilokaði endurkomu. „Nei“ sagði hann einfaldlega, einbeittur á svip. „Ég held áfram að reyna. Ég held áfram að vinna í því, að verða sterkari, að reyna að auka úthaldið og koma mér í nógu gott stand til keppa á hæsta stigi“ bætti hann svo síðar við. Tiger spilaði síðast á golfmóti í júlí 2024 en hefur unnið þrekvirki fyrir golfíþróttina síðan þá, sem erindreki og opinber talsmaður íþróttarinnar, en einnig sem stjórnarmaður í hinum ýmsu samtökum og fyrirtækjum.
Golf Masters-mótið Mest lesið Maður dagsins á HM: Af hverju fór Messi að gráta og átti að reka hann út af? Fótbolti Allt í bál og brand í Formúlu 1 Formúla 1 Zlatan nóg boðið: „Fáfróðir munu kalla þetta hroka“ Fótbolti Tárvotur Messi jafnaði HM markametið með þrennu Fótbolti „Ísland ætti ekki að eiga kylfing sem spilar svona vel“ Golf Allt sem þú þarft að vita: Ráshópur og rástími Gunnlaugs á U.S. Open Golf Haaland í ham er Noregur hóf HM á sigri Fótbolti Efast um Frey og segir hann hvorki fyrsta, annan né þriðja kost Fótbolti Kristófer og Guðrún eignuðust son Körfubolti Freyr ráðinn þjálfari Rosenborg Fótbolti Fleiri fréttir Þjóðhátíðarsigur í Þorlákshöfn Portúgal - Austur-Kongó | Ronaldo byrjar og slær met ÍR stöðvaði Gróttu og Kári kom Fylki í annað sæti Íslendingarnir fengu mjög góð ráð frá Patrick Reed Ólafur Ólafs fékk fálkaorðuna Bjó til sex mörk Fram á gamla heimavellinum Kristófer og Guðrún eignuðust son Zlatan nóg boðið: „Fáfróðir munu kalla þetta hroka“ Efast um Frey og segir hann hvorki fyrsta, annan né þriðja kost Evrópudagskrá íslensku liðanna klár Vestri gæti farið til Búlgaríu eða Írlands Mourinho hringdi í Silva sem samdi til tveggja ára Ísraelskt lið bíður Víkinga Maður dagsins á HM: Af hverju fór Messi að gráta og átti að reka hann út af? Sjáðu mörkin í Víkinni, sturlunina í Garðabæ og Viktor tækla Val Allt í bál og brand í Formúlu 1 „Ísland ætti ekki að eiga kylfing sem spilar svona vel“ Freyr ráðinn þjálfari Rosenborg Tárvotur Messi jafnaði HM markametið með þrennu Haaland í ham er Noregur hóf HM á sigri „Tvær stórar ákvarðanir sem féllu á móti okkur“ „Aldrei stressaður um að þeir myndu jafna“ Allt sem þú þarft að vita: Ráshópur og rástími Gunnlaugs á U.S. Open Íslandsmeistararnir bæta við sig tveimur sterkum leikmönnum Emil: Byrjaði brösulega hjá okkur „Keyrðum þetta saman í gegn“ Írak - Noregur | Langþráð stund fyrir norsku þjóðina „Ef einhver fer að slaka á fær hann að heyra það“ Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Stjarnan - Breiðablik 4-4 | Átta marka tryllir í Garðabænum Sjá meira