Bakkakot er ekki frávik. Þetta er kerfi sem brást Steindór Þórarinsson skrifar 19. febrúar 2026 09:46 Áður en fólk fer að rífast um orð, titla og ábyrgð vil ég setja eitt á borðið. Stærsti hryllingurinn í Bakkakotsmálinu er ekki bara það sem börnin segjast hafa orðið fyrir. Það er líka að börn hafi verið send þangað áfram eftir að upp komst um ofbeldi. Þá erum við ekki að tala um misskilning. Þá erum við að tala um kerfisbrest. Og þegar kerfi bregst börnum, þá á það að hafa afleiðingar. Ekki bara í formi yfirlýsinga, heldur í formi ákvarðana sem sjást, mælast og standa. Þetta viljum við sjá strax Við þurfum ekki fleiri falleg orð. Við þurfum plan sem stenst dagsljós. Plan sem er birt opinberlega og hægt er að fylgjast með viku fyrir viku. Ég vil sjá þetta, strax. Í fyrsta lagi sjálfstæða rannsókn með skýru umboði og skyldu til að skila opinberri skýrslu. Ekki innanhúss úttekt sem endar í skúffu. Í öðru lagi opinbera tímalínu. Hvað verður gert, hvenær, af hverjum og hver ber ábyrgð á framkvæmdinni. Nöfn og dagsetningar. Ekki óljósar tilkynningar sem hverfa í loftið. Í þriðja lagi skýra forgangsröðun í fjármagni og mannafla. Ef þetta er forgangsmál, þá á það að sjást á því hvernig kerfið er mannað og hvernig úrræðum er forgangsraðað. Í fjórða lagi raunverulegan stuðning við þau sem stíga fram og þau sem lifa með afleiðingunum. Ekki bara boð, heldur aðgengi, útfærsla og eftirfylgni. Í fimmta lagi ábyrgð. Það verður að liggja fyrir hverjir tóku ákvörðanirnar, hverjir höfðu eftirlit og hvaða ferlar brugðust. Og ef fólk brást í starfi, þá á það að hafa afleiðingar. Kerfið lærir ekki nema það kosti eitthvað að bregðast. Þetta er ekki einangrað dæmi Það sem gerir svona mál enn þyngra er að þetta er of nálægt okkur til að afgreiða það sem eitthvert gamalt hryllingsbrot sem tilheyrir annarri tíð. Svona gerist þegar barn er að öskra á stuðning og kerfið heyrir bara truflun. Þegar vanlíðan birtist sem áhættuhegðun og viðbragðið verður refsing, skömm og þrýstingur, í stað þess að grípa, lesa í merkin og byggja upp. Þetta er jarðvegur sem kerfi búa til. Og svo stendur fólk hissa þegar brotin verða mörg. Við þurfum að þora að horfast í augu við það sem samfélagið hefur lengi hunsað. Að barnavernd og velferðarkerfi geta verið hættuleg þegar eftirlit er veikt, ábyrgð óskýr og enginn vill viðurkenna mistök. Fundur 4. mars og þögn sem hjálpar engum Ég og Nonni Lobo eigum staðfestan fund með heilbrigðisráðherra 4. mars 2026. Sá fundur snýst ekki um Bakkakot sem einstakt mál. Hann snýst um stærri myndina, börn sem kerfið bregst og hvernig við knýjum fram breytingar sem sjást í verki, ekki bara í orðum. Ég sendi mennta og barnamálaráðherra Ingu Sæland tölvupóst og persónuleg skilaboð 11. janúar og hef ekki fengið neitt svar eða viðbrögð. Skilaboðin fóru í gegn. Þögnin hjálpar engum. Við erum ekki að leita að átökum. Við sækjumst eftir samtali og lausnum. Við viljum vera rödd þeirra barna og þeirra aðstandenda sem geta ekki alltaf, vilja ekki, eða þora ekki að stíga fram. Það má ekki vera þannig að fólk þurfi að verða opinbert fórnarlamb til að fá kerfið til að hlusta. Strax í dag Ég stend að Strax í dag vegna þess að ég er búinn að fá nóg af því hvernig þessi mál enda. Við fáum bylgju, við fáum reiði, við fáum falleg orð, og svo róast allt. Þá stendur fólk eftir með sömu örin og sama kerfið heldur áfram. Þess vegna leggjum við áherslu á mælanlegar kröfur, opinbera birtingu, dagsetningar og ábyrgðaraðila. Það er eina leiðin til að tryggja að þetta verði ekki bara næsta mál sem fer í gegnum fréttahringinn. Bakkakot á ekki að verða enn ein bylgjan sem fer. Þetta á að verða vendipunktur sem skilar breytingum sem sjást, mælast og haldast. Ef kerfið brást börnum, þá þarf kerfið að viðurkenna það, læra af því og breytast. Hratt. Og það þarf að kosta. Annars lærir það ekki neitt. Höfundur er viðurkenndur markþjálfi og stofnandi Strax í dag. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mál fósturbarna á Bakkakoti Mest lesið Halldór 24.10.26 Halldór 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Þegar unga kynslóðin missir trúna á framtíðina Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson skrifar Skoðun Hvar var rannsóknarblaðamennskan? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Er náttúrupassinn áhættunnar virði? Valdís María Smáradóttir skrifar Skoðun Keisarinn er ekki í fötum! Hjördís Guðný Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir skrifar Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar Skoðun Hversu marga dökka sérðu á myndinni? Óskar Steinn Ómarsson skrifar Skoðun Ritskoðun fjölmiðlanefndar? Hallmundur Albertsson skrifar Sjá meira
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar
Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar