Verða árásir á Íran gerðar frá Keflavíkurflugvelli? Steingrímur Gunnarsson skrifar 21. febrúar 2026 16:01 Þegar Bretar, Þjóðverjar, Frakkar og Ítalir hafa tekið fyrir að Bandaríkjamenn geti notað herflugvelli þeirra til árása á Íran, er nærtækt að hugsa til Keflavíkurflugvallar.Í nýrri grein, sem birtist í The Caspian Post, er fjallað um möguleikann að sprengjuleiðangrar frá Keflavíkurherstöðinni komi í staðinn fyrir. Einnig er grein um sama efni i tímaritinu The War Zone. Í þessum greinum báðum er bent á, að Ísland og Asóreyjar séu einmitt veltilfallnar að vera brottfarastaður í slíka leiðangra og að auki sé Keflavíkurflugvöllur sérstaklega útbúinn til að þjónusta skæðustu herflugvélar Bandaríkjahers; þessar svokölluðu “stealth” og langdrægu sprengiflugvélarnar af B2 gerðinni (B-1B, B-52). Bandaríkjaher hefur oftast notast við flugstöð Breta á Diego Garcia til árása sinna í Miðausturlöndum, og einnig frá flugstöð breska hersins við Faiford á Englandi. En nú er fokið i það skjól eftir að forsætisráðherra Bretlands lýsti þvi yfir 19.febrúar, að Bandaríkjamenn gætu ekki notað þessa velli til árása á Íran.Þetta bann Breta flækir málin fyrir Bandaríkjamönnum i þessum efnum, og því vaknar spurningin: hvað munu Íslendingar og Portúgalar gera? Asóreyjar eru jú portúgalskt yfirráðasvæði og herflugvöllurinn þar er risavaxinn. Já, og hvað mun litla Ísland gera, ef að beiðni frá Bandaríkjamönnum kemur um þessháttar notkun af Keflavikurflugvelli. Stór spurning fyrir litla þjóð, sem er með tvíhliða varnarsamning við Bandaríkin. Það vaknar alltaf spurningin: í þágu hverra? Við hér á Fróni munum vel eftir leiksýningunni í kringum Íraksstríðið 2003, þar sem misvitrir ráðamenn okkar álpuðust inní að vera með í innrás “Bandalags hinna viljugu þjóða”, eins og hópurinn var pent kallaður. Þeir, sem tóku ákvörðunina að taka þátt, þeim þótti ákvörðunin svo léttvæg að þeir báru hana ekki upp á Alþingi.Í framhaldi þeirrar ákvörðunar að gerast innrásarþjóð i Miðausturlöndum var Keflavíkurflugvöllur notaður til vondra verka; meðal annars til fangaflutninga i litlum vélum. Þessi þátttaka okkar Íslendinga í Íraksstríðinu er einn ljótasti bletturinn i sögu okkar. Háðulegur í ljósi þess að við erum herlaus þjóð, sem kennir sig við frið.Núna gæti sagan endurtekið sig með lítt breyttum formerkjum og ef til kemur, að Bandaríkjaher vilji nota herstöðina á Keflavíkurflugvelli til herleiðangurs í Miðausturlöndum, hver verður þá okkar afstaða? Hvað munu ráðamenn okkar gera nú? Mun ákvörðunin, að leyfa sprengjuleiðangra til árás á Íran frá Keflavíkurflugvelli, koma til umræðu, til dæmis á Alþingi, eða verður þessi ákvörðun í sama farvegi og þegar Halldór Á og Davið O tóku hana 2003 um að vera memm í árásarleiðangri “Bandalags hinna viljugu þjóða”?Þegar við tökum ákvarðanir, þá fylgir ábyrgð. Vert að hafa það í huga. Höfundur er leiðsögumaður, Cand.mag., MA í alþjóðasamskiptum og fyrrum kjósandi VG. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Bandaríkin Mest lesið Þess vegna já Arnór Sighvatsson Skoðun Svar við grein Per Ekström varðandi varanlegar undanþágur Hjörvar Sigurðsson Skoðun Aðlögun, hvaða aðlögun? Halldór Jörgen Olesen Skoðun Flestir nota gervigreind eins og leitarvél Þórdís Inga Ingigerðardóttir Skoðun Þjóðaratkvæðagreiðslan er lýðræðisleg aðferð og lærdómsferli Þorsteinn Gunnarsson Skoðun Veganismi og dýraskaði Atli Sævar Guðmundsson Skoðun Sex staðreyndir um dánaraðstoð Ingrid Kuhlman Skoðun Erlent vald er vesen Guðmundur Fertram Sigurjónsson Skoðun Hverju erum við eiginlega að fórna fyrir „lægra atvinnuleysi“? Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Eitt lítið og saklaust skref í einu í átt til Brussel Einar Geir Þorsteinsson Skoðun Skoðun Skoðun Hefur þú komið á Þjóðhátíð? Íris Róbertsdóttir skrifar Skoðun Kíkt í pakkann Júlíus Valsson skrifar Skoðun Samningurinn sem stækkar í kyrrþey Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Hvað kostar léleg umsýsla ríkissjóðs okkur í raun? Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar gróðureldar verða að samfélagsógn Snorri Birgisson skrifar Skoðun Flestir nota gervigreind eins og leitarvél Þórdís Inga Ingigerðardóttir skrifar Skoðun Sex staðreyndir um dánaraðstoð Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Aðlögun, hvaða aðlögun? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Svar við grein Per Ekström varðandi varanlegar undanþágur Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Veganismi og dýraskaði Atli Sævar Guðmundsson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðagreiðslan er lýðræðisleg aðferð og lærdómsferli Þorsteinn Gunnarsson skrifar Skoðun Tími varanlegra undanþága er liðinn Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Málefnið liggur á götunni Steindór Þórarinsson skrifar Skoðun Finnska fordæmið – aðlögun að afnámi tollverndar eða umbreytingu stuðningskerfis? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Er betra að vita en halda? Óli Rúnar Ástþórsson skrifar Skoðun Eitt lítið og saklaust skref í einu í átt til Brussel Einar Geir Þorsteinsson skrifar Skoðun Það er ekki eftir neinu að bíða Trausti Hjálmarsson skrifar Skoðun Þess vegna já Arnór Sighvatsson skrifar Skoðun Smá standard, takk Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Erlent vald er vesen Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Hvernig getum við stöðvað innbrotaölduna í Reykjavík? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Finnar elska ESB Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Kúnstin að naga blýanta Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Hverju erum við eiginlega að fórna fyrir „lægra atvinnuleysi“? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Upplýst lýðræði - Lærdómurinn af einni leiðréttingu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fullyrðingar utanríkisráðherra um samningssvigrúm Íslands Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þreifað á „pakkanum“ Hlín Leifsdóttir skrifar Skoðun Er Ísland Manchester City og ESB Sheffield United Gauti Eggertsson skrifar Skoðun Varanlegar undanþágur eru möguleiki Per Ekström skrifar Skoðun Hvernig lögum við vanstillt stjórnmál? Gunnar Már Gunnarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Þjóðaratkvæðagreiðslan er lýðræðisleg aðferð og lærdómsferli Þorsteinn Gunnarsson skrifar
Skoðun Finnska fordæmið – aðlögun að afnámi tollverndar eða umbreytingu stuðningskerfis? Erna Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Hverju erum við eiginlega að fórna fyrir „lægra atvinnuleysi“? Sveinn Atli Gunnarsson skrifar