Rósa Björk býður sig fram í formann VG Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 19. febrúar 2026 14:46 Rósa Björk Brynjólfsdóttir býður sig fram til formanns VG. Vísir/Vilhelm Rósa Björk Brynjólfsdóttir hefur ákveðið að bjóða sig fram sem formann VG. Landsfundur flokksins fer fram í byrjun mars en Svandís Svavarsdóttir núverandi formaður hyggst ekki gefa kost á sér áfram.
Í tilkynningu á samfélagsmiðlum segir Rósa Björk að flokkurinn standi á tímamótum. Hún segir einstakt tækifæri blasa við til að blása lífi í stefnumál og hugmyndafræði flokksins. Rósa Björk var þingmaður flokksins á sínum tíma en gekk úr honum og í Samfylkinguna eftir að VG fór í ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokki og Framsókn árið 2017. Hún gekk svo aftur til liðs við VG árið 2024. Ekki hafa borist fleiri formannsframboð á þessum tímapunkti. „Við sjáum og upplifum bakslag í umhverfismálunum, jafnréttismálum og mannréttindamálum, og erum að horfa upp á ótrúlega forherðingu þegar kemur að útlendingamálum hér á landi. Ég heyri ákall eftir skýrri rödd sem veitir bakslaginu viðnám og fólk vill líka finna að það er til staðar framtíðarsýn sem byggir á von og fjölbreyttum tækifærum í samfélaginu. Að til staðar sé sameinandi rödd en ekki sundrandi og útilokandi.“ Rósa segir að verði hún kjörin muni hún leggja áherslu á að styrkja og skerpa málflutning flokksins í umhverfismálum og standa styrkan vörð um mannréttindamálin. Vinna gegn vaxandi misskiptingu og fátækt og halda á lofti áherslum friðar og meiri samvinnu við líkt þenkjandi ríki á alþjóðasviðinu. „Undanfarnar vikur er ég búin að eiga góð samtöl við félaga mína í VG um allt land og ég finn að fólk saknar að haldið sé kröftugar á lofti sjónarmiðum umhverfisverndar og mannréttinda. Það er einnig ljóst að félagshyggjufólk, í mörgum flokkum, þyrstir í afdráttarlausa afstöðu til þeirra vandamála sem stjórnmálin standa frammi fyrir. Þar sem spyrnt er fótum við mismun í samfélaginu og sundrandi orðræðu. Í hægrislagsíðu íslenskra stjórnmála er nauðsynlegt að til staðar sé stjórnmálaafl sem veitir öfluga viðspyrnu frá vinstri.“
Vinstri græn Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Sjá meira