4.927 stúdentar borga kaffið og kleinurnar Andrea Edda Guðlaugsdóttir og Eiríkur Kúld Viktorsson skrifa 20. febrúar 2026 08:01 Á dögunum samþykkti háskólaráð tillögu um hækkun skrásetningargjalds við Háskóla Íslands úr 75.000 í 100.000 krónur þrátt fyrir harðorða bókun fulltrúa Vöku sem greiddi atkvæði gegn tillögunni. Við þetta mun greiðslubyrði stúdenta hækka um 33% á meðan tekjuaukning skólans nemur einungis broti af því fjármagni sem hann vantar. Ákvörðun þessi brýtur á grunngildum Háskóla Íslands og vekur upp alvarlegar spurningar um jafnt aðgengi að námi og forgangsröðun ríkisins en ekki síður um traust milli stúdenta og háskólayfirvalda. Hvernig eiga stúdentar að treysta forystu sem tekur hvorki tillit til né sinnir hagsmunum okkar? Silja Bára Ómarsdóttir rektor Háskóla Íslands fullyrðir að raunkostnaður við skrásetningu eins nemanda nemi 180.000 krónum á ári. Hvernig má vera að raunkostnaður við skrásetningu eins nemanda við Háskóla Íslands sé 180.000 krónur? Graflaxinn á Jómfrúnni er dýr – hann er þó ekki svo dýr. Logi Einarsson háskólamálaráðherra svaraði þeirri fullyrðingu rektors með því að veita opinberum háskólum á Íslandi heimild til þess að hækka skrásetningargjaldið í 100.000 krónur, þvert á kosningaloforð flokks síns um að opinbert háskólanám eigi að vera gjaldfrjálst. Við það hækka þau vinirnir álögur á stúdenta um heilan þriðjung til þess eins að heildartekjur Háskóla Íslands geti aukist um 1%... eitt prósent. Í fjárlögum ársins 2026 bættist einmitt við 1% aðhaldskrafa á Háskóla Íslands. Að okkar mati liggur í augum uppi hverjum er ætlað að mæta þeirri kröfu. Hækkun þessi veldur miklum áhyggjum þar sem hún dregur úr jöfnuði til náms. Stærsti opinberi háskóli landsins rekur nú þá stefnu að einungis þeir sem eiga fyrir því geta sótt sér nám, öðrum er gert að finna sér eitthvað annað að gera. Margir stúdentar áttu þegar erfitt með að greiða upphaflegu 75.000 krónurnar og ekki lánar Menntasjóður námsmanna fyrir því. Ný stefna Háskóla Íslands er til þess fallin að valda því að fjöldi stúdenta dregst saman og með því lækkar hlutfall háskólamenntaðra. Þvílík hugsjón. Ákvörðunin um hækkun skrásetningargjalda er tekin þvert á vilja og hagsmunabaráttu stúdenta til margra ára. Vaka, félag lýðræðissinnaðra stúdenta, hefur barist ötullega fyrir því að fallið verði frá hækkuninni. Þrír stúdentaráðsliðar okkar hafa lagt fram tillögur þess efnis á starfsárinu og hafa fulltrúar Vöku sótt fundi með Silju Báru og Loga Einarssyni og látið skoðanir sínar í ljós, án þess að hlustað sé á þeirra rödd. Árið 2023 úrskurðaði áfrýjunarnefnd í kærumálum háskólanema að innheimta gjaldsins í núverandi mynd væri ólögmæt. Úrskurður nefndarinnar byggir á því að ekki liggi fyrir traustir útreikningar eða kostnaðaráætlanir við ákvörðun skrásetningargjaldsins. Samkvæmt lögum skulu skrásetningargjöld við opinbera háskóla á Íslandi eigi skila hærri tekjum en sem nemur samanlögðum útgjöldum háskólans vegna nemendaskráningar og þjónustu við nemendur sem ekki telst til kostnaðar við kennslu og rannsóknastarfsemi. Með öðrum orðum má ekki rukka stúdenta fyrir kennslu og rannsóknastarfsemi. Inni á vef Háskóla Íslands má sjá (mjög lélegt) yfirlit yfir kostnaðarliði skrásetningargjaldsins. Laganna vegna má setja stórt spurningarmerki við ýmsa af þeim liðum. Umsýsla stúdenta á fræðasviðum, skipulag kennslu og prófa, prófgæsla, reiknuð gjöld af rekstri kennslusviðs, reiknuð gjöld af rekstri kennslumiðstöðvar, reiknuð gjöld stafrænnar kennslu og miðlunar og aðstaða og stjórnun, eru meðal kostnaðarliða skrásetningargjaldsins. Er hægt að færa rök fyrir því að þessir liðir teljist ekki til kennslu og rannsóknastarfsemi? Að mati Háskólans flokkast stafræn kennsla náttúrulega ekki sem kennsla… Að auki er tvírukkað fyrir ýmsa liði skrásetningargjaldsins. Aðstaða og stjórnun, eins og komið hefur fram, er einn kostnaðarliða skrásetningargjaldsins. Aðrir kostnaðarliðir eru aðgangur að bókasafni og annarri aðstöðu og aðgangur að tölvum, prenturum o.fl. sem jú, myndu eðlilega falla undir aðstöðu, en í augum Háskóla Íslands er aðstaða og aðstaða ekki sami hluturinn. Svo telja þau upp alls konar orð; umsýsla stúdenta á fræðasviðum, rekstur upplýsingatæknisviðs, rekstur tölvuvera, reiknuð gjöld af rekstri kennslumiðstöðvar og reiknuð gjöld stafrænnar kennslu og miðlunar. Sem margur myndi halda að skilgreinist sem stjórnun. Ekki nóg með það að við Háskóla Íslands er aðstaða og aðstaða ekki sami hluturinn, þá er stjórnun og stjórnun ekki sami hluturinn heldur. En það er ekki nóg að tvírukka fyrir aðgang að prenturum, heldur þurfa stúdentar einnig að greiða prentkvóta til þess að nota prentarana. Já, það er rukkað fyrir aðstöðuna þar sem prentarinn er geymdur, það er rukkað fyrir að fá að horfa á prentarann og fyrir að fá að nota prentarann. Og ef út í það er farið… þá virka prentararnir nánast aldrei. Það er þó staðreynd að Háskóli Íslands er vanfjármagnaður. Samkvæmt skýrslu OECD frá árinu 2025 er fjármögnun opinberra háskóla á Íslandi um þriðjungi lægri en meðaltal hinna Norðurlandanna, okkar helstu samanburðarþjóða. Í ályktun háskólaráðs kemur fram að fjárframlög frá ríkinu þyrftu að vera um 6 milljörðum hærri til þess að við myndum standast samanburð við hinar Norðurlandaþjóðirnar. Þess ber að geta að hin fjársvelta stofnun, Háskóli Íslands, hefur síðastliðin tvö ár trónað á toppi listans yfir þær ríkisstofnanir sem eyða mestu fjármagni á veitingastaðnum Jómfrúnni og það með miklum yfirburðum. Höfundar búa saman og deila fjárhag og eru sammála um að ef þá skortir fjármagn fara þeir ekki að eyða peningum á Jómfrúnni, hvað þá mestum pening allra Íslendinga… og það með miklum yfirburðum. En fyrst Háskólinn eyðir svona miklu á Jómfrúnni, hvað ætli hann eyði almennt miklu í máltíðir og kaffiveitingar? Svarið við því er tiltölulega einfalt að finna en samkvæmt opinberum reikningum ríkisins eyddi Háskóli Íslands heilum 123.175.227 krónum, í máltíðir og kaffiveitingar, árið 2025. Þessi upphæð er heil 37% af tekjuaukningu Háskólans vegna hækkunar skrásetningargjaldsins. Það þýðir einfaldlega það að 4927 nemendur greiða þessar rúmlega hundraðogtuttugu milljónir með hækkun skrásetningargjaldsins. Til samanburðar eru 3506 nemendur á Félagsvísindasviði, fjölmenntasta sviði Háskólans og karlkyns nemendur við HÍ eru 4501 talsins. Betri samanburð má sjá á myndinni hér að neðan. Hvernig væri að sníða sér stakk eftir vexti? Í kosningabaráttu Silju Báru til embættis rektors Háskóla Íslands lofaði hún ýmsu. Í skoðanagrein sinni á Vísi segir Silja: „Sem rektor mun ég styðja stúdenta í þeirra hagsmunabaráttu, með það að markmiði að þeir geti stundað nám af fullum krafti óháð efnahagslegum aðstæðum. Það er ekki ásættanlegt á Íslandi að fjárhagsleg staða fólks komi í veg fyrir þekkingarleit og menntun.” Því miður höfum við ekki fundið fyrir þessum stuðningi en svo virðist sem rektor láti orð okkar stúdenta sem vind um eyru þjóta. Nú geta enn færri stúdentar stundað nám af fullum krafti og nú kemur fjárhagsleg staða fólks svo sannarlega í veg fyrir þekkingarleit og menntun á Íslandi. Silja Bára hlaut ekki meirihluta atkvæða stúdenta en sá minnihluti stúdenta sem kaus Silju Báru í embætti rektors kaus hana líklega vegna þess að þau héldu að jafnrétti og aðgengi að námi væru forgangsmál hjá henni. Þau héldu að hún sæi hagsmuni stúdenta og hagsmuni skólans sem eitt. Við erum næstum viss um að því fólki þætti vænt að sjá þann rektor. Höfundar eru stúdentaráðsliðar Vöku, félags lýðræðissinnaðra stúdenta. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hagsmunir stúdenta Háskólar Rekstur hins opinbera Mest lesið Barnamorðingjar eru velkomnir til Íslands Björn B. Björnsson Skoðun Obb obb obb Bogi minn 698.500 kr. fyrir að breyta einum litlum flugmiða Kristján Logason Skoðun Stór-Ísrael Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Beðið eftir aðgerð þar sem kvóti er búinn Dóra Lind Pálmarsdóttir Skoðun Mannréttindi þarf ekki að endurhugsa — þau þarf að virða Alma Ýr Ingólfsdóttir Skoðun Hvalveiðar sem vopn til að berjast gegn aðild að ESB Micah Garen Skoðun Sami hræðsluáróðurinn: EES á Íslandi 1993 og ESB í Svíþjóð 1994 Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Hvalveiðar: Bláa pillan eða sú rauða? Eyþór Eðvarðsson Skoðun Vertu velkomin, Eydís! Elís Hlynur Grétarsson,Ólöf Helga Jónsdóttir,Jón Kristinn Sverrisson Skoðun Barnahús er sameiginlegt verkefni Paola Cardenas Skoðun Skoðun Skoðun Hvað varð um planið? Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Íslensk stjórnvöld eiga að virða Árósasamninginn Árni Finnsson,Björg Eva Erlendsdóttir skrifar Skoðun Sami hræðsluáróðurinn: EES á Íslandi 1993 og ESB í Svíþjóð 1994 Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Mannréttindi þarf ekki að endurhugsa — þau þarf að virða Alma Ýr Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Hvalveiðar sem vopn til að berjast gegn aðild að ESB Micah Garen skrifar Skoðun Beðið eftir aðgerð þar sem kvóti er búinn Dóra Lind Pálmarsdóttir skrifar Skoðun Vandinn talaður burt Kristján Hreinsson skrifar Skoðun Stór-Ísrael Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Barnamorðingjar eru velkomnir til Íslands Björn B. Björnsson skrifar Skoðun Hvenær verða sjóðir mikilvægari en félagsmenn? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Obb obb obb Bogi minn 698.500 kr. fyrir að breyta einum litlum flugmiða Kristján Logason skrifar Skoðun Viljum við kvótavæða sjókvíaeldið? Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun ESB eða efnahagsmálin, hvað á að vera forgangsverkefni ríkisstjórnarinnar? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Sveitarfélög sem nýta gervigreind vel gætu umbreytt þjónustu sinni Gísli Rafn Ólafsson skrifar Skoðun Vertu velkomin, Eydís! Elís Hlynur Grétarsson,Ólöf Helga Jónsdóttir,Jón Kristinn Sverrisson skrifar Skoðun Verkin tala Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Brexit og Ísland - Hvað getum við lært – og hvert eigum við að stefna? Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Barnahús er sameiginlegt verkefni Paola Cardenas skrifar Skoðun Ríkisvaldið féll á lyfjaprófi Vilhjálmur H. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Hvað fengu þau – og hvað gáfu þau eftir? Lærdómur frá löndum sem gengu í ESB Bjarndís Helena Mitchell skrifar Skoðun Hvalveiðar: Bláa pillan eða sú rauða? Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Mikilvægt framfaraskref fyrir allt landið Njáll Trausti Friðbertsson skrifar Skoðun Hver á sér fegurra föðurland? Marta Eiríksdóttir skrifar Skoðun Hvenær ætlum við að taka málefni heimilislausra alvarlega? Erla Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Telur stjórnsýslu Íslands allt of litla Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Verður valdagræðgi Flokks fólksins honum að falli? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Tengsl eru innviðir samfélagsins Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Kæru landar – Eigum við að hafna samningi sem við höfum ekki séð? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Börnin fyrst, en þau bíða enn Steindór Þórarinsson,Jón K. Jacobsen skrifar Skoðun Að semja við sjálfan sig Sigurjón Njarðarson skrifar Sjá meira
Skoðun Íslensk stjórnvöld eiga að virða Árósasamninginn Árni Finnsson,Björg Eva Erlendsdóttir skrifar
Skoðun Sami hræðsluáróðurinn: EES á Íslandi 1993 og ESB í Svíþjóð 1994 Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar
Skoðun Obb obb obb Bogi minn 698.500 kr. fyrir að breyta einum litlum flugmiða Kristján Logason skrifar
Skoðun ESB eða efnahagsmálin, hvað á að vera forgangsverkefni ríkisstjórnarinnar? Þórir Garðarsson skrifar
Skoðun Sveitarfélög sem nýta gervigreind vel gætu umbreytt þjónustu sinni Gísli Rafn Ólafsson skrifar
Skoðun Vertu velkomin, Eydís! Elís Hlynur Grétarsson,Ólöf Helga Jónsdóttir,Jón Kristinn Sverrisson skrifar
Skoðun Brexit og Ísland - Hvað getum við lært – og hvert eigum við að stefna? Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Hvað fengu þau – og hvað gáfu þau eftir? Lærdómur frá löndum sem gengu í ESB Bjarndís Helena Mitchell skrifar
Skoðun Hvenær ætlum við að taka málefni heimilislausra alvarlega? Erla Björg Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Kæru landar – Eigum við að hafna samningi sem við höfum ekki séð? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar