Nova kaupir Ofar Atli Ísleifsson skrifar 20. febrúar 2026 08:54 Sylvía Kristín Ólafsdóttir er forstjóri Nova. Vísir/Vilhelm Nova klúbburinn hf. hefur undirritað samning um kaup á öllu hlutafé í Ofar hf. Heildarvirði kaupanna er 4,4 milljarðar króna.
Frá þessu segir í tilkynningu til Kauphallar, en nafni Origo lausna var breytt í Ofar árið 2024. Fram kemur að kaupin séu liður í markvissri vaxtarstefnu Nova klúbbsins og styrki verulega stöðu félagsins á fyrirtækjamarkaði. „Ofar er eitt stærsta þjónustufyrirtæki landsins á sviði tæknibúnaðar og lausna og þjónustar um 10.000 fyrirtæki, þar á meðal langflest stærri fyrirtæki landsins. Hjá félaginu starfa um 100 sérfræðingar og býr það yfir öflugum innviðum á sviði vöru- og innkaupastýringar, vöruhúss, dreifingar og verkstæðisþjónustu. Ofar hefur áratuga reynslu af því að styðja við fyrirtæki og stofnanir með tölvu- og tæknibúnaði frá yfir 150 heimsþekktum vörumerkjum á borð við Lenovo, Canon, Bose og Sony. Fyrirtækið býður einnig upp á framúrskarandi úrval hljóð- og myndlausna, prentlausna, heilbrigðislausna ásamt lausnum fyrir vöruhús, verslanir, veitingastaði, innviði, gagnaver og fleira. Heildartekjur Ofar á árinu 2025 voru um 7,8 ma.kr., EBITDA félagins tæplega 620 m.kr. og rekstrarhagnaður um 360 m.kr. Heildarvirði (e. Enterprise value) kaupanna nemur 4.400 m.kr., en auk þess nema leiguskuldbindingar um 510 m.kr. í árslok 2025. Endanlegt kaupverð ræðst af nettó stöðu veltufjármuna og hreinum vaxtaberandi skuldum á uppgjörsdegi. Kaupin verða fjármögnuð með handbæru fé og lánsfé,“ segir í tilkynningunni. Ennfremur segir að Nova hf. og Ofar verði rekin í sitthvoru lagi, hvort undir sínu vörumerki. „Áætlaður vöxtur Ofar á núverandi ári sem og áætluð jákvæð samlegðaráhrif á EBITDA samstæðu Nova klúbbsins eru samtals um 250 m.kr. á ársgrundvelli, þegar þau eru að fullu komin fram. Þannig verða áætluð heildaráhrif á EBITDA samstæðunnar um 870 m.kr., en gert er ráð fyrir að árlegar fjárfestingar samstæðunnar aukist um 60 m.kr. á ári. Viðskiptin munu þannig styrkja sjóðstreymi samstæðunnar verulega,“ segir í tilkynningunni. Haft er eftir Sylvíu Kristínu Ólafsdóttur, forstjóra Nova, að Ofar sé félag sem hafi byggt upp öfluga stöðu á markaði með fagmennsku og metnaði. „Félagið, líkt og Nova, vinnur markvisst með tækninýjungar og hefur það að leiðarljósi að viðskiptavinir séu ávallt með bestu lausnir fyrir sína starfsemi. Ég kynntist Ofar vel þegar ég starfaði hjá Origo og hef fylgst með þróun félagsins síðan. Þar starfar sterkt og reynslumikið teymi með skýra sýn. Það verður einstaklega spennandi að efla frekari vöxt Ofar, þar sem tækifærin eru fjölmörg, og um leið nýta þau tækifæri sem skapast fyrir Nova klúbbinn á þeirri vaxtarvegferð sem við erum á,“ segir Sylvía Kristín. Gert er ráð fyrir að viðskiptin taki gildi að uppfylltum fyrirvörum, þar á meðal samþykki samkeppnisyfirvalda.
Nova Kaup og sala fyrirtækja Mest lesið Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Viðskipti innlent Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent Arion hækkar vexti á ný Viðskipti innlent „Það þýðir ekki að pissa í skóinn sinn“ Neytendur Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Viðskipti innlent Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Viðskipti innlent Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Viðskipti innlent Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Viðskipti innlent Bensínverð hækkar aftur á morgun Viðskipti innlent Hagkerfið kólnar en er ekki í kreppu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Arion hækkar vexti á ný Bensínverð hækkar aftur á morgun Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Hagkerfið kólnar en er ekki í kreppu Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sjá meira
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent